Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 21.10.2016, Qupperneq 20

Fréttatíminn - 21.10.2016, Qupperneq 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 21. október 2016 þáttur í velheppnuðum lýðræðis­ samfélögum og í þeim taka virkir borgarar að sér að undrast og efast um málefnin og vilja finna betri leiðir svo stjórnmálin snúist um almannahagsmuni. „Þetta er kjarninn í borgaravitund,“ segir Gunnar Hersveinn. „Í heilbrigðum samfélögum hefur fólk hugrekki til að setja ígrundaðar skoðanir fram. Þegar fólk þarf hins vegar að hugsa sig tvisvar um hvort það sé í lagi að nota tjáningarfrelsið þá er staðan ekki góð,“ segir Gunnar Hersveinn og bætir við að líklega hafi hrunið komið okkur til góða að þessu leyti, fólk sé í dag ófeimnara við að segja hug sinn á opinberum vettvangi og berjast gegn ranglæti. Gunnar Hersveinn undirstrikar mikilvægi frjálsra félagasamtaka í lýðræðinu, samtaka sem taka að sér að vakta ákveðin málefni sem heyra undir stjórnmálin. Hann seg­ ir að ef vel ætti að vera þá væru slík félög með föst framlög af almanna­ fé einmitt til þess að gagnrýna ákvarðanir stjórnvalda og gæta almannahagsmuna. Heiðarleiki og traust „Heimur versnandi fer,“ er viðhorf sem stundum heyrist og margir þeir sem eldri eru vilja halda því fram að borgaravitund ungs fólks sé að rakna upp á tímum einstak­ lingshyggju og mikils hraða í sam­ félaginu. Ekkert er samt einfalt í þeim efnum. Í nýlegri doktorsritgerð fjallaði Ragný Þóra Guðjohnsen um hug­ myndir ungs fólks um hvað það merki að vera góður borgari. „Upp úr aldamótum bar mikið á þeirri umræðu að unga fólkið væri að fjarlægast þau gildi sem áður hefðu verið höfð í heiðri í samfélaginu,“ segir Ragný. „Við heyrum oft að unga fólkið sé hætt að kjósa og taka þátt í pólitísku starfi. Þetta kann að vera að hluta til rétt, en þátttöku­ mynstrið er líka að breytast. Við sjáum að ungt fólk leggur minni áherslu en áður á að vera skráðir félagar í pólítískum flokkum og slíku. Þau taka frekar þátt í ýmsum styttri tímabundnum verkefnum og nýta sér tölvutæknina til að taka þátt í að mótmæla óréttlæti sem þau sjá í kringum sig og tjá þannig borgaravitund sína á annan hátt en áður var. Kannanir sýna líka að þau telja pólitíska virkni mikilvæga en virðast ekki fá útrás fyrir hana í hefðbundnu pólitísku starfi. Þátt­ takan er því óformlegri en áður.“ Ragný Þóra segir að umhverfi ungs fólks skipti miklu máli í þess­ um efnum. „Það er mikilvægt að auka umræðu um samfélagsleg mál og til dæmis virkni einstaklingana í skólastarfi. Samkennd, traust í sam­ félaginu, heiðarleiki og samhjálp með borgurunum eru allt atriði sem kannanir sína að ungt fólk er oft mjög meðvitað um og telja mikil væg. Einnig hefur sýnt sig að þau ungmenni sem njóta stuðnings og hæfilegs eft­ irlits foreldra sinna eru jákvæðari gagnvart borgarlegri þáttöku og næmari fyrir samkennd og samlíð­ an. Eins sýnir sig að þeir sem taka þátt í sjálfboðaliðastarfi snemma á lífsleiðinni eru líklegri til að verða virkir borg arar síðar meir. Það er því mikilvægt að finna ungu fólki farveg innan sjálfboðaliðasamtaka.