Fréttatíminn - 21.10.2016, Qupperneq 55
Allir geta spilað með
Barnaafmæli í Tennishöllinni eru sérstaklega skemmtileg. Þar fá allir að spreyta sig
með spaða og bolta og taka þátt í spennandi leikjum undir leiðsögn þjálfara.
Unnið í samstarfi við Tennishöllina
Tennishöllin í Kópavogi býður upp á einstaka skemmtun fyrir afmæl-ishópa með skemmtileg-
um leikjum og aðstöðu fyrir veislu.
Þar taka þjálfarar á móti krökk-
unum, kynna þá fyrir tennis með
tennisleikjum og leyfa krökkun-
um að spreyta sig í míní tennis
þar sem krakkar leika með minni
spaða, mýkri bolta og netin eru
lægri. Skemmtun og gleði er höfð
að leiðarljósi um leið og undir-
stöðuatriði í tennis eru kynnt.
„Tennis er skemmtileg-
ur leikur, númer eitt, tvö og
þrjú og góð líkamsrækt,“ segir
Jónas Páll Björnsson, þjálfari og
f ramkvæmdastjóri Tennishallar-
innar. „Flestum finnst gaman að
spila tennis og það geta allir spilað
við mótherja sem hefur svipaða
getu. Þetta er góður leikur sem
býður upp á spennandi keppni.“
Jónas segir tennisíþróttina vera
að sækja í sig veðrið á Íslandi
en helst sé skortur á aðstöðu og
þess vegna stefnir Tennishöllin á
að stækka við sig fljótlega. „Það
auðveldar okkur að anna eftir-
spurn, auk þess sem við viljum efla
tennisíþróttina hér á landi. Þetta
er íþrótt sem tekur á mörgum
þáttum. Hún reynir á líkamlega,
auk þess sem hún er afar tæknileg
og reynir mjög á andlegan styrk,
enda tennisleikarar flestir með
stáltaugar. Hún hentar ungu fólki
vel sem vill æfa íþróttir á eigin
forsendum og það getur stundað
hana alla ævi, hvar sem er í heim-
inum þar sem víða er tennisvelli
að finna,“ segir Jónas. Sjálfur
segist hann stunda tennis af einni
ástæðu. „Leikgleði.“
Barnaafmæli í Tennishöllinni
samanstanda flest af klukku-
stunda tennisleikjum með þjálf-
ara og veislu á eftir með píts-
um og kökum. Veitingar þarf að
koma með sjálfur en Tennishöllin
býður góða aðstöðu til að njóta
veitinganna. Hægt er að taka á
móti stórum hópum, en allt að 36
krakkar geta spilað á einum velli
og fá allir að spila. Í Tennishöll-
inni bjóða sex tennnisfélög upp
á æfingar fyrir börn og unglinga.
Tennisfélag Kópavogs, Tennisfé-
lag Garðabæjar, Tennisdeild BH,
Tennisdeild Þróttar, Tennisdeild
Víkings og Tennisdeild Fjölnis.
Allir eru velkomnir í tennis og allir
geta komið og fengið að prófa að
vera með á æfingu.
Allar upplýsingar má fá í
Tennishöllinni í síma 5644030
eða með tölvupósti á netfangið
tennis@tennishollin.is
…barnaafmæli kynningar15 | amk… FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER
Krakkarnir Skemmta sér konunglega í Tennishöllinni. Þar er aðstaða góð fyrir krakka að koma og halda upp á afmæli þar sem allir fá að spreyta sig í tennis. Mynd | Rut