Fréttatíminn - 16.09.2016, Page 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. september 2016
Í skólanum, í skólanum er
skemmtilegt að vera. Sumir eru
sammála þessum söng og sumir
ekki, að minnsta kosti ekki alltaf.
Svo gæti farið að leiðindi í kennslu
stofunni heyrðu brátt sögunni til.
Það gæti farið svo að einn
daginn verði tölvutæknin nýtt
til að gera námið skemmtilegt,
það er að segja sjálfa kennsluna
og frammistöðu kennarans fyr
ir framan bekkinn, þegar hann
reynir að koma fróðleik og visku
aldanna ofan í nemendur sína og
víkka sjóndeildarhring þeirra.
Í Sichuan háskóla í Kína hefur
prófessorinn Wei Xiaouong verið
að þróa tækni sem gerir kennur
um kleift að fylgjast með því
hvernig nemendur hans fylgjast
með. Prófessorinn hefur komið
mörgum myndavélum vandlega
fyrir í kennslustofunni sem nema
áhuga í andlitum nemendanna.
Myndefnið er síðan sent í tölvu
þar sem hugbúnaður tekur við og
reiknar út þau áhrif sem kennslan
hefur á nemendurna. Reiknilíkön
in fylgjast með geðsveiflum nem
endanna og skynja hve spenntir
eða mæddir þeir eru yfir kennsl
unni og efninu sem kennarinn hef
ur fram að færa.
Í samtali við The Telegraph segir
Wei að þannig sé hægt að sjá hvað
það er í náminu sem grípur athygl
ina og hvað ekki. Fleiri kennarar í
kínverskum háskólum hafa feng
ið að prófa tæknina, en henni er
ætlað að bæta kennsluaðferðir og
hjálpa kennaranum að finna hvað
virkar og hvað ekki.
Auk hefðbundinna spurninga
um persónufrelsi og upplýsinga
öryggi kvikna líka spurningar um
hvaða kennslugreinar það eru sem
myndu falla á prófinu og eru of
þreytandi og leiðinlegar fyrir slík
vísindi, þær greinar sem einfald
lega er ekki viðbjargandi með slík
um mælingum og nýjustu tækni.
Svari því hver fyrir sig, kennarar
og nemendur. | gt
Aldrei aftur
leiðinlegt í skólanum
Það er gömul saga og ný að einhverjum leiðist í skólanum. Kannski mun það
breytast með nýjustu tækni. Mynd | Getty Images.
Í bálstofunni í Fossvogs-
kirkjugarði eru látnir
Íslendingar brenndir og
jarðneskum leyfum þeirra
komið fyrir í keri. Þorgrím-
ur Jörgensson er vanur að
vinna í kringum dauðann.
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
Hann hefur unnið á bálstofunni í eitt og hálft ár. Hann vildi reyna eitthvað nýtt en þar á undan vann hann í
sautján ár við að viðhalda minnis
merkjum í kirkjugarðinum.
Eins og hver önnur vinna
Mörgum gæti þótt erfitt að vinna
við að brenna ættingja og vini
íslend inga en Þorgrímur segir
þetta vera eins og hverja aðra
vinnu: „Í upphafi, fyrir næstum
því 18 árum, þá fannst mér sér
staklega óhugnanlegt að fara í lík
húsið. Við byrjuðum sex á morgn
ana í kolsvarta myrkri. Þessi mál
eru öll erfið, allt í kringum dauð
ann. Ég tala til dæmis miklu meira
um númer en nöfn af því að ég vil
ekki vera að persónugera vinnuna.
Mér finnst ég bara vera þjónusta
aðstandendur sem hafa misst
náinn ættingja og þetta er bara
eins og hvert annað starf. Þetta er
bara svipað að vera starfs maður
útfararstofu. Það var mjög gott að
vera búinn að vinna í garðinum
áður en ég fór að vinna á bál
stofunni, þá var ég búinn að aðlag
ast öllu saman í rólegheitum.“
Undirbúningur brennslu
Þorgrímur segir að það sé ákveðin
forvinna fyrir hvern dag: „Við
brennum alla þriðjudaga, sem
dæmi. Þá þarf að gera allt klárt.
