Fréttatíminn - 21.10.2016, Blaðsíða 26
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 21. október 2016
Ekkert væl!
Varnarsvæðið á Miðnesheiði virkar eins og
yfirgefinn heimur en samt hefur margvísleg
starfsemi byggst þar upp. Að undanförnu hafa
listamenn og fræðimenn velt svæðinu fyrir sér og
þeim miklu breytingunum sem orðið hafa síðan
herinn fór. Vinnan ber nú ávöxt með sýningahaldi
og samræðum um breytingar á norðurslóðum,
sem fara fram í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur
á næstu dögum og á svæðinu sjálfu.
KJÓSUM SAMFÉLAG FYRIR ALLA!
Gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta, fyrst fyrir börn, langveika og
öryrkja sem hafa lítið sér til framfærslu. Viðgerðarþjónusta
vegna hjálpartækja verði aðgengileg allan sólarhringinn
allan ársins hring og neyðarnúmer ávallt mannað.
Heilsugæslan styrkt enn frekar.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Við lítum í raun á gömlu herstöðina á Miðnes-heiði og Keflavíkur-flugvöll sem eins kon-ar tákn fyrir hraðar
breytingar sem við höfum upplifað
á síðustu árum hér á Íslandi og í
okkar heimshluta,“ segir Tinna
Grétarsdóttir mannfræðingur sem
er ein þeirra sem stendur fyrir OH
listrannsókna-verkefninu svokall-
aða. Hluti þess sem er sýningin
Kwitcherbelliakín sem Tinna er
höfundur að, ásamt myndlistar-
mönnunum Ásmundi Ásmunds-
syni og Hannesi Lárussyni.
Forvitnilegt nafn sýningarinnar er
samsett úr orðasambandinu „quit
your belly aching“ sem gæti verið
þýtt „hættu þessu væli.“
Spennandi svæði
Tinna segir varnarsvæðið hafa
verið heillandi rannsóknarefni fyr-
ir þann stóra, fjölþjóðlega og þver-
faglega hóp lista- og fræðimanna
sem tekið hafa þátt í verkefninu
og vinnustofum sem hafa verið
haldnar á varnarsvæðinu. „Svæð-
ið brúar á milli kalda stríðsins
sem við þekkjum úr fortíðinni og
„heita stríðsins“ eins og við köll-
um það og vísar þá til þeirra um-
breytinga sem fylgja hlýnun jarðar
og þeim vistfræðilegu og menn-
ingarlegu ógnum sem breytingum
fylgja.“
Í vinnustofu á svæðinu, sem
fram fór um síðustu helgi og þar
sem framtíðin var til umfjöllun-
ar, undir heitinu Future Fictions,
var miðstöð starfseminnar í gamla
aðalhliðinu inn á herstöðvarsvæð-
ið. Það stendur venjulega eitt og
yfirgefið og minnir á aðgreiningu
milli tveggja heima á þeim dögum
þegar bandarískur her var þarna
með starfsemi. „Þetta er gott tákn
um tengingu Íslands við umheim-
inn. Þeir lista- og fræðimenn sem
þarna hafa dvalið eru heillaðir
af fortíð svæðisins, en ekki síður
framtíð þess, hvernig það er að
byggjast upp og finna sér nýtt
hlutverk með áherslum á nýsköp-
un og hugvit.
Tíminn og tímavíddirnar sem
fólk finnur fyrir þarna eru mjög
heillandi. Þannig höfum við velt
fyrir okkur samlífi manna og
annarra lífvera, farið niður í fjöru
og unnið með þarann, sem við sjá-
um sem einskonar módelefni um
það samlífi og velt fyrir okkur tím-
anum og endurskoðun á tímahug-
takinu. Við erum að velta fyrir
okkur framtíðinni og alvarlegum
breytingum, bráðnun íshellunn-
ar, opnun siglingaleiða og aukn-
um námugreftri í Grænlandi, svo
eitthvað sé nefnt. Niðurstöðurnar
verða ræddar og kynntar núna um
helgina í Hafnarhúsinu.“
Óhefðbundin sýning
„Kwitcherbelliakín er ekki hefð-
bundin samsýning,“ segir Tinna
„heldur birtingarmynd af samtali
sem hefur átt sér stað síðastliðin
tvö ár í hópi listamanna. Jafnframt
er annar viðburður á Ásbrú, Self
help academy, en þangað fer rúta
á sunnudag klukkan 17 með gesti
úr Hafnarhúsinu.“
Tinna segist sjálf upplifa varnar-
svæðið sem eins konar smáheim
nýlegrar sögu Íslands og að það sé
jafnvel smækkuð mynd samfé-
lagsins alls. „Varnarsvæðið spilar
þýðingarmikið hlutverk í mótun
og þróun okkar sem þjóðar. Það
er nátengt þroskasögu okkar og
leikur stórt hlutverk í nútímavæð-
ingunni hér á landi. Ég hafði ekki
farið þarna um fyrr en ég byrjaði í
þessu verkefni og fann mjög sterkt
fyrir þessu.“
Tinna Grétarsdóttir, Hannes Lárusson og Ásmundur Ásmundsson eru höfundar sýningarinnar Kwitcherbelliakín sem
stendur í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur fram að mánaðamótum. Fyrir fimm árum vakti síðasta sýning þeirra, Koddu,
mikla athygli.
Gamla aðalhliðið inn á varnar-
svæðið hefur verið miðstöð
þverfaglegra listrannsókna að
undanförnu.