Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 21.10.2016, Blaðsíða 1

Fréttatíminn - 21.10.2016, Blaðsíða 1
Fréttatíminn og Reykjavík Media birta upplýsingar um íslensk sjávarútvegsfyrirtæki í Panamagögnunum. Íslendingar áttu heimsmet í notkun skattaskjólsfélaga hjá Mossack Fonseca og útgerðarfélög og útflutningsfyrirtæki í sjávarút- vegi voru ekki undanskilin. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Jóhannes Kr. Kristjánsson johanneskr@rme.is „Prentaðu bara blaðið þitt. Ég hef ekkert að fela,“ segir í svari í tölvu- pósti frá Sigurði Gísla Björnssyni, eiganda fiskútflutningsfyrirtækisins Sæmarks, þegar hann er spurður um hvernig hann útskýri viðskipti aflandsfélagsins Freezing Point Corp sem hann stofnaði í Panama árið 2009 og hefur prókúruumboð fyrir. Panamafélagið hefur tekið við umboðsgreiðslum upp á tugi milljóna króna frá kýpversku fyrirtæki sem stýrt er af Ís- lendingi sem heitir Sveinn Helga- son. Sæmark er stórt fiskút- flutningsfyrirtæki sem var með nærri níu milljarða króna tekjur í fyrra. Sigurð- ur Gísli vill ekki veita frekari upplýsingar um starfsemi fé- lagsins þar sem hann er í fríi erlendis. Þetta er meðal þess sem kemur fram í úttekt Fréttatímans og Reykjavík Media ehf. á íslensk- um útgerðar- og sjávarútvegsfyrir- tækjum sem eru í Panamaskjölun- um, gögnunum sem lekið var frá panamísku lögfræðiskrifstofunni Mossack Fonseca. Eitt af því sem vekur athygli í gögnunum er hversu mörg fiskút- flutningsfyrirtæki, eða eigendur þeirra, tengjast félögum í skatta- skjólsgögnunum. Auk Sæmarks átti fiskútflutningsfyrirtækið Godthaab á Nöf í Vestmannaeyjum hlut í fé- lagi í skattaskjóli, eigendur Hafnar- fells í Hafnarfirði sömuleiðis sem og Theódór Guðbergsson, fiskverkandi í Garði á Reykjanesi. Að íslensk fiskútflutningsfyrir- tæki, eða eigendur þeirra, geymi fé erlendis sem rekja má til umboðs- launa hefur tíðkast lengi þó notk- un skattaskjólsfélaga sé nýrri af nál- inni. Þekktasta dæmið um slíkt er líklega Richard Thors, einn af son- um Thors Jensen og stjórnandi út- gerðarfélagsins Kveldúlfs, sem átti leynilega eignarhluti í erlendum fyr- irtækjum sem keyptu fisk af íslensk- um fyrirtækjum og þáði frá þeim umboðslaun á fyrri helmingi síð- ustu aldar. Í bók Guðmundar Magn- ússonar um Thors-fjölskylduna frá 2005 sagði að slík umboðslaun hafi „aldrei“ verið talin fram til skatts á Íslandi. Guðmundur taldi þessa við- skiptahætti nánast eðlilega á þess- um tíma og sagði. „Þetta var hefð sem Richard tók í arf frá eldri kyn- slóðum íslenskra kaupsýslumanna.“ frettatiminn.is ritstjorn@frettatiminn.is auglysingar@frettatiminn.is 66. tölublað 7. árgangur Föstudagur 21.10.2016 Salsadrottning verður drama- drottning Edna Lupida segir martröð að aðlagast Íslandi 24 34 4 38 KRINGLUNNI ISTORE.IS Enn lægra verð iStore Kringlunni er viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili DJI á Íslandi Sérverslun með Apple vörur Hausttilboð á Phantom 4. Frá 179.900 kr. Forpöntun á Mavic Pro han á iStore.is Mynd | Rut Íslenskur fiskútflytjandi fékk tugmilljóna greiðslur til aflandsfélags Úttekt 8 Framsókn í fjárhagskröggum Fylgistap eykur vandann Greg Sestero kemur til Íslands Lék í verstu kvikmynd allra tíma PEYSUR PONCHO BELTI SMÁRALIND HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ? Margrét Gnarr snýr aftur amk fylgir Fréttatímanum Töltarinn Skuggi verður listmálari Fátækt er pólitísk ákvörðun Hildur Oddsdóttir segir sárt að þiggja matargjöf í fyrsta sinn Sjávarútvegsfyrirtækin í Panamaskjölunum 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.