Fréttatíminn - 13.08.2016, Blaðsíða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 13. ágúst 2016
Hvað er að því að þrífa klósett?
Borghildur Vilhjálmsdóttir
er yfirþerna á stærsta hóteli
Íslandshótelkeðjunnar,
Grand hóteli.
Hjá henni eru alla jafna 18 til 22
herbergisþernur að störfum á dag.
Allt útlendingar og aðeins þrír karl-
menn.
„Flestar koma þær frá Póllandi en
hjá okkur eru líka þernur frá Portú-
gal, Tælandi, Filippseyjum, Króatíu
og Gana. Það eru engar íslenskar í
þessu, þær sækjast ekki eftir svona
störfum.“
Hún segir alltaf einhverja starfs-
mannaveltu vera í þessum geira,
en þó sé stór hópur þernanna
með langan starfsaldur á hótelinu.
„Sumar hafa verið hér í meira en
fimm ár og aðrar hafa einhverja
ára reynslu. Ég held að þær hyggi
á áframhaldandi störf hjá okkur og
þær virðast ánægðar. Þetta er harð-
duglegt fólk og það er ekki sá hlutur
sem maður biður þær um að gera,
sem þær veigra sér við. Mér finnst
að það mætti alveg veita því meiri
athygli hvað þetta fólk vinnur mik-
ilvægt starf.“
Að sögn Borghildar eru kjör þern-
anna samkvæmt kjarasamningum
Eflingar og starfsfólk vinnur sér inn
24 sumarfrísdaga og tólf vetrarfrís-
daga. Það sé algjör skylda að taka út
fríið. „En ef þú spyrð þau um kjör, þá
vilja allir meira.“
Aðspurð um lýsingar þernanna á
því að starfið sé erfitt, svarar Borg-
hildur: „Þetta er kannski ekki erfið-
isvinna sem slík, en hún getur ver-
ið erfið á álagsdögum. Þá reynum
við að kalla út auka fólk. Það er heitt
að vinna svona inni. Þær eru meðal
annars að taka af rúmum og setja
á rúm og það er nú ekki það auð-
veldasta sem við gerum. Við reynum
líka að biðja þær um að skiptast á að
þrífa salerni og skipta á rúmum, svo
þær breyti til og séu ekki of mikið í
sömu stellingum.“
Hvernig koma gestir fram við her-
bergisþernur?
„Mjög vel, það eru allir gestir
ánægðir með stelpurnar. Við vorum
að fá niðurstöður úr könnun og þær
koma flott út. Bæði í framkomu og
standa sig vel í þrifunum.“
En er kannað hvernig gestirnir
koma fram við þernurnar?
„Nei, það hefur ekki verið gert.
En það væri mjög sniðugt og áhuga-
vert að skoða líka hvað þær hafa að
segja.“
Eru herbergisþrifin störf sem þessar
konur ætluðu sér að vinna við?
„Já, ég hef unnið í þessum bransa
í 20 ár, bæði í mannaráðningum og
þrifum hjá Hreint og ISS. Ég hef oft
hvatt gott starfsfólk til að fara að
læra íslensku svo það geti fengið
aðra vinnu en að skúra. En þá segja
þau bara nei. Þau eru ekkert óör-
ugg með þetta og vilja ekki breyta
neinu. Þeim finnst þetta bara ljóm-
andi gott.“
Er algengt að fólk sinni öðrum
störfum meðfram herbergisþernu-
starfi hjá ykkur? „Já allavega tvær
sem ég veit um. Ég gæti trúað því
að það væru heimaþrif. Voðalega
margir fara í heimaþrif ef það gefst
kostur á því.“
Ferðamanna-
straumurinn skilar
meiru í þjóðarbúið
en sjávarútvegur-
inn og áliðnaður-
inn. En það væri
enginn ferðaþjón-
usta nema ef allar
erlendu konurnar
kæmu ekki að þrífa
upp eftir hótel-
gesti. Nánast engir
Íslendingar taka
að sér þau störf.
Fréttatíminn ræddi
við nokkrar þeirra.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Ramphai Saikham er 54 ára og
flutti frá Tælandi til Íslands árið
1995.
Systir hennar hafði þá verið búsett hér á
landi í nokkur ár og skömmu síðar kom
bróðir þeirra líka til landsins.
Hún er í óða önn að ljúka við þrif á
tveimur hótelherbergjum, þegar Fréttatí-
mann ber að garði. Hádegishlé herbergis-
þernanna er að skella á og hún vill klára
það sem hún var byrjuð á, áður en hún
tekur sé pásu.
„Ég á stóra fjölskyldu hérna,“ seg-
ir Ramphai á meðan hún snarar hrein-
um rúmfötum um sængurnar. Börnin
hennar tvö hafa dvalið hér á landi, 34
ára dóttir hennar er hárgreiðslukona og
23 ára sonur hennar lærir nú nudd í Iðn-
skólanum.
