Fréttatíminn - 21.10.2016, Qupperneq 10
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
Allt sem þeim áður fannst
alltaf svo gaman
var horfið og farið
þó færum við saman
því alltaf þau voru með álið í framan.
Krakkarnir á Bakka verða himinlifandi
þegar fjörugur hvolpur leynist í jóla-
pakkanum. En um næstu jól eru gjafirnar
enn meira spennandi svo að hundurinn
gleymist. Þá þarf hann að grípa til
sinna ráða!
ENGINN SÁ HUNDINN
er skemmtileg saga í
bundnu máli sem foreldrar
og börn munu njóta að lesa
saman aftur og aftur.
VÍSUR
EFTIR BJARKA
KARLSSON
BARNABÆKUR VIKA 41
10 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 21. október 2016
festum og eins útgerðarfélögum,
meðal annars Samherja sem átti út-
gerð sína í Afríku í gegnum Kýpur á
árunum 2007 til 2013.
Gögnin um aflandsfélög einstak-
linga og fyrirtækja í sjávarútvegi
sýna líka að notkun þeirra hætti alls
ekki í efnahagshruninu þar mörg
gagnanna eru frá tímabilinu 2010
til 2014.
Gefa út tug milljóna reikninga
Eitt af því sem vekur athygli í gögn-
unum er hversu margir fiskút-
flytjendur eru þar. Auk Ellerts og
félaga hans eru umfangsmikil við-
skipti aflandsfélaga í eigu fram-
kvæmdastjóra fiskútflutningsfyrir-
tækisins Sæmarks, Sigurðar Gísla
Björnssonar. Sæmark er stórt fisk-
útf lutningsfyrirtæki sem meðal
annars var með rúmlega 8.8 millj-
arða króna tekjur í fyrra og skilaði
rúmlega 55 milljóna króna hagn-
aði og stefndi á 25 milljóna króna
arðgreiðslu. Aflandsfélag Sigurðar
Gísla heitir Freezing Point Corp og
var stofnað í Panama árið 2009.
Í Panamagögnunum er að finna
reikninga gefna út af Freezing Point
Corp upp á tæplega 300 þúsund og
rúmlega 300 hundruð þúsund evr-
ur, tæpar 40 milljóna króna á gengi
dagsins í dag. Reikningarnir, sem
eru frá árunum 2010 og 2011, eru
stílaðir á fyrirtæki í Níkósíu á Kýpur
sem heitir AMIH Limited en stjórn-
andi þess fyrirtækis er Íslending-
ur sem heitir Sveinn Helgason. Á
reikningunum kemur fram að um
sé að ræða umboðs- og milliliða-
greiðslur fyrir tiltekin ár, 2010 og
2011, en ekki er tekið nánar fram
í hverju þjónusta Panamafélagsins
við kýpverska félagið felst. Á ein-
um reikningnum kemur fram að
greiðslumáti á að minnsta kosti
hluta upphæðarinnar á öðrum
reikningnum skuli vera greiðsla
á reiðufé inn á bankareikning
Freezing Point. Panamaískir stjórn-
armenn félagsins skrifuðu svo und-
ir reikningana.
Nýjustu gögnin um Freezing
Point hjá Mossack Fonseca eru
einungis tveggja ára gömul en í
ágúst 2014 sendi Mossack Fonseca
nýtt umboð til að stýra félaginu
fyrir Sigurð Gísla til starfsmanns
sænska Nordea bankans í Lúxem-
borg, Sveins Helgasonar, en sá mað-
ur sér um eignastýringu fyrir hann.
Athygli vekur að íslenski banka-
Fréttatíminn spurði Sigurð Gísla Björnsson að því hvaða upplýsingar hann gæti veitt um viðskipti félags í Panama sem hann
stýrir og annars félags á Kýpur sem greiddi þóknanir, umboðslaun, til Panamafélagsins. Hann svaraði ekki spurningunni.
Sigurður Gísli á rekur fiskútflutningsfyrirtækið Sæmark sem velti tæpum níu milljörðum í fyrra. Mynd | Eva Björk Ægisdóttir/Mbl.
