Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 19.11.2016, Síða 36

Fréttatíminn - 19.11.2016, Síða 36
viðtal. 4 | helgin. LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER Hvert tíma bil ævinnar krefur mann um ákveðna hluti og að því leyti er ágætt að prófa sig áfram. Vera ekki of fastur í fyrirfram- gefnu formi. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is • Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. helgin. er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Fyrsti snjór vetrarins er fallinn. Hann liggur eins dúnmjúkt sykurfrauð yfir öllu og gefur um­hverfinu við Elliðavatn ævintýralegan blæ. Nýja byggðin á Vatnsendasvæðinu teygir sig í átt að eldri húsunum við vatnið, en þrátt fyrir það er tilfinningin sú að maður sé kominn upp í sveit. Sveit í borg. Inni á milli tignarlegra gren­ itrjáa stendur glæsilegt timburhús sem Lilja Sigurðardóttir rithöfund­ ur og kona hennar, Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi Hjallastefn­ unnar, festu nýlega kaup á. Þetta er sannkallað draumahús og þær eru nú aðlaga það enn frekar að draum­ um sínum með því að gera lítils­ háttar breytingar innanhúss. Þegar blaðamann ber að garði eru iðnaðarmenn að störfum í öllum herbergjum að mála, græja og gera. Þetta eru reyndar allt fjölskylduvinir sem eru að hjálpa til við að koma húsinu í þokkalegt stand fyrir næsta dag, þegar Lilja ætlar að slá upp veislu fyrir gesti glæpasagnahátíðarinnar Iceland Noir, sem fer fram um helgina. Magga Pála er hins vegar fjarri góðu gamni í útlöndum. Doktor Árni, heimilishundurinn, flaðrar upp um blaðamann þegar Lilja opnar dyrnar. Hann þefar að­ eins og gefur grænt ljós á gestinn. „Finnst þér þetta ekki kósí?“ spyr Lilja, bendir inn í húsið og skellir upp úr. Sterkt flúorljós blasir við og tveir menn í málningargöllum með pensla gægjast fyrir horn. Þeir kasta á mig kveðju og halda sínu striki. Við Lilja ákváðum nefnilega að hittast heima við til að ná fram kósí stemningu. Hinn fullkomni meðalvegur „Okkur langaði að vera aðeins nær náttúrunni. Magga Pála er alin upp í sveit og hefur alltaf verið mikil landsbyggðarmann­ eskja. Hana dreymir um þetta sveitalíf. Um leið er hún í krefj­ andi vinnu þannig við þurfum að vera við höfuð borgarsvæðið. Ég er sjálf ekkert voða mikil sveita­ manneskja. Mér finnst gott að hafa mokaða vegi, póstþjónustu og háhraðainternet. Þannig að við fundum, að við höldum, hinn fullkomna milliveg. Það er stutt í malbik fyrir mig og hún fær landsbyggðarfílinginn,“ segir Lilja þegar við höfum komið okkur fyrir á skrifstofunni hennar, eina herberginu sem ekki er verið að vinna í. „Það er stór lóðin hérna í kring og við sjáum fyrir okkur að það geti verið notalegt að vera með hænur, gróðurhús og svona,“ bætir hún við og brosir. Síðustu árin hafa hún og Magga Pála haldið sitt hvort heimilið, en það var kominn tími á að breyta því. „Við höfum elskað hvor aðra í 25 ár og það hefur verið alls­ konar form á sambúðinni. Ætli við séum ekki komnar í loka­ formið núna. Segjum það alla­ vega. Þetta er svona borgaralegt „settle ment“ í einbýlishúsi við vatn. Þetta er orðið svolítið mið­ aldara,“ segir hún og skellir upp úr. „Hvert tíma bil ævinnar krefur mann um ákveðna hluti og að því leyti er ágætt að prófa sig áfram. Vera ekki of fastur í fyrirfram­ gefnu formi. Maður er kannski aðeins frjálsari með að finna út úr svona málum þegar maður er ekki í þessum hefðbundna ramma sem gagnkynhneigt fólk er oft. Það er þessi uppskrift, að vera annað hvort saman eða í sundur. Svo eru sumir bundnir yfir börnum sem við erum ekki. Það gefur meiri sveigjanleika. En við erum mjög glaðar með nýja húsið okkar og nú er bara að sjá hvernig sveita­ borgar draumurinn mun ganga. Vonandi vel.