Fréttatíminn - 13.08.2016, Page 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 13. ágúst 2016
Innflytjendur Ungmennaráð
Breiðholts vill að nemendur
í skólum borgarinnar verði
hluti af stuðningsneti fyrir
börn og unglinga af erlend-
um uppruna sem koma til
náms í skólum borgarinn-
ar. Skóla- og frístundaráð
Reykjavíkur hefur samþykkt
tillöguna.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Tillagan gengur út á að reyna að
koma í veg fyrir að nemendur sem
eiga annað móðurmál en íslensku
einangrist við komu í skóla borg-
arinnar. Fulltrúar í ráðinu telja
mikilvægt að hjálpa til svo að nýju
nemendurnir tengist betur því
frístunda starfi sem fer fram í hverf-
unum.
Snorri Freyr Vignisson, 16 ára
nemi í MH, er einn af fulltrú-
um í ungmennaráði Breiðholts.
„Breiðholt er mikið fjölmenn-
ingarhverfi og við í ráðinu erum að
bregðast við mikilli og oft skæðri
umræðu um þessi mál með því að
leggja þetta til. Okkur finnst að það
megi leysa þessa aðlögun nýrra
nemenda betur og teljum að jafn-
aldrar nemendanna geti bætt mót-
töku þeirra mjög. Mér hefur þótt
staðið nokkuð letilega að þessum
málum hingað til,“ segir Snorri
Freyr.
Til stendur að skipa starfshóp
með fulltrúum ungmennaráða
í hverfum borgarinnar, grunn-
skólanna, frístundamiðstöðva og
starfsmanna skóla- og frístunda-
sviðs. Starfshópnum verður ætlað
að leita leiða til að bæta þjónustu
við erlenda nýnema.
Snorri Freyr segir að jafnaldr-
ar ungmennanna geti dregið þau
með sér í frístunda- og íþróttastarf.
„Ég vona að ungmenni í sem flest-
um hverfum borgarinnar taki þátt
í þessu starfi,“ segir Snorri. „Þannig
hjálpum við til við að koma jafn-
öldrum okkar sem heilsteyptum
einstaklingum út í samfélagið, í stað
þess að þeir einangrist. Við viljum
reyna að brjóta niður múrana sem
oft vilja myndast í kringum nýja
nemendur af erlendum uppruna.“
Krakkar í Breiðholti vilja hjálpa erlendum nemendum
Snorri Freyr Vign-
isson segir starfið
í Ungmennaráði
Breiðholts gefandi.
Hann bindur vonir
við tillögu um bætta
móttöku nemenda af
erlendum uppruna.
Ungmennaráð Breiðholts
segir mikilvægt að taka
vel á móti nemendum af
erlendum uppruna.
Skólamál Tveir reykvískir
nemendur hyggja á nám í
íþrótta skólanum Framsýn
í Hafnarfirði í haust, en
meirihluti borgar stjórnar
ákvað að setja kvóta á nem-
endur sem borgin greiðir
með í nám við skólann.
Sjálfstæðisflokkurinn og
Framsókn og flugvallarvinir
gagnrýna þessa ákvörðun
harðlega í bókun sinni í
skóla- og frístundaráði
Reykjavíkurborgar. Borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
segir kvótann bæði furðu-
legan og illskiljanlegan.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
„Við samþykktum þessar umsóknir,
en til að gæta samræmis við samn-
inga við sjálfstætt rekna skóla inn-
an borgarmarkanna, samþykktum
við ákvæði um hámarksfjölda fyrir
þetta skólaár,“ útskýrir Skúli Helga-
son, formaður skóla- og frístunda-
ráðs en aðeins tveir Reykvíkingar
fá að stunda nám í Framsýn í vet-
ur. Skúli segir að borgin hafi fengið
tvær umsóknir frá foreldrum nem-
anda í Reykjavík sem óskuðu eftir
því að börn þeirra fengju skólavist
í Framsýn í Hafnarfirði, sem er nýr
einkarekinn skóli þar í bæ, en um
60 unglingar hefja nám í skólanum
í haust.
„Það sem gerist er að borgin ber
viðbótarkostnað af hverjum nem-
anda sem flyst úr borgarreknum
skóla yfir í sjálfstætt starfandi skóla.
Viðbótarkostnaðurinn er rúmlega
600 þúsund krónur á hvern nem-
anda og við teljum því eðlilegt að
hafa mörk á fjöldanum við núver-
andi aðstæður þegar við þurfum
að sýna aðhald í rekstrinum,“ segir
Skúli og bendir á að borgin sé sjálfri
sér samkvæm þegar kemur að því
að festa hámarksfjölda nemanda í
skóla í einkarekstri.
Skúli segist telja regluna sann-
gjarna, en hún tekur mið af há-
marksfjölda nemanda í
skólunum undanfarin tíu ár
að viðbættu tilteknu svig-
rúmi. Stutt er síðan borgin
gerði þjónustusamninga við
einkarekna skóla í borginni,
sem fela meðal annars í sér
þessi viðmið um hámarks-
fjölda.
