Fréttatíminn - 06.01.2017, Side 28

Fréttatíminn - 06.01.2017, Side 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 6. janúar 2017 í pínulitlum bátum við hliðina á kvikmyndahöllinni, og það var allt mjög þröngt. Það eitt og sér var pínu áskorun því maður var að fara á alvöru rauðan dregil og einfald- ir hlutir eins og að fara í sturtu og mála sig voru svolítið snúnir. Ég er líka svo lítið fyrir að vera geðveikt fín, nema bara á minn hátt. Ég er ekki mikið fyrir síðkjóla og pinna- hæla, eins og tíðkast á rauða dregl- inum. Ég er meira svona mann- eskjan sem er alltaf í götóttum sokkabuxum. Þetta var allt mjög súrrealískt. Við buðum til dæmis Isabellu Rosselini fram fyrir okk- ur á klósettið,“ segir Margrét hlæj- andi þegar hún rifjar þetta upp. En hennar hlutverk úti var að spila í partíi á vegum íslenska hópsins við ströndina, íklædd lopapeysu. Og vakti það mikla lukku viðstaddra. Þar sem Margrét átti enga skó með pinnahælum keypti hún þá sérstaklega til að ganga rauða dregilinn. Og við þá klæddist hún síðu pilsi. Hún reyndi að vera fín, samt ekki of fín. „Ég vildi ekki vera fínust því ég var bara harmon- ikkuleikarinn sem var að spila um kvöldið,“ segir Margrét og skellir upp úr. „Ég reyndi bara að vera sannfærandi. Að sannfæra fólk um að ég ætti heima þarna þó að innri líðan var kannski ekki alveg á sama máli.“ Harmonikkuball á Húrra Margrét starfar ekki bara sem harmonikkuleikari, heldur er hún að læra bæði djass og klassíska tón- list í FÍH. Nýlega tók hún svo við sem framkvæmdastjóri Reykjavík Folk Festival og starfar jafnframt með Stelpur rokka, sem eru sjálf- boðaliðarekin samtök sem starfa af femínískri hugsjón við að efla ungar stelpur í gegnum tónlistar- sköpun. Hún sá aldrei fyrir sér þegar hún var yngri að það gæti orðið hennar aðalstarf að vera harmonikkuleik- ari. „Það hvarflaði ekki að mér að það væri hægt. En ég vissi að ég myndi aldrei hætta að spila, þó ég hafi hætt að læra sem unglingur.“ Smám saman fór hún þó að átta sig á því að fólk væri að fíla harmon- ikkuna ansi vel og hún vakti alltaf mikla athygli hvar sem hún fór. „Þegar ég var lítil talaði ég ekki mikið um það við bekkjarsystkinin að ég spilaði á harminokku, ég var frekar að fela það, enda þótti það ekki töff. Kannski var ég samt bara miklu meðvitaðri um það en aðr- ir og hrædd við stríðnina. En mér finnst mjög fallegt að eiga þetta sem mitt. Og sem yngsta barni fannst mér alltaf gaman að fá að spila fyrir fólk við ýmis tækifæri, hvað þá ef maður komst í sjónvarp- ið.“ Margrét spilar allskonar tón- list á harmonikkuna og er alltaf að prófa sig áfram með eitthvað nýtt. „Ég á mér stóran draum um að prófa að hafa harmonikkuball á skemmtistað eins og Húrra. Mér finnst það mjög spennandi hug- mynd. Mig langar aðeins að ögra og sjá hvað ég kemst langt með harmonikkuna, því harmonikku- böll eru snilld. Ég hélt einmitt óvænt svoleiðis undir berum himni í fjöllunum í Liechtenstein þar sem fólk á öllum aldri dansaði við allskonar polka, valsa og fleira. Þetta var brjálæðislega gaman og ég held þetta væri alveg gerlegt hérna heima fyrir yngra fólkið. Ég skil heldur ekki þessa mýtu um að harmonikutónlist sé bara fyrir eldra fólkið, spilað af eldra fólki. Á meðan tónlistin er skemmtileg og grípandi á aldur ekki að skipta máli.“ Sjálfri finnst Margréti mest gaman að spila óhefðbunda tón- list á nikkuna. „Ég hef líka unun af því að spila fallega tónlist, að túlka með hjartanu í gegn um belginn á hljóðfærinu. Það er hægt að segja svo mikla sögu með honum.“ Að- spurð segir hún í raun hægt að spila hvaða tónlist sem er á harm- onikku ef viljinn er fyrir hendi. Allt varð léttara En hefur hún fundið fyrir ein- hverri eftirsjá yfir að hafa hætt í doktorsnáminu? „Nei, ég hef alls ekki séð eftir þessu. Ég gæti aldrei verið að vinna með tónlistinni núna og þetta er svo ógeðslega skemmtilegt og mikil lífsfylling. Ég er að vinna svo mikið með sjálfa mig og fyrir mig. Þetta er bara svo mikið það sem ég sjálf hef fram að færa, og að hafa atvinnu af því er æðislegt.“ Ættingjar og vinir Margrét- ar tóku mjög vel í það þegar hún sagðist ætla að hætta í náminu og snúa sér alfarið að tónlist. Það var enginn sem reyndi að telja henni hughvarf eða sagði ákvörðunina óskynsamlega. „Ég var alveg hissa hvað ég fékk mikinn stuðning. En það var bara þannig að allt sem var svo þungt varð einhvernveg- in léttara um leið og ákvörðunin hafði verið tekin. Ég held að fólkið í kringum mig hafi verið búið að sjá og finna það. Foreldrar mínir og systkini studdu mig alla leið og gera það ennþá.“ Þó Margrét tali mikið um hvað það er skemmtilegt að vera harm- onikkuleikari, þá getur það líka verið erfitt og það kemur fyrir að hlutirnir verða yfirþyrmandi. „Ég er alltaf að læra það betur og betur hvað fólkið í kringum mig er ótrúlega stuðningsríkt. Ég finn svo vel hvað fólk heldur með mér, hefur trú á öllu sem ég geri og ef mér líður illa þá get ég alltaf leitað til þeirra. Ég hef verið að gera mér grein fyrir því upp á síðkastið hvað það skiptir rosalega miklu máli að hafa fólk í kringum sig sem trúir á mann.“ „Þegar ég var lítil talaði ég ekki mikið um það við bekkjarsystkinin að ég spilaði á harminokku, ég var frekar að fela það, enda þótti það ekki töff. Kannski var ég samt bara miklu meðvitaðri um það en aðrir og hrædd við stríðnina. En mér finnst mjög fallegt að eiga þetta sem mitt.“ BJÓR& MATUR GASTROPUB SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is námskeið Í vetur bjóðum við skemmtilegt námskeið í bjór- og matarpörun á Sæta Svíninu. Námskeiðin eru tilvalin fyrir einstaklinga og vina- eða starfsmannahópa. Smakkaðar verða 11 tegundir af sérvöldum bjór með 11 mismunandi smáréttum og farið yfir galdurinn að velja saman bjór og mat. Um námskeiðin sér sælkerinn og bjórgúrúinn Sveinn Waage sem hefur kennt við Bjórskólann frá stofnun hans 2009. Hann er einlægur áhugamaður um pörun á mat og bjór og mun leiða námskeiðið með glettni og svínslegri gleði. Nánari upplýsingar um námskeiðin og dagsetningar eru á saetasvinid.is og í síma 555 2900. Námskeiðin verða haldin á fimmtudögum milli klukkan 16.30 og 19.00 og kosta 5.900 kr. á mann.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.