Við þurfum að undirbúa kisturn
ar sem á að brenna þann daginn,
kveikja á ofninum, vera viss um að
það sé allt klárt þegar við mætum
klukkan 7 á morgnana. Svo bara
byrjum við og allt fer á fullt.“
Starfið ekki fyrir alla
„Það eru menn sem hafa unnið í
kringum kirkjuna sem hafa hætt
snögglega en mig minnir að það
hafi ekki gerst í bálstofunni. Sumir
sjá strax að þetta er ekki fyrir þá.
Ef þú ferð að taka þetta með þér
heim og þú ferð að velta þér upp
úr þessu öll kvöld þá er þetta ekki
fyrir þig. Ég geri mér fulla grein
fyrir því að þetta er ekki starf fyr
ir alla, bara eins og mörg önnur
störf. Ég væri til dæmis ekki til í að
vera lögreglumaður, að þurfa að
fara inn á heimili og sjá fólk slást
væri ekkert fyrir mig.“
Eðlilegt að ræða dauðann
„Í minni æsku var dauðinn aldrei
ræddur og eiginlega ekki til á
heimilinu og það var þannig hjá
mörgum. Þess vegna er alveg
heil mikið mál hjá mörgum að
sjá kistu. Það er eðlilegt að ræða
dauðann, við deyjum öll einhvern
tímann, það er enginn með eilíft
líf. Maður á ekki að vera feiminn
við að ræða svona mál, þetta er
bara gangur lífsins“ segir Þorgrím
ur um hring rás lífsins.
Dauðinn er gangur
lífsins í bálstofunni
Þorgrímur fyrir framan ofninn. Mynd | Rut.
Í minni æsku var
dauðinn aldrei ræddur
og eiginlega ekki til á
heimilinu og það var
þannig hjá mörgum.
Allt á fullu við að setja duft í ker. Mynd | Rut
Harpa er í þægindaramman
um sínum þegar hún spjallar við
kúnnana enda finnst henni það
vera mjög stór hluti af starfinu:
„Ég tala eiginlega of mikið. En svo
les maður í það ef konurnar vilja
ekki spjalla, þá taka þær bara upp
blaðið og byrja að fletta eða að ég
fæ stutt svör frá þeim. Svo er mað
ur oft líka spurður sömu spurn
inga til baka. Kannski ekki hvað
ég er að gera, en um fjölskyldu
hagi og börnin mín,“ segir Harpa
og hlær.
Það loðir oft við hágreiðslufólk
að vita margt um líf kúnnanna
sinna: „Maður veit oft meira en
maður hefði hugsað sér í byrjun.
Ég veit til dæmis oft ef einhver
er óléttur í stólnum. Ég veit það
oft á undan ættingjum því þær
missa það út úr sér þegar ég er að
fara lita þær. Ég veit líka oft hvað
þær eru að fara að gefa mönnun
um sínum í jólagjöf og hvað þeir
eru að fara gefa konum sínum í
afmælisgjöf.“
„Það skemmtilegasta við
vinnuna er þetta félagslega, auð
vitað líka að lita og klippa. Ég er
að klippa manneskju sem vinnur
í heilbrigðiskerfinu og er hátt sett
þar og er oft að forvitnast hvernig
gengur að manna og hvað er langt
komið að byggja nýjan spítala. Ég
er ekki mikið að hlusta á fréttir
allan daginn þannig ég læri rosa
lega mikið af kúnnanum, þetta
er hálfgerð fréttaveita. Fólk er oft
hissa hvað ég man langt aftur í tí
mann, ég bara man allt.“ | hdó
Veit á undan ættingjum þegar einhver er ólétt
Harpa að ræða við kúnna um daginn
og veginn. Mynd | Rut
Þegar kemur að því að panta
sér klippingu koma oft upp
í hugann allar samræð-
urnar sem hafa farið fram
í stólnum á hárgreiðslu-
stofunni. Harpa Ómars-
dóttir er hárgreiðslukona á
Hárakademíunni og á það
til að spjalla aðeins of mikið
við kúnnann.
Hér fara kisturnar inn í ofninn. Mynd | Rut