Kjartan Magnússon, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, segist ekki sammála því
að hver nemandi í sjálfstætt
reknum skóla sé 600 þúsund
krónum dýrari fyrir Reykjavíkur-
borg en aðrir nemendur. „Mér hef-
ur að minnsta kosti ekki verið sýnt
fram á það,“ bætir hann við.
Í huga Kjartans er það valfrelsi
Segir hámarks kvóta í
einkaskóla furðulegan
til náms sem skiptir mestu máli
og hann segir kvótasetninguna
furðulega.
„Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins styðja fjölbreytileikann og
telja æskilegt að fólk hafi sem mest
val um skólagöngu barna sinna.
Skólar eru mismunandi, sem betur
fer, og það er ekkert að því að fólk
fái að velja þann skóla sem
það telur að henti sér best.
Ef skóli fær viðurkenningu
frá menntamálaráðherra og
þar til bærum aðilum, þá
eiga stjórnmálamenn ekki
að vera að skammta kvóta
sem eru auk þess mjög mis-
munandi milli skóla,“ segir
Kjartan sem er almennt and-
vígur reglunni.
Framsýn hefur verið um-
deildur í hafnfirskum stjórn-
málum. Áætlað var að skóla-
gjöld á hvern nemanda yrðu 200
þúsund krónur á ári en nemend-
ur munu hinsvegar fá sérstakan
kynningarafslátt af verðinu fyrstu
tvö árin.
Óhapp Margir undruðust
að heyra ekki rödd Fannars
Sveinssonar í morgun-
þættinum Góðan daginn
á Rás 2 í gærmorgun, en
Fannar varð fyrir því óhappi
á Kalda bar á fimmtudags-
kvöldið að detta út um
glugga með þeim afleiðing-
um að flytja þurfti hann á
spítala með sjúkrabíl.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
Fannar datt út um glugga á Kalda
bar, lenti á glerborði og endaði
fimmtudagskvöldið á spítala.
Við félagarnir vorum á árlegri „bjór-
göngu“, þar sem við heimsækjum
10 bari og fáum okkur einn bjór
á hverjum bar. Það er snemma á
þeirri göngu þegar við setjumst inn
á Kalda bar og ég sest á bekk inni á
staðnum sem er einskonar karmur
við glugga á staðnum. Næst þegar ég
veit af mér er ég bara kominn út á
stéttina fyrir neðan,“ segir Fannar.
Fallið er um 1,6 metra hátt. Fannar
datt á borð þar sem tvær stúlkur
sátu, og hringdi önnur þeirra strax
á sjúkrabíl.
Vinir Fannars héldu raunar að
um grín væri að ræða, enda Fannar
þekktur fyrir að vera snjall að gabba
vini sína á þennan hátt. „Þetta er
svolítill „Úlfur úlfur“. Þeir áttuðu
sig fyrst á að um alvöru væri að
ræða þegar ég var vaknaður úr rot-
inu, helgrænn í framan. Þeir héldu
ég hefði hent mér út um gluggann
og jafnvel fengið þessar tvær stelp-
ur með mér í grínið.“
Fannar var fluttur á bráðamót-
töku eftir að gengið var úr skugga
um að ekki hefði blætt inn á heila
hans eða hann hálsbrotnað. Á spít-
alanum voru saumuð nokkur spor
í höfuð hans og honum gefin fyrir-
mæli um að taka því rólega næstu
daga. Myndband af Fannari má sjá
á Fréttatíminn.is
Fannar flaug út um glugga
Nokkur styr hefur verið um stofnun Framsýnar sem tekur
inn um 60 nema í haust.
Skúli Helga-
son er formað-
ur skóla- og
frístundaráðs.
Esju-kláfur kynntur
á Kjalarnesi
Reykjavík Kynningarfundur
verður haldinn á Kjalarnesi í
haust um uppsetningu kláfs
upp hlíðar Esjunnar.
Þetta var samþykkt á fundi borg-
arráðs síðasta fimmtudag. Það er
fyrirtækið Esju ferja ehf. sem stend-
ur á bak við framkvæmdina og er
Arnþór Þórðarson verkfræðingur í
forsvari fyrir félagið.
Hugmyndin spratt fyrst fram
upp úr 2010 og er áætlað að fram-
kvæmdirnar muni kosta um 3 millj-
arða króna. Áætlað er að ferjan geti
flutt hundrað til hundrað og fimm-
tíu þúsund ferðamenn árlega upp
á Esjubrúnir.
Gert er ráð fyrir að neðri stöð
farþegaferjunnar verði í grennd
við bílastæði við botn Kollafjarðar,
miðjumastur hennar á Rauðhóli
og endastöðin á Esjubrún. Ekki er
búið að finna tímasetningu fyrir
fundinn. | vg
Samskonar kláfur og þessi mun fara
upp og niður hlíðar Esjunnar, ef allt
gengur eftir.
Langtíma
leigusamningur
Sveigjanleiki
24/7 þjónusta
almennaleigufelagid.is
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
SELESTE
UMGJÖRÐ Á:
1 kr.
við kaup á glerjum