Fréttatíminn - 21.10.2016, Qupperneq 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 21. október 2016
Viðskipti Færeyski fjárfestirinn
Jákup á Dul byggði Korputorg
á árunum fyrir hrunið 2008.
Tveir starfsmenn fyrirtækis
hans keyptu verslanamiðstöð-
ina á rúma fjóra milljarða 2013
og seldu fyrirtækinu húsið svo
aftur fyrir skömmu. Annar
starfsmaðurinn neitar að gefa
upplýsingar um málið. Óþekkt-
ur erlendur sjóður, sem Jákup
stýrir, seldi Guðbjörgu Matthí-
asdóttur verslanamiðstöðina nú
í október.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Tveir starfsmenn fyrirtækisins SMI
ehf., sem átti verslanamiðstöðina
Korputorg í Mosfellsbæ í gegnum
dótturfélagið Stekkjabrekkur ehf.,
keyptu hana af fyrirtækinu í árslok
2013 í gegnum tvö eignarhaldsfélög.
Starfsmennirnir, María Rúnarsdótt-
ir fjármálastjóri og Davíð Freyr Al-
bertsson framkvæmdastjóri, seldu
fyrirtækinu verslanamiðstöðina svo
aftur fyrir skömmu. Verslanamið-
stöðin hefur nú verið seld til fyrir-
tækis Guðbjargar Matthíasdóttur,
ÍSAM ehf, fyrir ótilgreint verð.
Byggingin fór því frá SMI ehf. til
eignarhaldsfélaga Maríu og Davíðs
Freys og aftur til SMI ehf. SMI er nú
í eigu lítt þekkts erlends sjóðs sem
heitir Calabry Trust og engar upplýs-
ingar finnast um.
María Rúnarsdóttir, sem var í átj-
ánda sæti yfir hæstu skattgreiðend-
ur á Íslandi árið 2014, segir í samtali
við Fréttatímann að það sé ekkert
að þessum viðskiptum. „Við seldum
þetta til SMI.“ En hvernig eignuðust
þau María og Davíð Freyr hús fyr-
irtækis sem þau voru að vinna hjá?
„Við bara keyptum húsið í viðskipt-
um.“ María segir að þau Davíð hafi
hætt að starfa hjá SMI um áramótin
2013-2014 en félög þeirra, Finkuþing
ehf. og Spóaþing ehf., keyptu húsið
af SMI ehf. þá í desember. Þau undir-
rituðu afsalið vegna kaupanna bæði
sem seljendur og kaupendur. „Við
ætlum ekki að tjá okkur um málið.
Þetta eru bara prívat upplýsingar.
Það eru allir sáttir við málið annars
væri eitthvað í gangi.“ Samkvæmt
þinglýstum gögnum hjá Ríkisskatt-
stjóra var prókúrumboð Davíð Freys
yfir SMI ehf. hins vegar ekki aftur-
kallað fyrr en í mars árið 2015 og á
sama tíma hætti hann að vera fram-
kvæmdastjóri félagsins.
Korputorg var byggt af færeyska
fjárfestinum Jákup á Dul Jacobsen,
sem líklegast er þekktastur fyrir að
hafa stofnað Rúmfatalagerinn, fyrir
hrunið árið 2008 og átti hann það
í gegnum SMI ehf. Eftir efnahags-
hrunið skuldaði hann íslenskum
bönkum rúmlega 96 milljarða króna
og lá ljóst fyrir að hann myndi missa
margar af helstu eignum sínum.
Korputorg var stundum uppnefnt
„Krepputorg“ eftir hrunið 2008 þar
sem það þótti vera tákn um hrunið.
Í viðtali við DV árið 2011 tjáði Davíð
Freyr sig um skuldauppgjör Jákups
en hann var þá framkvæmdastjóri
SMI. „Félagið hefur verið að vinna
með sínum lánardrottnum en
þeirri vinnu er ekki lokið. Það er
ekki í okkar valdi að ákveða hvernig
þessu lyktar heldur eru það bank-
arnir sem stýra því.“ Davíð eignað-
ist svo sjálfur eina af helstu eignum
Færeyingsins.
María neitar að tjá sig um kaup-
verðið á húsinu árið 2013 og eins
á hvað þau seldu húsið til SMI ehf.
„Öllum hluthöfum og þeim sem
komu að málinu var þetta fyllilega
ljóst og það var ekkert óeðlilegt við
þetta.“ Samkvæmt ársreikningi fé-
lagsins sem átti Korputorg og seldi
það til félaga Maríu og Davíðs Freys
nam kaupverðið rúmlega 4.3 millj-
örðum króna. Í ársreikningnum seg-
ir að kaupendur hússins hafi verið
tengdir aðilar: „Fjárfestingareign
félagsins var seld á árinu til félags í
eigu tengdra aðila.“ Í ársreikningn-
um kemur fram skuld við tengda að-
ila upp á 4.8 milljarða króna.
