Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 22.12.2016, Side 18

Fréttatíminn - 22.12.2016, Side 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 22. desember 2016 miðlum að eltingarleikur vitnis- ins við árásarmanninn hefði ekki staðið sleitulaust heldur hefði vitn- ið misst sjónar á honum, skömmu síðar talið sig hafa fundið réttan mann, en skjátlast. Um þriðjudagseftirmiðdegið lét lögreglan vita: „Við erum með rangan mann“. Og brýndi fyrir almenningi að vera á varðbergi. Klaus Kandt, yfirmaður Berlínarlög- reglunnar, bætti við að brýnt væri „að komast yfir nákvæma persónu- lýsingu“. Þegar þetta er skrifað er árásarmaðurinn enn ófundinn. Hver þá? Á þriðjudagskvöld lýstu hryðju- verkasamtökin ISIS verknaðinum á hendur sér. Verknaðurinn felur í sér vísbendingu um að hann hafi litið á sig sem „hermann ISIS“ eins og samtökin orða það í yfirlýsingunni: Í nóvemberhefti Rumiyah, áróðurs- rits ISIS, birtust ítarlegar leiðbein- ingar um árás á samkomustaði með flutningabíl. Enn er þó ekki vitað hvort það þýði að árásarmaðurinn hafi tilheyrt þeim félagsskap og skipulagt árásina í slagtogi við aðra innan samtak- anna. Þar sem skilaboðin frá svo- nefndri fréttaþjónustu þeirra inni- héldu engar upplýsingar umfram þær sem þegar höfðu birst í fréttum þykir það jafnvel heldur ósennilegt. Annar möguleiki er að árásarmaður- inn hafi verið einn á ferð en framið árásina sem svar við kalli ISIS um árásir á Vesturlönd. Átökin Öngþveitið er ekki á götunum, það er í miðlunum: á netinu, í blöðum og útvarpi, á Twitter, Facebook og Reddit – alls staðar þar sem er tek- ist á um túlkanir atburðarins: „Við verðum að viðurkenna að við eigum í stríðsástandi, þó að fólk sem aðeins sér það góða vilji ekki sjá það,“ sagði Klaus Bouillon, formaður innanrík- isráðherraráðs sambandslandanna, á þriðjudag. Um leið tilkynnti hann að aukið verði snarlega við útbúnað lögreglunnar með „þungavopnum: rifflum, skammbyssum og vélbys- sum.“ Bouillon var svarað sama dag af samflokksmanni hans í flokki Ang- elu Merkel, CDU: „Við erum ekki í stríði, það er eitthvað allt annað,“ sagði Reiner Haseloff, forsætisráð- herra Saxlands-Anhalts – „við látum ekki Salafista draga okkur í stríð í okkar eigin landi.“ Sama dag stappa forsetinn Gauck og kanslarinn Merkel stálinu í íbúa landsins í sjónvarpsávörpum, ít- reka mikilvægi þess að láta ekki undan hatri. Merkel brýnir fyrir landsmönnnum að finna „þróttinn sem það krefst að lifa því lífi sem við viljum lifa í Þýskalandi: frjálsu, sam- eiginlegu og opnu.“ Innanríkisráð- herrann, Thomas de Maizière, legg- ur til mögulega útfærslu á hinu opna lífi, frjálsa, sameiginlega lífi þegar hann segir öryggisviðbúnað verða aukinn, til dæmis á gamlárskvöld, og útskýrir: „Þegar ég segi að við viljum ekki að frjálslegu lífi okkar sé raskað, á það einnig við um gamlárs- kvöld.“ Þessa dagana getur þannig „frjálst, sameiginlegt og opið“ þýtt fleiri löggur og þyngri vopn. Veðið Allir – stjórnmálamenn, stjórnmála- skýrendur og almenningur á sam- félagsmiðlum – virðast sammála um að það hafi ekki verið óvænt að árás sem þessi yrði í Berlín, held- ur tímaspursmál. Ef það fæst stað- fest, sem flestir ganga nú út frá, að árásarmaðurinn teljist til íslamista, jafnvel liðsmanna ISIS, þá er veiga- mesta eftirstandandi spurningin um staðreyndir málsins, hvernig hann kom til landsins. Í yfirlýsingu á þriðjudag for- dæmdu regnhlífarsamtök fjögurra stærstu samfélaga múslima í Þýskalandi, Koordinationsrat der Muslime, árásina. Aiman Mazyek, formaður samtakanna, sagði múslima Þýskalands munu biðja fyrir fórnarlömbunum og aðstand- endum þeirra, og hvatti til að árásarmanninum yrði mætt með „öllum þunga laganna“. Svipuðu orðfæri beitti Merkel í ávarpi sem var sjónvarpað, manninum skuli refsað jafn harkalega og lög leyfa. „Ég veit að það væri sérstaklega erfitt fyrir okkur öll ef kæmi í ljós að þessi verknaður hafi verið framinn af manneskju sem hefði komið til Þýskalands í leit að vernd og hæli,“ sagði Merkel í sama ávarpi. „Það væri sérstaklega ógeðfellt gagnvart þeim fjölmörgu Þjóðverjum sem sinna flóttamannahjálp dag frá degi, og gagnvart þeim fjölda fólks sem raunverulega þarf á vernd okkar að halda og leggur sig fram um að að- lagast landi okkar.