Fréttatíminn - 13.08.2016, Qupperneq 2
Íþróttir Fjölmiðlar gagn-
rýndir fyrir fréttaflutning
sinn af kvenkyns keppend-
um á ólympíuleikunum.
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Frá því að ólympíuleikarnir hófust í
Ríó þetta árið hafa erlendir sem inn-
lendir fjölmiðlar verið gagnrýndir
fyrir fréttaflutning sinn af afrekum
íþróttakvenna á leikunum. Svo virð-
ist sem gagnrýnisraddirnir hafi náð
til eyrna fjölmiðlafólks og hefur leik-
konan Leslie Jones til að mynda verið
send til Ríó til að fjalla um sumarleik-
ana á vegum NBC sjónvarpsstöðar-
innar.
Á vefmiðli Morgunblaðsins, mbl.
is, birtist einnig grein um sundkon-
una Eygló Ósk Gústafsdóttur þar sem
afrek hennar voru tíunduð en Eygló
keppir ólympíuleikunum í annað
skipti. Margir voru þó óánægðir með
fyrirsögn greinarinnar „Bætti dálítið
mikið á mig á Wilson’s“ sem varð til
þess að henni var breytt.
Ákveðin vitundarvakning virðist
því eiga sér stað og beinast nú allra
augu að afrekskonum í íþróttum.
Óhætt er að segja að stjarna leikanna
um þessar mundir sé hin nítján ára
gamla Simone Biles, fimleikakona frá
Bandaríkjunum en hún vann bæði til
gullverðlauna með bandaríska fim-
leikahópnum, auk þess sem hún vann
til gullverðlauna í einstaklingskeppn-
inni. Bandaríska liðið skipa, auk Biles,
þær Dabby Douglas, Laurie Hernand-
ez, Madison Kocian og Aly Raisman,
en sú síðastnefnda lenti í öðru sæti
leikanna í einstaklingskeppni. Fim-
leikakonurnar virðast eiga hug og
hjörtu bandarísku þjóðarinnar og
hafa andstæðingar Donald Trump, til
að mynda, notfært sér slagorð kosn-
ingarherferðar hans „Making Amer-
ica Great Again“ þar sem vísað er til
afreka hópsins auk þess sem fyrrum
ólöglegur innflytjandi þjálfar hópinn,
Béla Károlyo frá Rúmeníu.
Þá var nýr kafli skrifaður í sund-
söguna þegar fyrsta blökkukonan
vann til gullverðlauna í sundi en það
var hin bandaríska Simone Manuel
sem fékk gullverðlaun í 100 metra
skriðsundi.
Ákveðinn viðsnúningur hefur því
átt sér stað og halda má því fram að
leikarnir í Ríó 2016 séu ólympíuleikar
kvennanna.
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 13. ágúst 2016
Samfélag Félagsráðgjafanum
Dagbjörtu Hákonardóttur
var synjað um umönnunar-
bætur þegar hún var að
sinna móður sinni sem hafði
fengið heilaæxli. Ástæðan
var sú, að sögn Dagbjartar,
að það þurfti að skilgreina
móður hennar sem öryrkja
til þess að Dagbjört ætti
rétt á bótunum. Það nægði
ekki að vera dauðvona með
heilaæxli. Móðir hennar lést
ári eftir að hún greindist
með veikindin, eða í febrúar
síðastliðnum.
Valur Grettisson
Valur@frettatiminn.is
„Málið með þetta kerfi, og það sem
ég upplifði á eigin skinni í þessu
ferli, er að það var svolítið tómarúm
þegar kom að aðstandendum,“ seg-
ir Dagbjört Hákonardóttir, sem
var 28 ára gömul og í námi, þegar
móðir hennar, sem var hjúkrunar-
fræðingur, veiktist skyndilega. Í ljós
kom að hún var með heilaæxli og
ekki voru miklar líkur á bata.
„Ég ákvað því að flytja til hennar,
enda þurfti hún að hafa manneskju
í fullri vinnu við að sjá um sig,“ seg-
ir Dagbjört. Í kjölfarið ákvað hún að
sækja um svokallaðar umönnunar-
bætur enda ekki á allra færi að tak-
ast á við tekjutap í svona aðstæðum.
Dagbjört segir að hún hafi fengið
bréf heim þar sem henni var synj-
að um bæturnar á þeim forsendum
að móðir hennar væri ekki öryrki.
„Og þegar maður er í svona aðstæð-
um, maður stendur í því að vera að
sinna deyjandi móður sinni, sem
er ekki nema 54 ára gömul, og fær
svona bréf frá Tryggingastofnun, þá
hrynur bara allt,“ segir Dagbjört en
bætir þó við: „Ég var nú samt fljót
að jafna mig, enda í betri aðstæðum
en margir aðrir.“
Dagbjört hringdi í Trygginga-
stofnun og óskaði eftir ráðum varð-
andi úrræði en var að lokum vísað
á sveitarfélögin. „Og það er svona
yfirleitt síðasta úrræðið,“ útskýrir
hún. Á meðan beið hún eftir örork-
umati móður sinnar, það kom þó
aldrei á meðan móðir hennar lifði.
Dagbjört segir að þarna sé aug-
ljós brotalöm í kerfinu. Hún var svo
heppin að eiga góða að. „Pabbi, sem
var skilinn við mömmu, studdi vel
við mig, og auðvitað reyndist kerf-
ið líka gott á stundum,“ segir Dag-
björt sem greindi frá reynslu sinni
á Facebook á dögunum. Yfir þús-
und manns deildu orðum hennar,
en þar kom meðal annars fram að
hún hefði að lokum þurfti að endur-
greiða 3.000 krónur af 46 þúsund
króna styrk sem móðir hennar fékk
frá stofnuninni í veikindum sínum.