María neitar líka að gefa upp
hvenær þau seldu húsið aftur til
SMI. „Nei. Mér er það óheimilt.“ Í
síðasta mánuði fóru þau María og
Davíð Freyr hins vegar úr stjórn
Korputorgs ehf. og Jákup á Dul sett-
ist í hana ásamt lögmanninum Við-
ari Lúðvíkssyni. Þetta kemur fram í
þinglýstu skjali hjá Ríkisskattstjóra
frá því í september 2016. Miðað við
þetta þá hafa þau María og Davíð
Freyr selt félagið til SMI ehf. fyrir
skömmu og SMI seldi húsið strax
aftur til Guðbjargar.
Ekki náðist í Jákup við vinnslu
fréttarinnar en hann er búsettur í
Sjanghæ í Kína.
Viðskiptin með Korputorg, sem Jákup á Dul Jacobsen byggði, síðastliðin ár eru
vægast sagt sérstök.
Skuldir Jakúps á Dul og 15 félaga sem
tengjast honum í þúsundum milljóna
Kaupþing 57.880
Landsbankinn 38.613
Samtals 96.493
Heimild: skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis
Beggja vegna borðsins
í milljarða viðskiptum
með Korputorg
Tveir starfsmenn Jákups á Dul keyptu verslunarmiðstöðina Korputorg af honum og seldu honum aftur. Mynd | Rut
Starfsmanni Korpukots var vikið úr
starfi í síðustu viku.
Vikið frá mánuði eftir ásakanir um ofbeldi
Sakamál Starfsmanni Korpu-
kots, sem hefur verið sakaður
um að beita stúlku á þriðja
aldursári ofbeldi, hefur verið
vikið úr starfi, rúmum mánuði
eftir að atvikið var tilkynnt til
leikskólastjórans. Sviðsstjóri
Skóla- og frístundasviðs segir
málið ekki komið formlega inn
á sitt borð.
Það var í síðustu viku sem starfs-
manninum mun hafa verið vikið
úr starfi á meðan á rannsókn
stendur, samkvæmt upplýsingum
sem Fréttatíminn hefur fengið frá
foreldrum á leikskólanum. Eins og
Fréttatíminn greindi frá í síðustu
viku liggur starfsmaðurinn undir
grun um að hafa beitt stúlkuna
ofbeldi í lok ágúst. Móðir barnsins
sagði í viðtali við Fréttatímann að
hún hefði ætlað að baða stúlkuna
þegar hún sá áverka, meðal annars
klipför, á læri og rassi barnsins.
Móðirin óskaði eftir samtali við
leikskólastjórann og mun meðal
annars hafa sýnt henni mynd af
áverkanum. Hún segir leikskóla-
stjórann þá hafa upplýst sig um
það að málið yrði rannsakað, og
að samkvæmt verklagsreglum yrði
starfsmanninum vikið úr starfi á
meðan á rannsókn stæði, en það
gerðist þó ekki.
Á sama tíma var málið tilkynnt
til Barnaverndarnefndar en þaðan
var málinu vísað til ofbeldisdeild-
ar lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu þar sem það er nú til
rannsóknar.
Athygli vekur að í bréfi, sem
leikskólastjóri sendi á alla for-
eldra í byrjun síðustu viku, var
því haldið fram að rannsókn hefði
farið fram og að niðurstaðan hefði
verið sú að ásakanirnar væru til-
hæfulausar.
Helgi Grímsson, sviðsstjóri
Skóla- og frístundasviðs, segir í
skriflegum samskiptum við Frétta-
tímann, að málið hafi ekki komið
formlega inn á þeirra borð frá
barnavernd, lögreglu eða foreldr-
um barnsins.
Spurður hvort það sé ekki baga-
legt í ljósi þess að ráðið á að heita
eftirlitsaðili með einkareknum
skólum borgarinnar, svaraði Helgi:
„Þarna liggur hundurinn
grafinn – við vitum ekkert um mál-
ið, hvort það sé alvarlegt eða ekki,
þar sem að okkur hafa ekki borist
neinar tilkynningar eða formlegar
upplýsingar um það!“ | vg
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
A F S L ÁT T U R
25-50%
EKKI MISSA AF ÞESSU
R ÝM I N G A R S A L A
STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR, O.FL.
RÝMUM FYRIR
NÝJUM VÖRUM
Seljum í stuttan tíma eldri
gerðir af rúmum og öðrum
vörum með veglegum afslætti.
Við erum að taka inn mikið magn af nýjum
vörum og rýmum til með því
að selja eldri gerðir og
sýningareintök
með góðum
afslætti.
H E I L S U R Ú M O G R Ú M G A F L A R S V E F N S Ó FA R
LÝ
KU
R
Á
MO
RG
UN
LA
UG
AR
DA
G