Fréttatíminn - 19.11.2016, Blaðsíða 45
Lakkrísinn með hindberja- og
karamellusúkkulaðinu
snýr aftur
Allt á fullu hjá Hafliða Ragnars
Unnið í samstarfi við HR konfekt
Hjalti Lýðsson, súkkulað-igerðarmaður hjá HR konfekti, stendur nú vakt-ina, ásamt vel mönnuðu
teymi, nótt sem nýtan dag við
að framleiða dásamlegt hand-
gert konfekt sem landinn bíður í
ofvæni eftir; hjá sumum hefjast
jólin ekki fyrr en þeir hafa gætt
sér á gómsætum mola frá Haf-
liða Ragnars. Aðalsmoli þessara
jóla er sá sami og í fyrra vegna
fjölda áskorana; lakkrís hjúpaður
með hindberjasúkkulaði og kara-
mellusúkkulaði. „Þetta er alltaf
uppselt fyrir jólin,“ segir Hjalti en
jólaframleiðslan hefst strax í byrj-
un nóvember til þess að leitast
við að anna eftirspurn sem virðist
þó vaxa með hverju árinu. Hjalti
merkir mikinn áhuga á handgerðu
gæðasúkkulaði, fólk sé farið að
velja betur það sem það kýs að
fá sér og fá sér þá minna í einu.
„Dökkt súkkulaði er náttúrulega
eitt af þessum fimm ávöxtum sem
mælt er með á dag,“ segir hann og
hlær.
Konfektöskjurnar sem koma í
öllum stærðum og gerðum eru afar
vinsælar fyrir jólin, bæði til þess að
bjóða gestum upp á yfir hátíðirnar
og ekki síður til gjafa. Mikið er lagt
upp úr fallegum umbúðum þannig
að konfektið sómir sér vel á hvaða
veisluborði sem er. „Umbúðirn-
ar skipta miklu máli, þær eru það
fyrsta sem fólk sér og þetta er mjög
falleg og girnileg gjöf,“ segir Hjalti.
Aðspurður um eftirlætismol-
ann sinn þarf Hjalti dálitla stund
til þess að hugsa sig um en svarar
svo ákveðinn; „það er blóðappel-
sínu- og chilimolinn okkar. Hann er
steyptur í mjólkursúkkulaði og er
með karamellu með blóðappelsínu
og chili. Hann er í þessum blönduðu
lúxusöskjum hjá okkur og einnig í
lausu í Mosfellsbakaríi.“
Mosfellsbakarí
Fríhöfnin
Vínberið
Garðheimar
Blómabúð Akureyrar
Sjafnarblóm
Hagkaup, Kringlunni
Útsölustaðir HR
konfekts:
5 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2016 MATARTÍMINN