Hér sést einn af reikningunum sem félagið Freezing Point Corp hefur gefið út og
félag á Kýpur, AMIH Limited, greiðir svo. Athygli vekur að nafn stjórnanda Kýpur-
félagsins, Sveinn Helgason, er hið sama og nafn bankastarfsmannsins hjá Nordea
í Lúxemborg sem sér um viðskipti fyrir Panamafélag Sigurðar Gísla.
starfsmaðurinn í Lúxemborg ber
sama nafn og stjórnandi fyrirtækis-
ins á Kýpur sem reikningar aflands-
félagsins í Panama eru stílaðir á.
Fréttatíminn gerði ítrekaðar til-
raunir til að ná tali af Sigurði Gísla
Björnssyni en án árangurs. Í tölvu-
pósti til blaðsins sagðist hann vera
staddur erlendis. Þegar hann var
þrábeðinn um að hafa samband
og spurður sérstaklega út í við-
skipti Panamafélagsins við félagið
á Kýpur svaraði hann ekki. Blaðið
reyndi einnig að ná tali af Sveini
hjá Nordea í Lúxemborg en án ár-
angurs.
Fluttu fé sitt til Tortólu
Að r i r f i sk út f l y t je ndu r í
Panamaskjölunum eru hjónin
Laufey Sigurþórsdóttir og Björgvin
Kjartansson sem reka fyrirtækið
Hamrafell í Hafnarfirði. Árið 2001
stofnuðu þau fyrirtækið World
Wide Seafood Trading and Cons-
ulting Limited á Bresku Jómfrú-
areyjum. Fyrirtækið var stofnað
í gegnum Búnaðarbanka Íslands.
Laufey segir að þau hjónin hafi flutt
fjármagn frá Íslandi sem var geymt
í félaginu. „Við fluttum fjármagn
frá Íslandi sem við geymdum í fé-
laginu. Við áttum reikninga hérna
heima og í Lúxemborg og þeir ráð-
lögðu okkur þetta í bankanum Við
notuðum þetta félag aldrei í rekstri
okkar fyrirtækis. Það var aldrei
þannig að kaupendur á fiski legðu
peninga inn í þetta félag.“ Hún seg-
ir að í rekstri fyrirtækis þeirra hafi
slík félög á lágskattasvæðum aldrei
verið notuð. Laufey segir að ekkert
skattalegt hagræði hafi verið af við-
skiptunum fyrir þau hjónin þar sem
enginn auðlegðarskattur hafi verið
á Íslandi á þessum tíma. „Félagið
fór svo í hruninu og við töpuðum
því fé sem við áttum inni í því. Þetta
er bara tapað fé,“ segir Laufey.
Seldi skip gegnum aflandsfélag
Nafn Theódórs Guðbergssonar,
fiskverkanda og kaupsýslumanns
í Garði á Reykjanesi, er einnig að
finna í Panamaskjölunum en hann
rekur meðal annars fiskverkunina
Cod ehf. Theodór stofnaði félagið
Huskon International í Panama árið
2006 og fékk endurnýjað prókúru-
umboð yfir félaginu árið 2010 og
var þá „eini eigandi þess“ eins og
segir í faxi vegna skipaviðskipta fé-
lagsins árið 2010.
Theódór segir að fyrirtækið hafi
verið stofnað til að selja skip sem
keypt voru í Rússlandi. Hann segir
að það hafi selt alls þrjú skip með-
an það starfaði. Eitt skipið var selt
á 4,25 milljónir evra, rúman hálf-
an milljarð króna, til norsks skipa-
félags árið 2008. „Við vorum með
viðskipti í Rússlandi og þetta voru
ráðleggingar innan úr bankakerf-
inu [Landsbankanum] að fara þessa
leið. Við keyptum bara skip og seld-
um í gegnum þetta félag. Við vorum
ekki með neina útgerð í þessu. Þetta
voru þrjú skip sem við seldum, eitt
fyrir hrun og annað eftir hrun.“
Theódór segir að skattaleg áhrif
af notkun félagsins hafi ekki verið
nein; félagið hafi greitt skatta á Ís-
landi. „Við gerðum þetta svona til
að sleppa við að setja skipin á ís-
lenskan fána. Það hefði kostað aug-
un úr að setja skipin á íslenskan
fána. Það stóð ekki til að selja skip-
in hér innanlands.“
Hann segir að Huskon hafi einnig
verið með íslenska kennitölu og hafi
greitt skatta á Íslandi.
„Félagið fór svo í hruninu
og við töpuðum því fé sem
við áttum inni í því. Þetta
er bara tapað fé,“
Laufey Sigurþórsdóttir,
Hamrafell í Hafnarfirði