Fréttatíminn - 21.10.2016, Page 50
Ný og stærri
World Class stöð
í Smáralind
Um helgina flytur World Class úr Turninum yfir í Smáralind.
Þar opnar glæsileg ný stöð með rúmgóðum og björtum tækjasal,
þremur hóptímasölum, og Betri stofu með heitum pottum og gufum.
Með þessari nýju staðsetningu gefst fleirum tækifæri á að njóta þeirra
fagmennsku og fjölbreytni í líkamsrækt sem World Class er þekkt fyrir.
Unnið í samstarfi við World Class
World Class, sem hefur rekið líkamsrækt-arstöð í Turninum í Kópavogi frá ár-
inu 2007, flytur nú yfir götuna í
Smáralind í talsvert stærra rými,
sem þýðir að úrvalið og þjónustan
mun aukast til muna.
„Við hlökkum til að bjóða upp
á hóptíma sem við gátum ekki
gert áður því við vorum bara með
tækjasal í Turninum,“ segir Hafdís
Jónsdóttir, eigandi World Class.
Í nýju stöðinni er Hot-yoga
salur, spinning salur og almenn-
ur dans- og hóptímasalur. Meðal
þeirra opnu hóptíma sem í boði
verða eru hot yoga, jóga, spinn-
ing, foam-rúllu tímar, tabata,
zumba, hot-fit og hot-butt. Einnig
verður boðið upp á lokuð nám-
skeið í Fit pilates, Fitness Form,
Súperform, og mömmutíma fyrir
nýbakaðar mæður. Jafnframt mun
Dansstúdíó World Class, einn
stærsti og fjölmennasti dansskóli
landsins, bjóða upp á spennandi
dansnámskeið fyrir alla aldurs-
hópa. „DWC hélt einmitt stóra
danshátíð síðustu helgi með
tveimur af stærstu nöfnum dans-
heimsins, þeim KK Harris og
Hollywood sem dansa og semja
meðal annars fyrir Beyonce og
fleiri,“ segir Dísa.
Í nýju stöðinni verður ekki bara
hægt að taka á því í tækjasal eða í
tímum heldur líka hægt að slaka á
og láta líða úr sér í Betri stofunni.
Þar eru tveir heitir pottar, blaut-
gufa, þurrgufa og infrarauður
hitaklefi ásamt slökunarbekkjum.
Betri stofan verður opin öllum
gestum World Class fyrst um
sinn.
„Þetta er frábært fyrir þá sem
vinna í Smáralindinni og Norður-
turninum ásamt öllum þeim sem
búa og vinna í nágrenninu eða
eiga leið um að fá þessa glæsi-
legu aðstöðu í hverfið sitt,“ segir
Dísa.
Stöðin opnar næsta mánudag
klukkan sex um morguninn og
verður opin alla virka daga frá
klukkan sex á morgnanna til
hálfellefu á kvöldin, og frá átta
til sex á laugardögum og tíu til
sex á sunnudögum.
…heilsa kynningar 10 | amk… FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
Ný og glæsileg stöð World Class
opnar nýja stöð í Smáralind á
mánudag. Þar verður rúmgóður
tækjasalur, þrír hóptímasalir og
Betri stofa með heitum pottum
og gufum. Mynd | Rut
Frábær aðstaða
Dísa í World Class
er hæstánægð
með nýju stöðina í
Smáralind.
Mynd | Rut
D-3 frá Gula
miðanum
200 krónur af hverju bleiku glasi
renna til styrktar Bleiku slaufunnar í október
Unnið í samstarfi við Heilsu ehf.
D-vítamínið frá Gula miðanum er 2000 ie eða 50uq sem er sá skammtur sem margir
telja að sé nauðsynlegur fyrir full-
orðinn einstakling hér á norður-
slóðum. D3 vítamínið er að auki í
lífrænum jómfrúarólífuolíugrunni,
olían eykur upptöku D-vítamíns í
líkamanum.
D-vítamín er oft kallað sólar-
vítamínið en eins og við vitum
flest þá framleiðir húðin vítamín-
ið þegar hún verður fyrir áhrif-
um útfjólublárra geisla sólarljóss.
Auk þess fáum við D-vítamín úr
fæðunni, þá aðallega fiskmeti.
D-vítamín er fituleysanlegt sem
þýðir að líkaminn geymir umfram-
magn af D-vítamíni í lifrinni til
betri tíma.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að
fólk á norðlægum slóðum þarfn-
ast aukins D-vítamíns á veturna
vegna þess hve stuttar dagsbirtu
nýtur við. D-vítamín er nauðsyn-
legt fyrir eðlilegan beinvöxt og
til að styrkja beinin, það stuðlar
að auki að betri upptöku á kalki,
fosfór og fleiri steinefnum. Einnig
er talið að D-vítamín geti haft góð
áhrif gegn skammdegisþunglyndi
og einnig gegnir það mikilvægu
hlutverki fyrir ónæmiskerfið.
„Í október kynntum við nýja
stærð, eða 120 stk sem fór beint
í bleikan búning,“ segir Signý
Skúladóttir, markaðsstjóri Heilsu
ehf. 200 krónur af hverju bleiku
glasi renna til styrktar Bleiku
slaufunnar.
Guli miðinn fæst í heilsuvöru-
búðum, apótekum og í flestum
matvöruverslunum.
„Í október
kynntum við
nýja stærð, eða 120
stk sem fór beint í
bleikan búning,“
Signý Skúladóttir
Markaðsstjóri Heilsu ehf.
Heimili
& hönnun
Þann 5. nóvember
auglysingar@frettatiminn.is | 531 3300
ALLT UM STOFUNA
& BORÐSTOFUNA