Eftir komuna til landsins fékk Ramp-
hai fyrst starf við fiskflökun hjá Topp-
fiski og starfaði þar í nokkur ár. Því næst
vann hún hjá Osta- og smjörsölunni í
tæpan áratug og síðar í fimm ár á hjúkr-
unarheimilinu Eir. Undanfarin tvö ár hef-
ur hún verið herbergisþerna á Reykjavík
Natura.
Hvernig líkar þér vinnan sem herbergis-
þerna?
„Bara ágætlega. Þetta er mjög erfið
vinna, en vinna er bara vinna. Það er
gaman að vera saman. Hér erum við 5
tælenskar konur en langflestar eru frá
Póllandi. Svo eru nokkrar frá Víetnam
líka. Sumrin geta verið svolítið erfið því
þá eru margir gestir og mikið að gera.
Stundum eru veikindi meðal starfsfólks-
ins og þá eykst álagið á okkur.“
Ramphai segist ánægð á Íslandi og alla
sína tíð hafa unnið mikið. Hún kvartar
ekki undan vinnunni en viðurkennir að
hún taki á.
Ramphai hefur unnið láglaunastörf frá því hún kom til Íslands árið 1995. Hún talar góða
íslensku og er nú herbergisþerna á Reykjavík Natura hótelinu. Mynd | Halla
Vinna er bara vinna
„Ég kom til Íslands sem „au-
-pair“ fyrir þremur árum og
ílengdist,“ segir Erika Leue,
þýsk stúlka sem hefur dvalið
á Íslandi síðan og unnið í
hótelbransanum, aðallega við
ræstingar.
„Ég vann tvö sumur við að þrífa her-
bergi og sjá um morgunmatinn á Eg-
ilsstöðum. Það var mjög fínt starf því
hótelið var fjölskyldurekið og andinn
mjög góður. Allir voru eins og jafn-
ingjar í vinnunni, sama við hvað þeir
unnu á hótelinu, og jafnvel vinir. Eft-
ir það fór ég að vinna á Hótel Ion á
Nesjavöllum og reynslan þar var ekki
alveg jafn góð. Þar var ég að vinna
við þvotta, auk þrifa, og það var mun
erfiðara og meira líkamlegt álag.
Það var heldur ekki jafn persónu-
legt hótel og þú fannst meira fyrir
stéttaskiptingunni. Það var ekkert
samband á milli þeirra sem þrifu og
þeirra sem voru í öðrum störfum. Ég
vann mjög mikið þar, 12 tíma vakt-
ir sex daga vikunnar, en mér fannst
ég aldrei vera metin að verðleikum
fyrir störfin. Hótelið er töluvert fyr-
ir utan Reykjavík svo við þurftum
að fara á bíl klukkan sjö á morgn-
ana til að vera mætt klukkan átta og
vorum aldrei komin heim fyrr en í
fyrsta lagi níu á kvöldin, samt fær
maður bara borgað fyrir átta tíma
og stundum var veðrið svo vont að
við komumst ekki heim. Launin
voru líka allt of lág miðað við hversu
erfið vinnan var. Að þrífa hótel-
herbergi er erfið vinna. Þetta eru
langir vinnutímar og þú ert á fullu
allan tímann.“
„Langflestir sem vinna við þrifin
eru útlendingar en ég myndi held-
ur aldrei ráða Íslending til að þrífa,“
segir Erika og hlær. „Mín reynsla af
því að vinna með Íslendingum í þrif-
um er að þeir kunna ekki að þrífa
og gera alltaf eins lítið og mögulegt
er. Ég mundi ráða þá í eitthvað ann-
að. Pólverjar eru aftur á móti rosa-
legir vinnuþjarkar í hverju sem er,
gera alltaf sitt besta í öllu,“ segir Er-
ika sem vinnur nú í móttökunni á
Hótel Fróni og líkar það einstaklega
vel. „Ég er mjög glöð að vera komin
í móttökuna, þetta er draumavinn-
an mín.“
Íslendingar kunna
ekki að þrífa
„Að þrífa hótelherbergi er erfið vinna.
Þetta eru langir vinnutímar og þú ert á
fullu allan tímann,“ segir Erika. Mynd | Rut
Íslenskar konur sækjast
ekki eftir starfinu
Borghildur
hefur tuttugu
ára reynslu í
skúringabrans-
anum. Nú er
hún yfirþerna á
Grand hóteli.
37%
aukning á þeim sem
starfa í ferðaþjónustu
frá 2010
31%
af gjaldeyristekjum
koma úr ferðaþjónustu
13.320
herbergi á 394 hótelum
og gistiheimilum voru í
boði á landinu í júlí 2015.
35,2%
gistirýma landsins eru á
höfuðborgarsvæðinu.
57.600
fermetra byggingar-
magn fyrir nýja gisti- og
veitingastaði var sam-
þykkt í Reykjavík frá
2010-2015
Heimild: Ferðamálastofa