Fréttatíminn - 21.10.2016, Blaðsíða 8
551 1200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 22/10 kl. 19:30 19.sýn Fim 3/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 12/11 kl. 19:30 23.sýn
Mið 26/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 5/11 kl. 19:30 21.sýn Fim 17/11 kl. 19:30 24.sýn
Sun 30/10 kl. 19:30 17.sýn Fös 11/11 kl. 19:30 22.sýn Fös 18/11 kl. 19:30 25.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 22/10 kl. 19:30 15.sýn Lau 5/11 kl. 19:30 19.sýn Lau 12/11 kl. 19:30 23.sýn
Sun 23/10 kl. 19:30 16.sýn Sun 6/11 kl. 19:30 20.sýn Fim 17/11 kl. 19:30 24.sýn
Fös 28/10 kl. 19:30 17.sýn Fim 10/11 kl. 19:30 21.sýn Lau 19/11 kl. 19:30 25.sýn
Sun 30/10 kl. 19:30 18.sýn Fös 11/11 kl. 19:30 22.sýn Sun 20/11 kl. 19:30 26.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Horft frá brúnni (Stóra sviðið)
Sun 23/10 kl. 19:30 7.sýn Fim 10/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 25/11 kl. 19:30 13.sýn
Fös 28/10 kl. 19:30 8.sýn Lau 19/11 kl. 19:30 11.sýn Sun 4/12 kl. 19:30 14.sýn
Sun 6/11 kl. 19:30 9.sýn Sun 20/11 kl. 19:30 12.sýn
Eitt magnaðasta leikverk 20. aldarinnar
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 22/10 kl. 13:00 Lau 5/11 kl. 13:00 Lau 19/11 kl. 13:00
Lau 22/10 kl. 15:00 Lau 5/11 kl. 15:00 Lau 19/11 kl. 15:00
Lau 29/10 kl. 13:00 Lau 12/11 kl. 13:00
Lau 29/10 kl. 15:00 Lau 12/11 kl. 15:00
Sýningum lýkur í nóvember!
Ég vil frekar að Goya haldi fyrir mér vöku en einhver
djöfulsins fáviti (Kúlan)
Fös 21/10 kl. 19:30 3.sýn Fim 27/10 kl. 19:30 4.sýn Lau 29/10 kl. 19:30 5.sýn
Frumlegt og ögrandi samtímaverk
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Fös 21/10 kl. 20:00 Fös 28/10 kl. 20:00 Lau 5/11 kl. 20:00
Mið 26/10 kl. 20:00 Mið 2/11 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Yfir til þín - Spaugstofan (Stóra sviðið)
Fös 21/10 kl. 19:30 28.sýn Lau 29/10 kl. 20:00 30.sýn Fös 4/11 kl. 19:30 31.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Lofthræddi örnin Örvar (Kúlan)
Lau 19/11 kl. 15:00 Lau 26/11 kl. 13:00 Lau 26/11 kl. 15:00
Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki.
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 26/11 kl. 11:00 Sun 27/11 kl. 13:00 Sun 4/12 kl. 11:00
Lau 26/11 kl. 13:00 Lau 3/12 kl. 11:00 Sun 4/12 kl. 13:00
Sun 27/11 kl. 11:00 Lau 3/12 kl. 13:00
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð.
8 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 21. október 2016
PANAMASKJÖLIN: ÍSLENSKUR
FISKÚTFLYTJANDI FÉKK TUGMILLJÓNA
GREIÐSLUR TIL AFLANDSFÉLAGS
Fréttatíminn og Reykjavík Media
ehf. birta umfjöllun um íslensk
sjávarútvegsfyrirtæki og útgerðarmenn
í Panamaskjölunum. Sjólafjölskyldan í
Hafnarfirði seldi útgerð í Afríku í gegnum
Tortólu. Eigendur fiskútflutningsfyrirtækja
eru áberandi á listanum. Landsbankinn
í Lúxemborg hélt félögum í
skattaskjólum að viðskiptavinum sínum.
Útgerðarmaðurinn. Jakob Valgeir Flosason
kannast ekki við aflandsfélag í Panama
sem lögmannsstofan Mossack Fonseca
tengdi við hann.