“ Lítil verkefni eru líka mikilvæg Borgaravirkni birtist ekki aðeins í pólítísku starfi eða í aðhaldi og gagnrýnu eftirliti með ákvörðun­ um stjórnvalda. Einfaldir hlutir og þátttaka í daglegu lífi og nærsam­ félaginu getur líka skipt máli. Til dæmis þekkja þeir sem eiga börn á skólaaldri eflaust vel tilfinninguna þegar spurt er á fundi foreldra hverjir ætli nú að bjóða sig fram sem bekkjarfull­ trúa eða í stjórn foreldrafé­ lagsins. Stund­ Virkir borgarar starfa milli kosninga Kosningar koma og fara. Vissulega móta fulltrúarnir, sem þá eru kosnir til ábyrgðar, samfélagið mikið á milli kosninga. Við hin, kjósendur, stöndum yfirleitt á hliðarlínunni og fylgjumst mismikið með því sem fulltrúarnir taka sér fyrir hendur. En hvað getum við gert alla hina 1460 daga kjörtímabilsins til að móta samfélagið sem virkir borgarar? Kosningarnar nú færast framar en ráðgert var vegna óánægjubylgju sem kom upp í vor þegar nöfn stjórnmálamanna skutu upp kollinum í Panamalekanum svokallaða. Undir niðri mátti greina aukna kröfu borgaranna um bætt siðferði í  stjórnmálum. Guðni Tómasson guðni@frettatiminn.is Bráðum höldum við á kjörstað og þar leyfist okkur samkvæmt lögum landsins að taka þátt í stjórn þess með því að velja fulltrúa á þing. Við veljum einn listabókstaf og myndum þannig hóp fulltrúa okkar sem eiga að fara með löggjafarvaldið til skamms tíma, að­ eins fjögurra ára sem eru vitanlega snögg að líða. Hugmyndin að baki er að bæta samfélagið þannig að það þroskist og þróist í takt við  tímann. Í kringum kosningar er samt ágætt að velta líka fyrir okk­ ur hlutverki kjósandans fyrir og eftir kosning arnar. Hvað gerist á milli kosninganna og hvert er hlutverk okkar í því að hafa áhrif á ákvarð anir sem snúa að þróun samfélagsins? Orðið borgari hefur ekki verið ofar lega í opinberri umræðu undan­ farið, en það vísar þó ágætlega til þeirrar virkni sem er nauðsyn­ leg á milli þess sem við mætum á kjörstað sem kjósendur. Með hug­ myndinni um borgaravirkni, þátt­ töku og framlagi hvers og eins til að þoka samfélaginu í rétta átt, er ekki verið að tengjast gömlu stétta­ hugmyndinni um borgara sem and­ stæðu við verkalýðinn, það er ekki verið að ræða broddborgara eða neitt slíkt. Hins vegar erum við að tala um þá tilfinningu sem sum­ ir finna sterkar hjá sér en aðrir að hægt sé að áhrif á sam félagið og vilji þess vegna leggja sig fram til að reyna að bæta það. Það eru ekki bara stjórnmálin sem móta samfé­ lagið heldur líka uppsafnaðar hug­ myndir, þekking og hæfileikar sem borgararnir búa yfir. Halda má fram að nú, á tímum samfélagsmiðla og hraðra boð­ skipta með nýjustu tækni, sé póli­ tísk virkni borgaranna með miklum ágætum, slík eru öll skoðana skiptin sem flæða fram á netinu. Samt þarf kannski meira til og í heilbirgðu og opnu lýðræðissamfélagi eiga að vera ýmsar leiðir til staðar til að koma skoðun sinni á framfæri. Fólk getur bundist samtökum, komið skoðun­ um sínum á framfæri við stjórnvöld með beinum hætti, safnað undir­ skriftum og jafnvel mótmælt. Í flóknu nútímasamfélagi upplifa margir að valdið sé fjarlægt. Margir sjá stjórnmál fyrst og fremst sem endalaust karp um smáatriði eða hrossakaup og hagsmunaárekstra. En framþróun samfélagsins er samt bara byggð á hugmyndum og hug­ sjónum, því hvernig við sjáum fram­ tíðina fyrir okkur. Slík framtíðarsýn getur orðið til í huga hvers sem er. Stjórnmál eru því ekki einkamál stjórnmálamanna og kannski er það svo að dagleg breytni okkar getur líka