Fréttatíminn - 05.08.2016, Side 59
Það er fátt sem fær mig til að kveikja á
sjónvarpinu í þeim tilgangi að fylgjast
með einhverju sérstöku. Ég býð þó eftir
Popppunkti á hverju föstudagskvöldi,
spenntari en liðsmaður MR í Gettu bet-
ur, enda annálað tónlistarnörd.
Ég horfi meira á sjónvarpsþætti og
heimildamyndir en kvikmyndir og er
gríðarlega ánægð með þættina sem
Netflix hefur verið að framleiða.
Þessa dagana er ég að missa vitið
yfir Stranger Things, sem ég átti ekki
hreint ekki von á þar sem ég er ekki
mikið fyrir sci-fi, en þessir þættir hafa
allt. Þeir eru vel leiknir, persónurnar eru
skemmtilega skrifaðar og stílfæringin á
þáttunum sem eiga að gerast á níunda
áratugnum er falleg. Svo er tónlistin
frábær. Fyrir skræfur eins og mig mæli
ég þó ekki með áhorfi á þeim á nótt-
unni, þar sem þeir eru pínu óhugnan-
legir.
Jafnframt er ég mikill aðdáandi Or-
ange is the New Black, sem eru einnig
framleiddir af Netflix. Það er velkomin
tilbreyting að fá sjónvarpsefni með jafn
mikið af sterkum og fjölbreyttum kven-
persónum eins og eru í þeim þáttum.
Nirvana aðdáandinn gladdist yfir
komu Montage of Heck og Soaked in
Bleach á síðasta ári. Svo ættu allir að
horfa á Amy. Hún er frábær, en átak-
anleg.
Sófakartaflan
Aðalheiður Gunnars Sigrúnar dóttir
Er að missa vitið yfir Stranger Things
Opnunarhátíð í Ríó
RÚV, 22.55. Ólympíuleikarnir
í Ríó hefjast formlega í dag. RÚV
sýnir frá leikunum líkt og
endranær og eflaust eiga margir
eftir að límast við skjáinn.
Frjálsíþróttaáhugamenn vonast
væntanlega til þess að Sigurbjörn
Árni Arngrímsson eigi sem flestar
innkomurnar enda jafnast ekkert
á við lýsingarnar hans; Sigurbjörn
getur vakið óbilandi áhuga hinna
mestu antisportista á maraþon-
hlaupum, stangarstökki og
kúluvarpi. Sýnt verður frá
opnunarhátíðinni í Ríó klukkan
22.55 í kvöld og verður hún að
öllum líkindum stórkostleg veisla
fyrir augað. Leikarnir hafa verið í
brennidepli lengi, ekki síst vegna
ásakana um mútur og spillingu en
við vonum að allt fari friðsamlega
fram næsta mánuðinn.
Hvað vilja konur?
Netflix What Women Want.
Bráðskemmtileg gamanmynd með
Mel Gibson og Helen Hunt í
aðalhlutverkum. Nick Marshall er
karlremba sem vinnur á auglýs-
ingastofu og vefur kvenmönnum
um fingur sér. Dag einn fær Nick
höfuðhögg sem gerir það að
verkum að honum er kleift að
heyra hugsanir kvenna – þetta
breytir lífi Nick svo um munar og
breytir öllu þegar kemur að
samskiptum hans við hitt kynið.
Allt um fasteigna-
kaup og fleira
Hringbraut, 20.00 Anna
Karen Ellertsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson sjá um þáttinn
Heimilið á föstudagskvöldum á
sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Í
þættinum eru gefin góð ráð
varðandi heimilið, fasteignakaup,
hvernig hægt er að spara í
heimilishaldinu og rauninni bara
allt sem viðkemur heimilinu.
Fróðlegir og nytsamlegir þættir.
Ánægð með Netflix Aðalheiður Gunnars Sigrúnardóttir er í hópi aðdáenda
Stranger Things á Netflix. Mynd | Rut
Bankastræti • Borgartúni • Kringlunni • Smáralind • Reykjanesbæ • Safnahúsinu • Þjóðminjasafni • Kruðerí
Kíktu í Kaffitár
Hver einasta kaffibaun og ferðalag hennar í
bollann skiptir máli. Hjá Kaffitár verkum við
kaffið af þekkingu og berum fram með alúð.
Ég fyrirverð
mig ekki
fyrir fagnaðar-
erindið. Það
er kraftur
Guðs sem
frelsar hvern
þann mann
sem trúir...
www.versdagsins.is
…sjónvarp15 | amk… FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2016