Hún þurfti því að lokum að greiða
ríkinu 3.000 krónur fyrir að sinna
veikri móður sinni.
Hún segir mikilvægt fyrir ríkið að
átta sig á mikilvægi þess að aðstand-
endur geti sinnt veikum ættingjum
og ástvinum heima. „Það er rosa-
lega dýrt að hafa fólk inni á stofnun-
um, og líklega talsvert ódýrara fyrir
kerfið að hjálpa aðstandendum við
að hugsa um sitt fólk heima,“ seg-
ir hún og bætir við að tíminn sem
hún fékk að eyða með móður sinni
síðasta árið hafi verið ómetanlegur
að auki.
Dagbjört Hákonardóttir sinnti móður sinni í ár en fékk lítinn fjárhagslegan stuðn-
ing frá ríkinu á meðan. Raunar þurfti hún að lokum að greiða 3.000 krónur fyrir.
Mynd | Rut
„Það er rosalega
dýrt að hafa fólk
inni á stofnunum.“
Fékk ekki aðstoð þar
sem dauðvona móðir
var ekki öryrki
Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
gasgrill 3ja brennara
Niðurfellanleg
hliðarborð
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok
• Postulínsemaleruð efri grind
• Hitamælir
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Vönduð yfirbreiðsla fylgir
• Afl 10,5 KW
Á R A
grillbudin.is
98.900
50 ára
Nr. 12934
FRÁBÆRT GRILL
Justin Bieber Bæjarfulltrúar
í Kópavogi hvetja skipuleggj-
endur stórtónleika til þess
að leyfa ekki áfengisdrykkju
á tónleikasvæði en heimila
engu að síður áfengissölu á
tónleikunum.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks,
Samfylkingar og Framsóknar í Kópa-
vogi, beina þeim tilmælum til Senu,
sem stendur að tónleikum með
stórstirninu Justin Bieber, að leyfa
ekki áfengisdrykkju inni á tónleika-
svæðinu sökum ungs aðdáendahóps
Biebers. Sömu bæjarfulltrúar heim-
iluðu engu að síður að vínveitinga-
sala væri heimili á tónleikunum og
greiddu fimm bæjarfulltrúar atkvæði
með tillögunni, sem og leyfi til þess
að halda tónleikana, sem fram fara
8. og 9. september næstkomandi. Þá
vilja bæjarfulltrúar að sérstök svæði
verði fyrir þá sem vilja neyta áfengis.
Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
Karen Halldórsdóttir, lagði fram sér-
staka bókun á fundi bæjarráðs þar
sem segir meðal annars:
„Að ekki verði leyfð áfengis-
drykkja inn á tónleikasvæðinu, held-
ur verði hún á afmörkuðum svæðum
utan þess.“ | vg
Bæjarráð heimilar áfengissölu
en vill takmarka drykkju
Justin Bieber heldur tónleika
í Kópavogi í byrjun september. Þar
verður áfengi selt.
Hernaður Fyrrverandi
borgarstjóri Reykjavíkur,
Jón Gnarr, harmar heimsókn
tveggja herskipa NATO flot-
ans til Reykjavíkur. Jón
reyndi á sínum tíma að
koma í veg fyrir komur
slíkra vígtóla til Reykja-
víkur.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Skipin sem nú eru í höfn eru frá
Portúgal og Spáni. Þau liggja við
Skarfabakka og verða til sýnis al-
menningi um helgina.
Jón Gnarr náði á sínum tíma
samkomulagi við þáverandi inn-
anríkisráðherra, Ögmund Jón-
asson, um að losa Reykjavíkur-
f lugvöll undan lendingum
herf lugvéla. Síðar kom í
ljós að samkomulagið hélt
illa því að utanríkisráðu-
neytið heldur utan um
heimsóknir eða komur
herskipa og herflugvéla.
Slíkar komur teljast milli-
ríkjamál og eru ákveðin
milli utanríkisráðuneyta. Jón Gnarr
var einnig með hugmyndir um að
banna að herskip legðust að höfn í
Reykjavík, en hugmyndirnar náðu
ekki fram að ganga.
„Mér finnst mikilvægt að fólk sé
meðvitað um til hvers slík skip eru
smíðuð og hvernig þau hafa verið
notuð. Hingað hafa komið skip sem
hafa tekið þátt í mjög umdeildum
aðgerðum úti í heimi,“ segir Jón.
Jón vildi gera Reykjavík algjörlega
herlaust svæði. „Það væri að mínu
mati mikilvæg og merkileg afstaða
herlausrar þjóðar sem ekki hefur
staðið í hernaði frá Sturlungaöld, ef
hernámsárin og vera varnarliðsins
Friðelskandi fyrrum borgarstjóri leiður yfir herskipum
eru frátalin. Eitt af takmörkum
mannkyns hlýtur að vera að reyna
að binda endi á hernað.“
Jón segir að herskipum sem hing-
að koma beri engin skylda til að upp-
lýsa stjórnvöld hér um hvaða vopn
séu um borð. „Mér finnst bara að við
eigum að standa fyrir utan svona og
sama gildir um umferð herflugvéla
um Reykjavíkurflugvöll.“
Freygátan ESPN
Mendez Nunez
er samkvæmt
upplýsingum
frá Landhelgis-
gæslunni eitt
af flaggskipum
NATO flotans.
Skipið er í höfn
í Reykjavík.
Í Ríó fara fram
ólympíuleikar
kvennanna
Leikkonan Leslie Jones er hvað þekkt-
ust fyrir leik sinn í Ghost Busters.
Fimleikahópurinn sem unnið hefur
hug og hjörtu Bandaríkjamanna.