Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 05.08.2016, Side 54

Fréttatíminn - 05.08.2016, Side 54
Loksins á Íslandi Bragðgóð, skemmtileg og hressandi gúmmívítamín fyrir börnin Sumir eiga óskaplega erfitt með að muna eftir að taka inn vítamínin og enn aðrir eiga erfitt með að koma stórum töflum og hylkjum niður. Nú er komin frá- bær lausn við þessu vandamáli því gómsætu gúmmívítamín- in frá BIOGLAN eru þægileg og skemmtileg leið til að fá nauðsynlegan ráðlagðan dag- skammt af omega-3 fitusýrum, D3-vítamíni og fjölvítamíni. Omega 3 + Fjölvítamín Omega-3 fitusýrur eru nauðsyn- legar fyrir frumur líkamans og gegna mikilvægu hlutverki í að styðja við starfsemi heilans. Fitusýrurnar eru taldar bæta einbeitingu, minni og vitsmuna- þroska. Einnig styður omega-3 við eðlilega starfsemi augna og hjarta- kerfisins. D3 Vítamín er ómissandi vítamín sem verður til fyrst og fremst fyrir áhrif sólarljóssins á húðina, en húðin vinnur vítamínið úr sólarljósi. Það þarf því ekki að fjölyrða um nauðsyn þess að taka það inn, fyrir okkur sem búum á norð- urhjara veraldar. D3-vítamín er nauðsynlegt beinheilsu, fyrir heilbrigt ónæmiskerfi og geð- heilsu. Fjölskyldu fjölvítamín – Fjölvítamín fyrir fjölskylduna eru sérstaklega hönnuð til að stuðla að orkuframleiðslu, styrk- ingu ónæmiskerfisins og til að viðhald vexti líkamans. Fjölvítamín- ið inniheldur tíu lykilnæringarefni sem líkaminn þarfnast. Fæst í helstu apótekum, Hag- kaupum, Heimkaup.is, Fjarðar- kaup, 10-11 og Iceland Engihjalla. Calamari Gold Omega 3 olían er unnin úr smokk-fiski, en olían inniheld-ur mikið magn af DHA nauðsynlegum fitusýrum. Hvert hylki inniheldur fimm sinnum meira af DHA samanborið við þorskalýsi og þrisvar sinnum meira en fiskiolía. Færri eiturefni Ólíkt þorski er smokkfiskur ekki ofveiddur og lifir tiltölulega stutt. Það þýðir að færri eiturefni safnast upp í honum í samanburði við margar aðrar fisk- tegundir. Gæði omega-3 fitu- sýranna er því meiri. Einstaklega rík af DHA fitusýrum Calamari gold olían er talin hafa einstaklega mikla heilsubæt- andi eiginleika og er sérstaklega rík af DHA fitusýrum sem styðja við heilbrigða starfsemi heil- ans, augu og hjarta. Eins eru þær taldar bæta minni og einbeitingu og geta unnið gegn elliglöpum. Rannsóknir benda til þess að DHA fitusýrur geti hjálpað til við að bæta blóðþrýsting og dregið úr hættu á hjartasjúkdómum. Fæst í helstu apótek- um, Heilsuhús- inu, Heimkaup.is, Hagkaupum og Fjarðarkaupum. Unnið í samstarfi við Balsam Nú er ekkert mál að taka inn vítamín því þau eru lostæti. SmartKids henta öllum börnum frá 3 ára aldri. Fjórar tegundir af vítamínum og bætiefnum sem eru nauðsynleg fyrir litla kroppa sem eru að stækka og þroskast frá degi til dags. Það hefur aldrei verið auðveldara að fá börnin með sér í lið. SmartKids Brain Formula inni- heldur Omega 3 fitusýrur sem styður eðlilega heilastarfsemi, B vítamín sem stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og járn sem hefur mikilvægu hlutverki að gegna í súrefnisflutningi til heil- ans og vitsmunaþroska barna. SmartKids fjölvítamín er kær- komin viðbót við mataræði barna, ekki síst þeirra sem teljast mat- vönd eða fást ekki til að taka vítamínin sín. Foreldrar vita best hversu slítandi það getur verið að fá börnin til þess að borða það sem fyrir framan þau er lagt, hvað þá vítamín. SmartKids fjölvítamínið inniheldur helstu vítamín og steinefni sem eru ómissandi fyrir stækkandi börn. SmartKids D3 vítamínið er afar mikilvægt fyrir ónæmiskerfi og beinaheilsu barna. Styrkir einnig tennur og vöðva og er lífs- nauðsynlegt yfir veturinn í skammdeginu. SmartKids vítamínin innihalda hvorki glúten, mjólk né hnetur og henta því börnum með slík fæðuofnæmi. SmartKids gúmmí- vítamínin fást með ljúffengu sítrónu- og berjabragði. SmartKids Happy Tummies probiotics fyrir viðkvæma maga inniheldur góðgerla fyrir þarma- flóruna og sér henni fyrir þeim góðu bakteríum sem litlir magar þurfa á að halda. SmartKids Happy Tummies koma í gómsæt- um mjúkum kúlum með jarðar- berjabragði. Smartkids fæst í helstu apó- tekum, Heimkaup.is, Hagkaup- um og