Fréttatíminn - 06.01.2017, Qupperneq 8

Fréttatíminn - 06.01.2017, Qupperneq 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 6. janúar 2017 Áhugi erlendra veðmála-netsíðna á íslenskri knattspyrnu er heil- mikill og eykst ár frá ári. Nýleg rannsókn á þátttöku leikmanna íslenskra leikmanna félagsliða í knattspyrnu leiðir í ljós að nokk- ur hópur leikmanna stundar veð- mál reglulega og veðjar jafnvel á úrslit í eigin deild og á eigin leiki. Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is Daníel Þór Ólason, prófessor við sálfræðideild Háskóla Íslands, hef- ur stundað rannsóknir á þátttöku Íslendinga í peningaspilum frá ár- inu 2002, en þær rannsóknir hafa beinst bæði að unglingum og full- orðnum. „Þessar rannsóknir hafa sýnt að það er ákveðinn hluti Ís- lendinga sem á við verulegan spila- vanda að stríða og síðasta rannsókn frá 2011 benti til að það væri um tvö og hálft prósent þjóðarinnar,“ segir Daníel Þór. Nýja pókerfárið Nú hafa Daníel Þór og sam- starfsmenn hans unnið rann- sókn sem sérstaklega snýr að knattspyrnumönnum íslenskra félagsliða í meistaraflokki og þátt- töku þeirra í peningaspilum. „Fyrri rannsóknir okkar hafa sýnt að spilavandi er almennt algengari hjá ungu fólki og unglingum. Er- lendis, til dæmis á ráðstefnum, hefur maður síðan orðið var við að undanförnu að íþróttaveðmálum hefur vaxið mjög fiskur um hrygg. Það er gríðarleg aukning á þessu sviði og þannig er hægt í rauntíma að veðja um einstök atvik í ýmsum íþróttagreinum, en knattspyrnan er vinsælust. Ég hef stundum talað um að þetta sé „nýja pókerfárið“ og sambærilegt við það þegar net- póker naut gríðarlegra vinsælda eft- ir aldamótin, en það fár virðist vera á nokkru undanhaldi.“ Áhugi á íslenskri knattspyrnu Daníel segir að íslensk knattspyrna í öllum deildum meistaraflokks karla og kvenna og jafnvel líka í öðrum flokki sé vinsæl þegar kemur að net- veðmálum. „Þetta helgast ekki síst af þeirri staðreynd að hér er leikið á sumrin á meðan leikmenn í mörg- um öðrum knattspyrnudeildum eru í fríi. Í rannsókninni reyndum við að ná til sem flestra af þeim rúm- lega tvö þúsund leikmönnum sem eru í öllum fimm karladeildum ís- lenska fótboltans í meistaraflokki og kvennadeildunum tveimur. Leik- menn á leikskýrslum, átján ára og eldri, skilgreindum við sem þýði og að lokum fengum við gild svör við könnun okkar frá 725 leikmönnum, en þar af voru 547 karlar og 178 kon- ur. Meðalaldur þátttakenda var 23 ár.“ Daníel segir markmið rann- sóknarinnar hafa verið þríþætt: að kanna algengi spilavanda hjá leik- mönnum, kanna umfang veðmála hjá þessum hópi á leiki í eigin deild eða jafnvel leiki sem viðkomandi tók þátt í sjálfur og loks að kanna hvort leikmenn hafi veitt upplýs- Hægt að veðja um allt í íslenskum fótbolta ingar um leiki og lið til þriðja aðila. „Mér ski lst að Evrópska knattspyrnusambandið hafi nokkr- ar áhyggjur af hagræðingu úrslita í fótboltaleikjum. Í ljósi þess að víða um heim er verið að veðja á leiki í íslenskri knattspyrnu þótti okkur vert að kanna þessi atriði.“ Karlarnir veðja Þegar kemur að því að veðja á úr- slit íþróttakappleikja eru það fyrst og fremst karlar í leikmannahópn- um sem að virðast stunda þau veð- mál hér á landi. „Meðal leikmanna eru knattspyrnuveðmál vinsælustu peningaspilin ólíkt því sem gengur og gerist hjá almenningi, sem velur frekar lottó og happdrætti. Það er kannski eðlilegt í ljósi þess að þessi hópur telur sig hafa nokkurt vit á þessum málum,“ segir Daníel Þór. „Leikmenn nota fyrst og fremst erlendar vefsíður en ekki Íslenska getspá til að veðja á íslenska og er- lenda leiki, en fleiri hundruð slík- ar síður má finna á netinu. Þar er úrval af leikjum meira og hægt að veðja um fleiri einstök atriði í fram- vindu leiksins.