Fréttatíminn - 06.01.2017, Qupperneq 26
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 6. janúar 2017
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Ég var ekki með brjál-aða framtíðarsýn, mig langaði bara að sjá hvað myndi gerast ef ég prófaði þetta. Það er
eiginlega ótrúlegt hvað þetta hef-
ur gengið vel og hvað þetta hef-
ur verið mikið ævintýri. Ég hef
blessunarlega ekki mikið þurft að
auglýsa mig. Ég er búin að vera
að þessu svo lengi og hef kynnst
mörgu fólki á lífsleiðinni sem hef-
ur bent á mig. Svo hefur þetta bara
undið upp á sig,“ segir Margrét
Arnardóttir, lífeindafræðingur og
harmonikkuleikari, sem var búin
með tvö ár í doktorsnámi í lífeinda-
fræði við Háskóla Íslands og starf-
aði á Landspítalanum við rann-
sóknir þegar hún tók ákvörðun um
að hætta í náminu og einbeita sér
alfarið að harmonikkunni. Síðan
eru liðin tvö ár og Margrét hefur
ekki litið um öxl, enda hefur hvert
spennandi verkefnið rekið annað
og síðustu misseri hafa verið æv-
intýri líkust.
Margrét er sjálf eins og hálfgerð
ævintýraprinsessa, með fjólublátt
hárið og íklædd mynstruðum kjól,
þegar blaðamaður heimsækir hana
í einstaklega notalega kjallaraíbúð-
ina í gamla Vesturbænum.
Fannst hún ekki ná að blómstra
Margrét hefur spilað á harmonikku
frá því hún var sjö ára en hún er
32 ára í dag. Hún á ekki langt að
sækja áhugann því faðir hennar er
harmonikkuleikari. Sem lítil stúlka
átti hún mörg áhugamál en harm-
onikkan stóð alltaf upp úr. Hún
vissi strax að hún myndi aldrei
hætta að spila á þetta magnaða
hljóðfæri. „Ég hafði alltaf mikinn
áhuga á harmonikkunni hjá pabba
og foreldrar mínir áttuðu sig fljótt
á því. Pabbi fékk ekkert að æfa því
ég var alltaf mætt með forvitnis-
glampa í augum og lét hann ekki
í friði,“ segir Margrét sem fékk í
framhaldinu litla rauða harmon-
ikku sem hentaði henni. Nú er hún
að spila á þriðju harmonikkuna og
þarf að fara að skipta, en svona
hljóðfæri kostar skildinginn. „Ef
ég ætti alla peninga í heiminum þá
myndi ég kaupa mér harmonikku á
fjórar, fimm milljónir, en ég sé það
ekki alveg gerast og er því að reyna
að safna mér fyrir um tveggja millj-
óna króna hljóðfæri. Þetta er svo
stórt dæmi að hugsa um, en samt
mikilvægt því þetta er auðvitað
vinnutækið mitt.“
Margrét hlær þegar hún er spurð
hvort það hafi ekki verið erfið
ákvörðun að hætta í doktorsnám-
inu eftir að hafa lagt mikla vinnu
verkefnið. „Já, þetta var mjög „hea-
vy“. Ég var auðvitað að vinna í ver-
kefni sem ég var búin að taka að
mér og vildi klára. En tilfinningin
sem ég hafði samhliða var mjög
beinskeytt. Ég hef stundum lýst
þessu þannig að mér leið eins og ég
væri viðarkubbur sem átti að líma
við vegg, en það var verið að líma
góðu hliðina inn. Mér fannst ég
ekki ná að blómstra sem ég sjálf,“
útskýrir hún. „Svo fann ég að það
var einhver gluggi að opnast í tón-
listinni sem ég varð að stökkva á.