lagt til við að bæta samfélagið. Fréttatíminn ræddi stórar og litlar aðgerðir og virkni almennings á milli kosninga við nokkra aðila. Erum ekki lengur óvirkir þegnar Hei mspek i ng u r i n n Gu n na r Hersveinn hefur velt nokkuð fyrir sér borgaravitund og virkni Íslendinga milli kosninga, ekki síst hvað hafi breyst í þessum efnum eft­ ir efnahagshrunið 2008. Nýleg bók sem heitir Hugskot, og Gunnar ritar ásamt Friðbjörgu Ingimarsdóttur, er hugsuð sem handbók fyrir alla þá sem vilja taka þátt í baráttunni fyrir betra samfélagi. Þar er áhersla lögð á gagnrýna hugsun og þor borgar­ ans til að mótmæla og segja hug sinn þegar honum er  misboðið. „Manni fannst það á tímabili nokkuð ríkt í Íslendingum að þeir væru í raun bara að selja frá sér valdið í kosningum á fjögurra ára fresti og kaupa sér frið á milli þeirra,“ segir Gunnar. „Maður var aldrei alveg sáttur við þetta því það var eins og fyrri kynslóðum hefði verið kennt að vera óvirkir þegnar og þiggjendur í samfélaginu. Hins vegar virðist mér að á síðasta ára­ tugi 20. aldar hafi færst aukinn kraftur í öf luga borgaravitund. Fólk fór þá frekar að taka afstöðu og gagnrýnin hugsun fór á flug.“ Gunnar Hersveinn segir það sitt mat að aukin umræða um umhverfis mál hafi leitt þessa þróun og þau hafi sýnt mörgum fram á að hægt var að segja skoðun sína um umdeild mál á opinberum vett­ vangi. „Ég er alveg sannfærður um að þetta hafi sýnt mörgum fram á að hægt var að hafa áhrif á umræðuna með fjölbreyttum hætti.“ Gunnar bendir á að samfélög, bæði einstaklingar, stofnanir og fjölmiðlar, þurfi að venjast nýjum samskiptum og hefðum í opinberri umræðu. Þetta eigi jafnt við um það hvernig almenningur beri skoðanir sínar á torg á samfélagsmiðlum og á netinu og það hvernig virkari mótmælahefð hafi þróast á síðustu misserum. Ýmsir aðilar hafi þurft að læra inn á nýjan veruleika þar sem æ fleiri fóru til dæmis að líta á það sem sjálfsagðan hlut að þora að láta sjá sig i mótmælum. Að undrast og efast Gunnar Hersveinn segir að borgara­ vitund byggist á þremur stoðum. „Maður þarf að þekkja samfélagið, lög og reglur þess. Svo þarf maður að taka afstöðu til mála sem upp koma og síðast en ekki síst að geta barist fyrir ákveðnum málstað. Þetta þrennt mótast ekki hjá fólki nema félagsvitund þess sé öflug.“ Virk gagnrýn hugsun er megin­ Gunnar Hersveinn. Mynd | Rut Borgaravitund getur birst í ýmsum myndum: Í kringum kosningar: • Kynna sér stefnuskrá ólíkra stjórnmálahreyfinga • Gera upp hug sinn á sjálfstæð- an hátt • Mæta á kynningar- og um- ræðufundi í aðdraganda kosninga • Mæta á kjörstað og hvetja aðra til þess • Taka að sér sjálfboðaliðastörf fyrir stjórnmálahreyfingar Á milli kosninga: • Nota fjölmiðla á gagnrýninn hátt • Ræða málin, beita rökum og hlusta á aðra • Tjá sig í umræðunni, á netinu eða í fjölmiðlum • Skrifa undir undirskrifta- lista og mótmæla ef manni er misboðið • Hafa samband við kjörinn fulltrúa um einstök málefni • Taka þátt í formlegum félaga- samtökum og þrýstihópum Í daglega lífinu: • Taka þátt í foreldrastarfi í skólum • Taka þátt í hússtjórn, ná- grannavörslu • Mæta á íbúafundi í nærum- hverfinu • Gerast sjálfboðaliði • Ræða hlutverk stjórnmála þvert á kynslóðir • Nota rök og spara sleggjudóma
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.