“ Daníel segir niðurstöðurnar sýna að 2,4 prósent leikmanna séu lík- lega haldnir spilafíkn. „Síðan tök- um við saman það sem við köll- um „nokkur hætta á vanda“ og þá hækkar þessi tala upp í 9,6 prósent. Þetta eru fyrst og fremst karlar, því að við fundum ekki dæmi um nema eina konu í þeim hópi af þeim 178 sem svöruðu könnuninni. Þetta eru nokkuð hærri tölur hjá leikmönn- um en hjá sama aldurshópi, ef horft er á þjóðina alla.“ Hagræðing úrslita Í könnuninni sagðist um helming- ur svarenda vita til þess að leik- menn væru að veðja á úrslit í eigin deild. Þeir voru líka spurðir hvort þeir vissu til þess að leikmenn væru að veðja á úrslit eigin leikja og þá sögðust 23 prósent svarenda vita til þess. „Þegar leikmenn sem veðja á úr- slit knattspyrnuleikja á erlendum vefsíðum eru spurðir sömu spurn- inga kemur í ljós í heildina hafa um 7 prósent úrtaks veðjað á úr- slit í leikjum sem þeir hafa sjálfir spilað. Ef aðeins hópur þeirra sem stunda veðmál reglulega er skoð- aður hækkar þessi tala og þá kem- ur í ljós að um fimmtungur þeirra sem stunda veðmál á erlendum vefsíðum hefur veðjað á sinn eigin leik. Og þarna eru greinileg tengsl við tíðni þátttöku, því virkari sem menn eru í slíkum veðmálum þeim líklegri voru þeir að hafa veðjað á sinn eigin leik.“ Að íslenskri knattspyrnu steðj- ar nokkur ógn að slíkum veðmál- um, segir Daníel að ljóst megi vera. Rannsóknin, sem kynnt hefur ver- ið KSÍ, sýni jafnframt að útsendar- ar erlendra vefsíðna séu að leita til íslenskra leikmanna til að gefa upplýsingar um stöðu liða og leik- manna. „Það er ljóst að það er ákveðin hætta á að menn freistist til að hafa áhrif á leik sem þeir spila sjálfir en eru jafnframt að veðja á. Þarna er hægt að veðja um einstök atriði, jafnvel nákvæm atriði í framvindu leiksins, til dæmis hvort liðið fái fyrstu hornspyrnuna og svo fram- vegis. Á þessum síðum er hægt að veðja um tugi atvika í hverjum leik og því eru í raun engin takmörk sett hvað mönnum dettur í hug að finna sem tilefni veðmáls. Þarna geta leynst freistingar og geta jafnvel grafið undir trú- verðugleika íþróttarinnar ef knattspyrnuhreyfingin er ekki á varðbergi,“ segir Daníel Þór en bendir jafnframt á að niðurstöður rannsóknarinnar segi ekkert til um hvort hér hafi hagræðing úrslita átt sér stað. „Hins vegar er full ástæða til að taka niðurstöðurnar alvarlega og brýnt að þeir sem vinna á þessu sviði árétti fyrir leikmönnum að vera ekki að veðja á eigin leiki eða leiki í eigin deild.“ Daníel Þór Ólason hefur í rannsóknum fylgst með þátttöku landsmanna í peningaspilum. Hann segir mikilvægt fyrir knattspyrnuhreyfinguna að vera á varðbergi þegar kemur að trúverðugleika íþróttarinnar. Mynd | Hari 2,4% íslenskra knattspyrnumanna stríðir líklega við spilafíkn. 7% leikmanna hafa veðjað á úrslit eigin leikja á erlendum vefsíðum. „Leikmenn nota fyrst og fremst erlendar vefsíður en ekki Íslenska getspá til að veðja á íslenska og erlenda leiki, en fleiri hundruð slíkar síður má finna á netinu. Mynd | Shutterstock ÚTSALA Suðurlandsbraut 30 | 553 3755 Opið alla virka daga 10:00 - 18:00 og laugardaga 10:00 - 14:00
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.