Fjarðarkaupum. Ljúffeng og skemmtileg Bioglan VitaGummies gúmmívítamín – Nauðsynleg fyrir heilsu okkar allra Öflugri Omega-3 olíur Fimm sinnum meira magn af DHA en í þorskalýsi Calamari Gold er einstaklega ríkt af Omega 3 fitusýrum. Það hefur aldrei verið auðveldara að fá börnin með sér í lið. SmartKids vítamínin eru bragðgóð og hressandi. …heilsa kynningar 10 | amk… FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2016 Júl ía Magnúsdót t ir, heilsumarkþjálf i og næringar- og lífsstílsráð-gjafi, skorar á Íslendinga að sleppa sykri í fjórtán daga. „Áskorunin hefst 15. ágúst og það er öllum frjálst að taka þátt með skráningu á heimasíðunni lifdutil- fulls.is. Það eru engar reglur, boð eða bönn. Hver og einn fer í þetta á sínum forsendum en áskorunin snýst um það að taka hvítan sykur út úr mataræðinu og kynnast því hversu gott hægt er að hafa það án sykurs“ segir Júlía. „Sjálf var ég algjör sykurfíkill hér áður og þekki vel hversu erfitt er að reyna sleppa sykri. Ég vildi því gera þetta eins auðvelt og hægt er svo í gegnum áskorunina fá þáttakendur nýjar uppskriftir fyrir hvern virkan dag þessar tvær vikur ásamt inn- kaupalista. Uppskriftirnar eru sam- settar úr fæðu sem slá á sykurþörf- ina og svo eru þær vegan að auki. Allir geta tekið þátt í áskoruninni og farið eins langt og þeir treysta sér til, hvort sem það er að prófa eina nýja uppskrift á dag sem slær á sykurþörfina eða sleppa sykrin- um alfarið. Margir finna bætta líð- an, meiri orku og sumir hafa náð af sér nokkrum aukakílóum með því að taka þátt, sem er ekki amalegt.“ Júlía telur að það taki líkamann 14 daga að sleppa sykri, þó sumir segi að það taki lengri tíma. „Ég tel 14 daga vera hæfilegan tíma til að skapa nýja hefð og löngun í sykur mun minnka til muna. Sykurlaust fæði er langt frá því að vera leiði- gjarnt og í raun kynntist ég nýjum heimi fæðutegunda þegar ég hætti að borða sykurinn,“ segir Júlía sem vill nú hjálpa fólki að borða minni sykur og opna augu þess fyrir því hve víða sykurinn leynist. Hægt er að skrá sig í áskorunina með Júlíu á vefsíðunni lifdutilfulls.is Losaðu þig við sykurinn á 14 dögum Júlía skorar á Íslendinga að taka þátt í sykur- lausri áskorun sem snýst um að taka allan hvítan sykur út úr mataræðinu. Engar reglur og allir eru á sínum eigin forsendum. Þessir eru dásamlega góðir og alveg fullkomnir að hafa í veskinu að grípa í þegar þú ert á ferðinni og vantar eitthvað að narta í eða jafnvel í útileguna. Botn 1 bolli sólblómafræ 1 bolli möndlur 1/4 bolli kókoshveiti 4 msk möndlusmjör 4 msk kókosolía 5 mjúkar döðlur* 1 tsk vanilla Súkkulaðikrem 4 döðlur* 1/4 bolli kókosolía 4 msk lífrænt kakóduft 4 dropar stevía *Það má líka sleppa döðlunum og nota þá 2 msk auka af möndlu- smjöri í botninn og 2 dropa aukalega af stevíu í kremið. En döðlurnar gefa góða sætu. Byrjaðu á að gera botninn: Mauk- aðu sólblómafræin og möndlurn- ar í matvinnsluvél og settu til hliðar. Bættu hinu hráefninu út í og hrærðu þar til allt er bland- að. Dreifðu úr deiginu í eldfast mót og þrýstu því svo vel niður. Næst gerirðu kremið: Bræddu saman í potti kókosolíuna, kakóið og stevíuna þar til þetta er orðið þykkt. Að lokum dreifir þú úr kreminu yfir botninn, geymir í ísskáp í um það bil 25 til 30 mínútur eða þar til stökkt. Skerðu í kubba og njóttu. Þessi jógurt er í miklu uppáhaldi hjá mér og manninum mínum og hana verður að finna í uppskriftabókinni minni sem kemur út í sept- ember. 1 dós kókosmjólk 1 banani 1/2 bolli mangó eða meira 2 skeiðar kísilduft* 4 msk chia fræ 4-6 dropar toffee stevía smá vatn, fer eftir þykkt kókosmjólkur *Kísilduftið hjálpar að vinna gegn kandida sveppi sem nærist á sykri en má sleppa ef verið er að gera fyrir börn. Byrjið á að leggja chia fræ í bleyti á móti 3/4 bolla af vatni, látið liggja í 10 mínútur eða yfir nótt. Setjið öll innihalds- efni í blandara og hellið í krukkur. Þessi jógurt er æðisleg í morgunmat eða sem millimál. Uppskriftin er fyrir tvo Geggjaðir sykurlausir hafraklattar ~ gerir u.þ.b. 18 stykki, fer eftir stærð. Karamellu jógúrt sem slær á sykurþörfina

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.