Það var ekki eitthvað eitt verkefni
sem ég gat fengið heldur fann ég að
það var komin ákveðin eftirspurn
og áhugi í samfélaginu fyrir harm-
onikkunni. Það er algjör draumur
að geta unnið við þetta og á sama
tíma vera alltaf að vinna að því að
bæta sig sem hljóðfæraleikara. Auk
þess sem tónlistin veitir bara svo
mikla lífsgleði og lífsfyllingu.“
Launin á spítalanum voru heldur
ekki það að há að Margrét lækkaði
mikið í launum við að breyta um
starfsvettvang. „Ég hugsaði reynd-
ar lítið um peninga þegar ég tók
þessa ákvörðun, þetta snerist fyrst
og fremst um sálartetrið. En vissu-
lega þarf maður að eiga í sig og á og
ég var alveg tilbúin í að taka alls-
konar ótengda aukavinnu með ef
þess þyrfti, en það hefur bara lítið
sem ekkert komið til þess.“
Rosselini fram fyrir á klósettið
Líkt og áður sagði hefur hvert
spennandi verkefnið rekið annað
hjá Margréti síðustu tvö árin. Ver-
kefni erlendis standa upp úr, enda
elskar hún að ferðast. „Ég er búin
að fá að ferðast mjög mikið, sem
er alveg æðislegt. Það er eitt það
skemmtilegasta. Það er svo frábært
að fá að sjá heiminn með harmon-
ikkuna að vopni og fá að spila út
um allt. Ég gæti alveg sætt mig við
að fá að spila sem víðast um heim-
inn,“ segir hún dreymin.
Síðasta árið hefur hún til að
mynda spilað með Bubba Morthens
í Færeyjum og túrað um Þýskaland
með tónlistarkonunni Sóleyju. Þá
fór hún til Frakklands og kynnti
íslenska tónlist í tengslum við EM,
auk þess sem hún hefur sinnt ver-
kefnum bæði í Lichtenstein og
Bandaríkjunum. Vorið 2015 fylgdi
hún líka aðstandendum kvik-
myndarinnar Hrúta á kvikmynda-
hátíðina í Cannes. Það var ansi
mögnuð upplifun. „Við gistum
Margrét skilur
ekki þá mýtu
að harmon-
ikkutónlist
sé bara fyrir
eldra fólk,
flutt af eldra
fólki. Á meðan
tónlist er
skemmtileg á
aldurinn ekki
að skipta máli.
Myndir | Hari
Langar að ögra með
harmonikkunni
Margrét Arnardóttir hætti í doktorsnámi fyrir tveimur árum og
ákvað að einbeita sér alfarið að harmonikkuleik. Síðan hefur hvert
ævintýrið rekið annað. Hún hefur meðal annars slegið upp óvæntu
harmonikkuballi í fjöllunum í Licthenstein og spilað í lopapeysu á
kvikmyndahátíðinni í Cannes.
„Ég hafði alltaf mikinn
áhuga á harmonikkunni
hjá pabba og foreldrar
mínir áttuðu sig fljótt á
því. Pabbi fékk ekkert
að æfa því ég var alltaf
mætt með forvitnis-
glampa í augum og lét
hann ekki í friði.“
ÚTSALA!
H E I L S U R Ú M
A
R
G
H
!!!
0
40
11
7
#3
ROYAL CORINNA 120
Hágæða millistíf fimm-svæða skipt heilsudýna
með poka-gorma kerfi ásamt botni og fótum.
(Stærð 120x200 cm)
6.324 kr.* Á MÁNUÐI
FULLT VERÐ 98.036 kr.
ÚTSÖLUVERÐ 68.625 kr.
30%
AFSLÁTTUR!
(*
Mi
ða
ð v
ið
12
má
na
ða
va
xta
lau
sa
n r
að
gr
eið
slu
sa
mn
ing
m
eð
3,
5%
lá
nt
ök
ug
jal
di
og
40
5 k
r. g
re
iðs
lug
jal
di)
GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4
daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt
að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum
uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún
er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar
sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir.
Þar hefur í árhundruði blandast
saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og
fallegasta borg Póllands, saga
hennar nær aftur til ársins 997.
Glæsilegur arkitektúr, forn menning
og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina
að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
VERÐ FRÁ 87.900.-
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
VILNÍUS Í LITHÁEN
Vilníus er eins og margar aðrar borgir í
Eystrasaltinu frá miðöldum og glæsileg eftir
því. Upphaf borgarinnar má rekja til ársins
1330 og er gamli bærinn á minjaskrá Unesco.
Þröngar steinilagðar götur er viða að finna í
gamla bænum og gamli byggingastíllinn
blasir hvarvetna við.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.