Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 13.08.2016, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 13.08.2016, Blaðsíða 38
Unnið í samstarfi við Hveragerðisbæ. Blómstrandi dagar í Hveragerði standa nú sem hæst og verður ekkert lát á gleðinni fyrr en annað kvöld. Hátíðin er í veglegri kantinum í ár í tilefni 70 ára afmælis Hveragerðis en að sögn Aldísar Hafsteinsdóttur bæjarstjóra var ákveðið að setja allan aurinn í glæsilega dagskrá í stað þess að halda hátíðarkvöldverð fyrir boðsgesti, eins og stundum tíðkast við þess lags tilefni. Hillary-ís og Trump-ís Viðburðirnir eru nánast óteljandi en einna stærstur er Ísdagur Kjöríss en hann dregur alltaf þúsundir að. „Enda hvergi nokkurs staðar annars staðar á byggðu bóli sem þú getur komið og borðað eins mikið af ís og þú getur í þig látið á þremur klukkutímum,“ segir Aldís. Fleiri tugir tegunda íss verða í boði og í ár er forsetaþema þannig að hægt verður að gæða sér á Hillary-ís, Trump-ís og Guðna-ís, svo dæmi séu tekin. Kjörís setur líka frystikistur vítt og breitt um Hveragerði og býður bæjarbúum upp á ís allan daginn. „Hveragerði er auðvitað blómabærinn en við erum líka höfuðborg íssins á Íslandi,“ segir Aldís. Listamannanýlenda Aldís hvetur fólk til þess að koma og leggja bílnum, rölta um bæinn og njóta þess sem í boði er. „Það eru sýningar, opnar vinnustofur út um allan bæ, tónlist og markaðir víða. Fjölmargir íbúar verða með bílskúrssölur en síðan verður einnig skottsala á planinu við leikfélagshúsið, þar sem allir eru velkomnir. Ekki má heldur má gleyma fjölmörgum tónleikum og viðburðum þar sem allir ættu geta fundið eitthvað Mikið um dýrðir á 70 ára afmæli Hveragerðis Blómstrandi dagar verða í veglegri kantinum í ár. við sitt hæfi. Það verður einnig hægt að fara í bíltúr um bæinn í gömlum Víbon með leiðsögn þar sem farið er yfir sögu bæjarins og rifjað upp hverjir upphaflega byggðu Hveragerði. „Hveragerði er sá bær á Íslandi sem hvað næst því hefur komist að vera listamannanýlenda. Bæði byggðist hann upp af listamönnum í upphafi og listamenn hafa ávallt verið mjög áberandi í bæjarlífinu,“ segir Aldís. Alflottasta flugeldasýningin Í brekkusöngnum í kvöld verður flugeldasýning sem á sér vart hliðstæðu, að sögn Aldísar. „Hún verður stærri kantinum í tilefni af afmælinu og hefur nú mörgum þótt nóg um hingað til! Ég veit að það segjast allir vera með flott- ustu flugeldasýninguna en bæjarbúar halda því margir hverjir fram að þetta sé sú alflottasta! Þetta er þvílíkt sjónarspil í Varmárgilinu og svo drynur í fjöllunum hérna í kring. Ég hugsa að hávaðinn heyrist niður í Þorlákshöfn,“ segir Aldís. Í brekkusöngnum verður einnig frumflutt lag Hljómlistafélags Hveragerðis sem er gjöf þess til bæjarbúa á þessum tímamótum. Ágústa Eva, Magnús Þór Sigmundsson, Páll Rósinkrans, Mánar, Unnur Birna og fleiri tónlistarmenn flytja lagið sem þykir einstaklega vel heppnað. Á morgun, klukkan 14, verður síðan afmæliskaka í boði fyrir alla sem vilja í Lystigarðinum undir ljúfum djasstónum og eru allir hvattir til að grípa með sér teppi og eiga þar góða stund. Hægt er að nálgast alla dagskrána á Facebooksíðunni Blómstrandi dagar í Hveragerði og á hveragerdi.is. Regla númer eitt, tvö og þrjú þegar kemur að matarræði fyrir mara- þon er að vera ekki að prófa nýja og framandi rétti nokkrum dögum fyrir hlaup. Borðaðu eitthvað sem þú veist að er öruggt og maginn þinn þolir. Gott er að gera tilraunir með hvaða morgunverður hentar best fyrir hlaup og gott er að hafa í huga að sumir eru með viðkvæman maga sem þarf að minnsta kosti þrjá klukkutíma til að melta mat áður en maraþonið hefst. Ekki belgja þig út af of miklu vatni að morgni hlaupadags, en passaðu þig samt að drekka nóg. Mikilvægt er að borða létta máltíð, til dæm- is banana með haframjöli, beyglu með hnetusmjöri, ristað brauð með hunangi eða morgunkorn án mjólk- ur. Gættu þín á mjólkurvörum, fitu, hnetum og grófu korni. Líkt og áður sagði er best að prófa sig áfram með léttar máltíðir síðustu vikurnar fyr- ir hlaup, til að finna út hvað hentar þér og þínum meltingarfærum. Borðaðu eitthvað öruggt Á lokametrum maraþonundirbúnings. Gerðu tilraunir Gott er að vita hvaða morgunverður hentar best að morgni hlaupadags. …maraþon kynningar 10 | amk… LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016 Ís fyrir alla Kjörís gefur allan þann ís sem torgað verður. Brekkusöngur Ingó veðurguð stjórnar brekkusöng í kvöld. Blómardrottning. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis. „Hveragerði er auðvitað blómabærinn en við erum líka höfuðborg íssins á Íslandi,“ Aldís Hafsteinsdóttir Bæjarstjóri Hveragerðis. Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR SUNNUDAGS LAMBALÆRI SUNNUDAGSSTEIKIN SVÍKUR EKKI! HÆGELDAÐ LAMBALÆRI MEÐ RÓSMARÍN OG HVÍTLAUK Sykurbrúnaðar kartöflur „Crispy“ kartöfluteningar með rósmarín og hvítlauk Heimalagað rauðkál Pönnusteiktir blandaðir sveppir Ofnbakaðar gulrætur Grænar baunir með myntu Maís Bjór- hollandaisesósa Sveppasósa 2.900 kr. á mann Aðeins framreitt fyrir allt borðið. með öllu tilheyrandi ALLA SUNNUDAGA FRÁ 12–14.30

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.