“ Kom í pössun og fór ekki aftur Lilja á sjálf ekki börn en Magga Pála átti eina unglingsdóttur þegar þær byrjuðu saman. Hún á í dag Hafa prófað ýmiskonar sambúðarform Lilja Sigurðar og Magga Pála festu nýlega kaup á draumahúsi við Elliðavatn. Þær hafa elskað hvor aðra í 25 ár en verið í fjarbúð síðustu misseri. Þeim fannst kominn tími til að breyta því og ætla nú að lifa saman sveitalífi í útjaðri höfuðborgarinnar. fimm börn þannig það er nóg af börnum í kringum þær. „Þetta eru fimm barnabörn á aldrinum eins til átján ára. Við erum mjög lukkulegar að hafa þau í lífi okkar. Það er svo dásamlegt að fylgjast með þroska einnar manneskju frá fæðingu til fullorðinsára. Það er líka frábært að vera komin með stórt hús þar sem er nóg rými fyrir alla fjölskylduna.“ Doktor Árni, sem hefur hreiðrað um sig á púða á gólfinu á skrif­ stofunni, var upphaflega eitt af barnabörnunum, en eftir því sem börnunum fjölgaði á heim­ ili dótturinnar, flutti hann sig um set og varð að barni á heimili Lilju og Möggu Pálu. „Tíminn fyrir hundinn minnkaði smám saman hjá þeim þannig hann fór að vera meira hjá okkur. Svo gerðist það bara einn daginn að hann kom í pössun og fór ekkert aftur. Nú fer hann bara í heimsókn til þeirra. Gæludýr eru auðvitað alltaf hrikalega ofdekruð á heimilum hjá samkynhneigðu fólki.“ Lilja segir Doktor Árna vera einstak­ lega góðan félagsskap, en dokt­ orsnafnbótina fékk hann vegna þess hve sprenglærður hann er. „Hann er með doktorsgráðu í hunda fræðum. Hann kann mun­ inn á hægri og vinstri, veltir sér og skilur margt sem maður segir við hann,“ segir Lilja, stolt af sínum hundi. „Hann er sjö ára, orðinn miðaldra eins og við, þess vegna vildi hann fara að flytja í einbýlis­ hús.“ Lilja sér meira um heimilið Lilja segir verkaskiptingu í sam­ bandi þeirra Möggu Pálu markast svolítið af því hvernig týpur þær eru. „Ég hef alltaf verið meira í einbeitingarvinnu. Verið meira heima og hugsað um heimil­ ið, en hún er meira út á við því vinnan hennar krefst þess, og persónuleikinn líka. Ég er frekar einræn og finnst gott að vera ein heima dögum saman. En það er stundum ágætt að fara út og hitta fólk. Ég hef alveg gott af því þótt það kalli ekkert á mig. Magga Pála verður hins vegar bara dof­ in í hausnum ef hún talar ekki í klukkutíma,“ segir Lilja kímin. „Við höfum því svolítið skipt þessu þannig að ég sé meira um heim­ ilið og hún um útávið­samskipti. Það hentar okkur báðum rosa vel. Og ég sé í anda að þessi „semi“ sveitadraumur verði þannig að ég geti verið meira heima að vinna en áður. Sem er alveg dásamlegt. Það er reyndar nýi takturinn hjá mér að vera í útlöndum í janú­ ar og febrúar til að klára bókina sem ég er að vinna að. Jólabóka­ flóðið er þannig að maður verður voða tættur og vinnur ekki mikla einbeitingavinnu á meðan,“ segir Lilja en hún sendi nýlega frá sér bókina Netið sem er önnur bókin í glæpasöguþríleik sem hófst með Gildrunni á síðasta ári. Veit ekki hver endinn er „Það er mjög skemmtilegt að skrifa svona seríu. Lesendurnir bindast manni svolítið og bíða spenntir eftir næstu bók af því þeim er annt um persón­ urnar. Þriðja bókin, sem ég er að skrifa núna, er reyndar ekki alveg eins og ég hélt í upphafi að hún yrði. Það hefur orðið þróun í millitíðinni og sagan hefur stýrt sér aðeins sjálf. Það er svolítið spennandi fyrir mig að vita ekki alveg hvernig þetta endar,“ segir Lilja og hlær. Gildran fékk mikið lof gagnrýnenda og hefur útgáfu­ rétturinn verið seldur til nokkurra landa, þar á meðal Englands. Þá var slegist um kvikmyndarétt­ inn á bókinni en það var Sigurjón Sighvatsson sem hreppti hnossið. „Ég er rosa þakklát fyrir þessar viðtökur. Ég veit ekki hvort þær hafa komið mér á óvart. Þetta er skemmtileg saga, það segja það allir sem lesa hana og Forlagið batt strax miklar vonir við hana. En ég er voða þakklát og það kom notalega á óvart hve vinsældirnar hafa verið miklar. Mig langar til að gleðja fólk og skemmta því, þess vegna er ég í þessu.“ Sæl í sveitinni Lilja segist vera frekar einræn og getur verið ein heima dögum saman. Hún kann vel við sig í sveitinni en þykir gott að hafa aðgang að háhraðainterneti og stutt í malbik. Mynd | Hari

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.