„Það er engin ástæða til að ég ræði
það við þig,“ segir Ellert Vigfússon,
fjárfestir og fiskútflytjandi sem í
gegnum árin hefur átt í fyrirtækj-
um eins og Icelandic Group og Sjó-
vík, aðspurður um aflandsfélög í
skattaskjólum sem tengjast honum
og koma fram í Panamaskjölun-
um svokölluðu frá lögmannsstof-
unni Mossack Fonseca. Ellert spyr
fyrst að því að hvernig hann tengist
Panamaskjölunum – „Hvað hefur
það með mig að gera?“ – þegar hann
er spurður að því hvort hann hafi
séð umfjöllum fjölmiðla um skatta-
skjólsgögnin á þessu ári. Þegar
hann er spurður um eitt af félögun-
um, Elite Seafoods Panama Corp,
sem stofnað var í ágúst árið 2012,
bregst hann hins vegar við með því
að segja að hann telji ástæðulaust
að ræða um félagið við blaðamann.
Félög Eggerts í Panamaskjölun-
um – hin heita Norys Capital Ltd.
og Becot Holding S.A. – eru einung-
is þrjú af fyrirtækjunum í gögnum
Mossack Fonseca sem tengjast ís-
lenskum sjávarútvegi með bein-
um eða óbeinum hætti. Ellert,
sem fæddur er árið 1955, hefur
verið umfangsmikill í fiskútflutn-
ingi í gegnum árin og var meðal
annars forstjóri Icelandic Group í
Bandaríkjunum og Asíu. Af íslensk-
um aðilum tengdum sjávarútvegi
er Ellert einna umsvifamestur í
Panamaskjölunum. Eitt af aflands-
félögum Eggerts, Norys Capital,
fékk til dæmis lánaðar 850 milljón-
ir króna frá Landsbankanum í Lúx-
emborg árið 2002.
Heimsmet Íslendinga
Í Panamagögnunum er meðal
annars að finna útgerðarmenn,
fiskútflytjendur, skipasala og einn
fisksala á Íslandi. Fréttatíminn fjall-
ar hér um þessi félög í samvinnu
við fjölmiðlafyrirtækið Reykjavík
Media ehf. sem eitt íslenska fjöl-
miðlafyrirtækja hefur aðgang að
gögnunum frá Mossack Fonseca.
Panamagögnin urðu fjölmiðlaefni
fyrr á árinu og var fjallað um þau í
miðlum um allan heim í vor. Birting
gagnanna leiddi meðal annars til
afsagnar Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar sem forsætisráðherra
eftir að upp komst að hann hefði
átt hlut í félaginu Wintris á Tortólu
sem átti eignir upp á hundruð millj-
óna króna.
Ekkert land í heiminum átti eins
marga fulltrúa í Panamagögnun-
um og Ísland, miðað við höfðatölu.
Sem dæmi má nefna að um 600
Íslendingar koma fyrir í gögnun-
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Árni Stefán Björnsson
Fjárfestir og eigandi smábátaútgerðarinn-
ar Rakkanes ehf.
Aflandsfélag: Ocean Wealth Capital á
Tortólu, Arctic Circle Invest S.A. á Tortólu
Berglind Björk Jónsdóttir
Eigandi Sjólaskipa
Aflandsfélag: Stenton Consulting S.A. á
Tortólu
Björgvin Kjartansson
Eigandi fiskverkunar- og útflutningsfyrir-
tækisins Hamrafells í Hafnarfirði
Aflandsfélag: World Wide Seafoos and
Trading Consulting á Tortólu
Ellert Vigfússon
Eigandi og framkvæmdastjóri hjá fiskút-
flutningsfryrirtækinu Icelandic Group og
Sjóvík
Aflandsfélag: Elite Seafood Panama Corp
í Panama, Sorell Holding Promotion Ltd. á
Tortólu, Norys Capital Ltd. Becot Holding
S.A.
Goodthaab í Nöf ehf.
Fiskútflutningsfyrirtæki í Vestmannaeyjum
Aflandsfélag: Hluthafi í Arctic Circle In-
vest á Tortólu í gegnum félagið Nafarfoss
ehf.