“ Ef árásarmaðurinn reynist hafa komið til landsins sem flóttamað- ur, eru kosningar næsta árs í húfi: Hægri-öfgaflokkurinn AfD myndi þá, ásamt fjölda annarra hópa, meðal annars innan CDU, leggja sig í líma við að skella skuldinni á Merkel og þá stefnu hennar að skjóta skjólshúsi yfir þá sýrlensku flóttamenn sem til landsins koma. Sú hreyfing iðar í skinninu: aðeins tveimur tímum eftir árásina lauk Marcus Pretzell, Evrópuþingmaður AfD, Twitter-færslu um árásina með orðunum: „Es sind Merkels Tote!“ – í grófri þýðingu: „Þetta eru fórn- arlömb Merkel.“ Óvinurinn Hliðstæð skilaboð bárust frá öllu því popúlíska hægri sem við gæt- um okkar á að kalla ekki fasista á meðan þeir hafa engan drepið: Frá le Pen í Frakklandi, Farage í Bretlandi, Trump í Bandaríkjun- um – öllum sem vilja líta á árásina sem sönnun þess óláns sem dynji yfir lönd sem taka flóttafólki opn- um örmum. Þessar hreyfingar eru í reynd ekki aðeins mótfalln- ar hælisleitendum, heldur breið- um hópum innflytjenda, ekki síst múslimum. Þýskaland hefur, eftir stefnumörkun Merkel árið 2015, verið þyrnir í augum þeirra. Þetta eru breiðfylkingarnar. Ýms- ir smærri hópar gerast nú enn op- inskárri um afnám annarra manna réttinda sem grundvöll stefnu sinn- ar. Munurinn á þessum hópum og fasistum er ekki meiri en munur- inn á gati og holu. Ein slík samtök í Þýskalandi heita Einprozent, önnur Identitäre Bewegung – Eittprósentið og Sjálfsmyndahreyfingin. Á þriðju- dagskvöld fylktu meðlimir þeirra í Dresden liði í mótmælagöngu, með slagorð á við „Stoppt den Terror! Stoppt Merkel!“. Síðar í vikunni hafa þeir hafa boðað til mótmælastöðu við aðsetur kanslaraembættisins. Þegar staðreyndir málsins koma í ljós, eru því ekki aðeins kosn- ingar að veði, í átökunum um túlk- un árásarinnar, og ekki aðeins þýsk stjórnmál, heldur verða þau kafli í yfirstandandi átökum um afstöðu Vesturlanda til innflytjenda, og til sjálfra sín: Eru Vesturlönd eitthvað opið eða eitthvað afgirt? Er gestrisni lykilatriði í skilgreiningu á Vestur- löndum, eða er vestrænt það að koma fram við ókunnuga sem óvini? Það nýstárlegasta í þessum átökum um hugmyndafræði og stefnu er kannski að þau birtast nú sem átök milli frjálslynda hægrisins og öfga- -hægrisins: milli kapítals sem vill gjarnan meira vinnuafl, enda eru Þjóðverjar óðum að eldast, og þjóð- ernishyggju sem vill ekki helvítis útlendingana. Hvar er vinstrið? Árásarmaðurinn er enn ófund- inn. Á miðvikudag sagðist lögreglan hafa fundið bréf til rúmlega tvítugs manns frá Túnis í flutningabíln- um, Anis Amri. Hann liggur und- ir grun og er hans nú leitað. Um- sókn Amri um hæli í Þýskalandi er sagt hafa verið synjað í júlí á þessu ári, þar sem Túnis telst til öruggra landa. De Maizière innanríkisráð- herra segir að Anis Amri hafi verið leitað frá því snemma á aðfaranótt miðvikudags, en áréttar, í ljósi fyrri reynslu, að grunurinn er enn óstað- festur. Ef árásarmaðurinn reyn- ist hafa komið til landsins sem flóttamaður, eru kosningar næsta árs í húfi: Hægri-öfgaflokkurinn AfD myndi þá, ásamt fjölda annarra hópa, meðal annars innan CDU, leggja sig í lima við að skella skuldinni á Merkel. Allir – stjórnmálamenn, stjórnmála- skýrendur og almenningur á samfélags- miðlum – virðast sammála um að það hafi ekki verið óvænt að árás sem þessi yrði í Berlín, heldur tímaspursmál. Í Gullöld bílsins eftir Örn Sigurðsson er þetta minnisstæða tímabil rifjað upp með yfir 400 myndum af flottustu bíl­ unum og auglýsingunum sem notaðar voru til að kynna þá. Greint er frá því helsta sem gerðist á þessum árum og stiklað á stóru í sögu framleiðendanna. Ómissandi bók fyrir alla bílaáhugamenn! Á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar voru risarnir þrír, General Motors, Ford og Chrysler, nær allsráðandi á bílamark­ aði heimsins. Á sama tíma átti sér stað mesta bylting í tækni og hönnun sem sést hefur og glæsilegustu bílar sögunnar litu dagsins ljós. Örn Sigurðsson landfræðingur og bíla­ sagnfræðingur er höfundur bókanna Íslenska bílaöldin og Króm og hvítir hringir, og ritstjóri fjölda erlendra bíla­ og tækni­ bóka sem komið hafa út hjá Forlaginu. www.forlagið.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.