Fréttatíminn - 13.08.2016, Side 45
Ég er alltaf svolítið eftir á
þegar kemur að sjónvarps-
þáttum. Var að klára
Luther og finn hvað
ég hef saknað breskra
sakamálaþátta. Var
alinn upp við Taggart,
Morse og Wexford, sem
voru allir gamlir og klókir
karlar, en Luther er yngri,
myndarlegri og meira ólíkinda-
tól. Var hrifnastur af seríu 2 – þar
sem byrjað var að dreifa hverju
sakamáli yfir tvo þætti. Það leyfði
þessu að anda betur og byggja
upp meiri spennu.
Svo reyni ég auðvitað að
maula eitthvað með þessu.
Gráfíkjurnar eru að koma
sterkar inn, enda geng-
ur ekkert að moka
í sig eðlu og öðru
ungmennanasli yfir
breskum sakamála-
þáttum. Er eðlan
kannski löngu orðin
lummó? Hvað með það
að nota orðið lummó?
Er það ekki lengur móðins?
Allavega, þá mæli ég með Luther.
Ég mæli samt alls ekki með því að
fokka í Luther.
Sófakartaflan
Haukur Viðar Alfreðsson,
textasmiður með meiru.
Gráfíkjurnar sterkar með breskum sakamálaþáttum
Bourne mættur aftur
Sambíóin Jason Bourne
Nokkur ár eru liðin frá því Jason
Bourne lét sig hverfa eftir at-
burðina sem sagði frá í myndinni
The Bourne Ultimatum. Tímann
hefur hann notað til að fá minni
sitt aftur og nú er komið að því að
hann vill fá lokasvör frá þeim sem
þekkja fortíð hans betur.
Ver Valur titilinn?
Stöð 2 Sport laugardagur
klukkan 15.30 Valur – ÍBV
Úrslitaleikurinn í Borgunarbik-
ar karla í knattspyrnu. Valsmenn
munu gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að verja bikarmeist-
aratitilinn en Eyjamenn mæta
hungraðir til leiks. Eyjamenn hafa
slegið út stór lið á borð við FH
og Breiðablik, auk ÍA, en Valsarar
hafa farið þægilegri leið í úrslitin,
nú síðast gegn Selfyssingum í
undanúrslitum. Leikurinn hefst
klukkan 16 en útsending Stöðvar
2 Sport hálftíma fyrr ef fólk ætlar
ekki að mæta á völlinn.
Eldfjallið hans
Rúnars
RÚV sunnudag klukkan
21.40 Eldfjall
Verðlaunamynd Rúnars Rúnars-
sonar með Theodór Júlíussyni og
Margréti Helgu Jóhannsdóttur í
aðalhlutverkum. Eftirlaunamað-
urinn Hannes hjúkrar Önnu konu
sinni eftir að hún fær heilablóð-
fall. Um leið fær hann sjálfur
nægan tíma til að skoða sjálfan
sig og eigið líf og kemst að því
að það er aldrei of seint að taka
út þroska og laga það sem aflaga
hefur farið. Myndin var framlag
Íslendinga til Óskarsverðlauna og
hefur unnið til fjölda verðlauna á
kvikmyndahátíðum um allan heim.
Lokahnykkurinn í
frábærum spennu-
þáttum
RÚV mánudag klukkan
22.20 Aðferð
Lokaþáttur-
inn í sænsku
spennuþátta-
röðinni Modus
sem byggð á
bókinni Frukta
inte eftir
Anne Holt um
geðlækninn
og afbrota-
fræðinginn
Inger Johanne. Inger, ásamt ein-
hverfri dóttur sinni, dregst inn
í rannsókn á röð óhugnanlegra
morða.
Hef saknað breskra þátta Haukur Viðar Alfreðsson ólst upp við Taggart og Morse en
horfir nú á Luther. Mynd | Rut
Hvað
með það
að nota orðið
lummó? Er það
ekki lengur
móðins?
Eftir að bækurnar okkar Heilsuréttir fjölskyldunnar
og Nýir heilsuréttir komu út kom í ljós að fólk hefur
því miður ekki alltaf tíma til þess að elda næringar-
ríkan mat frá grunni eins og það vildi gera, m.a.
til þess að forðast aukaefni og of mikinn sykur.
Þannig að fljótlega varð okkar næsta verkefni að
búa til heilsurétti án aukaefna, viðbætts sykurs,
eins og maturinn væri í raun matreiddur í eld-
húsinu heima, en samt hægt að kaupa tilbúna
úti í búð. Nú eru komnir tveir nýir réttir frá okkur,
Grænmetispottréttur með viðbættu Omega-3
og Fiskibollur með viðbættu Omega-3. Bragðgóðir
réttir, fullir af þarflegum næringarefnum.
Bestu kveðjur, Berglind og Siggi.
…sjónvarp17 | amk… LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016