Guðmundur Jónsson
Eigandi Sjólaskipa
Aflandsfélag: Champo Consulting Limited
á Tortólu og Sarin Systems Ltd. á Tortóla
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson
Fjárfestir og stjórnarformaður Ísfélagsins í
Vestmannaeyjum
Aflandsfélag: Tantami Venture og Tetris
Estate á Tortólu
Gunnlaugur Konráðsson
Hrefnuveiðimaður
Aflandsfélag: Maser Shipping Ltd. á
Tortólu, Arctic Circle Invest á Tortólu
Haraldur Jónsson
Eigandi Sjólaskipa
Aflandsfélag: Sarin Systems Ltd. á Tortóla
Jakob Valgeir Flosason
Útgerðarmaður hjá Jakobi Valgeiri í
Bolungarvík
Aflandsfélag: Tengdur við Aragon Partners
Inc. í Panama
Jón Guðmundsson
Eigandi Sjólaskipa
Aflandsfélag: Sarin Systems Ltd. á Tortólu
Kristján Berg Ásgeirsson
Fyrrverandi eigandi Fiskbúðarinnar Varar
og núverandi eigandi Fiskikóngsins
Aflandsfélag: Solberg Group Ltd. á
Seychelles
Kristján Vilhelmsson
Hluthafi og útgerðarstjóri Samherja
Aflandsfélag: Hornblow Continental Corp
á Tortólu
Laufey Sigurþórsdóttir
Eigandi fiskverskunar- og útflutningsfyrir-
tækisins Hamrafells í Hafnarfirði
Aflandsfélag: World Wide Seafood and
Trading Consulting a Tortólu
Marinella R. Haraldsdóttir
Eigandi Sjólaskipa
Aflandsfélag: Sarin Systems Ltd. á Tortóla
Ragnheiður Jóna Jónsdóttir
Eigandi Sjólaskipa
Aflandsfélag: Aurora Contintenal Limited
á Tortóla
Sigurður Gísli Björnsson
Eigandi fiskútflutningsfyrirtækisins
Sæmarks
Aflandsfélag: Freezing Point Corp í
Panama
Theódór Guðbergsson
Fiskverkandi og skipasali í Garði á
Reykjanesi
Aflandsfélag: Huskon International Inc. í
Panama, Arctic Circle Invest á Tortólu
Valborg María Stefánsdóttir
Eiginkona Gunnlaugs Kristinssonar
Aflandsfélag: Maser Shipping Ltd. á
Tortólu
Þorsteinn Vilhelmsson
Fjárfestir og einn stofnandi Samherja
Aflandsfélag: Viðskipti við Cliffs Invest-
ments S.A. á Tortólu
Örn Erlingsson
Eigandi útgerðarfyrirtækjanna Unga ehf.
og Sólbakka
Aflandsfélag: Eigandi Arctic Circle Corp
í Panama
Einstaklingar og fyrirtæki
tengd sjávarútvegi og fisksölu
í Panamaskjölunum
um, 500 Svíar, jafnvel þó þrjátíu
sinnum fleiri búi í Svíþjóð en á Ís-
landi, og einungis 200 Norðmenn.
Íslendingar eiga því einnig Norður-
landamet í fjölda einstaklinga og
fyrirtækja í gögnunum.
Eins og Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri og Ingvar J. Rögn-
valdsson vararíkissaksóknari bentu
á í leiðara í Tíund, rits embættisins,
nú í maí: „Íslendingar voru þannig
ekki aðeins mestir og bestir í við-
skiptum eins og haldið var fram
þegar útrásin stóð sem hæst, með
styrkum stuðningi ólíklegasta fólks,
heldur virðist Ísland stefna í að setja
heimsmet í hlutfallslegri þátttöku
landsmanna í því alþjóðarugli sem
aflandsheimurinn hefur að geyma.“
Notkun á af landsfélögum var
þannig ótrúlega útbreidd á Íslandi.
Tekið skal fram að gögnin
koma bara frá einni lög-
mannsstofu og að miklu
f leiri lögmannstofur
buðu upp á sambæri-
lega aflandsþjónustu
og Mossack Fonseca.
Gögnin gefa því alls
ekki tæmandi mynd af umsvifum
Íslendinga í skattaskjólum á árun-
um fyrir hrunið 2008 og eftir það.
Fyrirtæki á Kýpur hafa til dæm-
is veitt aflandsþjónustu sem verið
hefur vinsæl hjá íslenskum fjár-
Kristján Vilhelmsson er þekktasti út-
gerðarmaðurinn og sá umsvifamesti í
Panamaskjölunum. Hann tengist einu
félagi í skjölunum en ekki liggur fyrir
hvað þetta félag gerði nákvæmlega.
Jóhannes Kr. Kristjánsson
johanneskr@rme.is