Fréttatíminn - 06.01.2017, Blaðsíða 64
8 FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2017NÁMSKEIÐ
Of gaman til að
fara í frímínútur
Vorönn við Hússtjórnarskólann í Reykjavík
hefst 9. janúar 2017 og enn eru nokkur pláss laus.
Unnið í samstarfi við
Hússtjórnarskólann í Reykjavík.
Skólasetning Við Hússtjórnarskólann í Reykjavík er 9. janúar 2017 klukkan 08.30 og að
henni lokinni hefst skólinn. Enn
eru nokkur laus pláss á vorönn.
Margrét Dórothea Sigfúsdótt-
ir skólastýra er full tilhlökkunar.
Nemendur skólans munu á einni
önn læra að elda, prjóna, sauma,
þrífa og allt milli himins og jarðar.
Stærstur hluti nemenda er ungar
konur en einstaka karlmaður
slæðist þangað inn.
„Nemendurnir eru fólk sem
langar að læra að elda, prjóna,
geta saumað á sig flíkur og geta
rekið heimili,“ segir Margrét sem
hefur stýrt skólanum í 18 ár. Flest-
ir nemendur koma beint eftir
stúdentspróf og eru á aldrinum
18 til 26 ára. Aðspurð segir hún
að ungt fólk í dag virðist kunna
minna til verka inn á heimilinu en
áður og því sé full þörf á því námi
sem skólinn býður upp á.
„Sumir hafa varla séð strau-
járn,“ segir hún kímin á svip.
Hvernig á að strauja og hugsa um
föt er eitt af því sem kennt er við
skólann, en námið er fjölbreytt og
skemmtilegt.
„Mér finnst skemmtilegast að
komast í eldhúsið að kenna og
miðla. Það er líka svo gaman að
vera með þessu unga fólki,“ seg-
ir Margrét. Í skólanum er kennt
hvernig á að elda frá grunni og
Hæfir þjálfarar
og hóptímar
sem henta öllum
Birkir Vagn, einkaþjálfari í World Class, segir að árið fari vel af stað og
allir geti fundið þjálfun við sitt hæfi í World Class stöðvunum.
Unnið í samstarfi við World Class
Það er alltaf mikið af fólki hjá okkur í World Class--stöðvunum í janúar og það er nóg í boði fyrir
alla,“ segir Birkir Vagn Ómarsson,
íþróttafræðingur og einkaþjálfari í
World Class í Laugum.
Heilsuræktin á hug og hjörtu
landsmanna nú á nýju ári og í
World Class er mikill fjöldi af hæf-
um einkaþjálfurum og hóptímar
sem henta öllum.
„Það er mjög vinsælt að leita
til einkaþjálfara og fólk gerir það
af ýmsum ástæðum. Sumir þurfa
einfaldlega félaga til að koma sér
á æfingu. Þeir kunna kannski al-
veg æfingarnar en þurfa hvatn-
inguna sem felst í því að vera
með einkaþjálfara. Svo eru það
byrjendur sem þurfa á leiðsögn
að halda. Það er mjög gott að fá
persónulega þjónustu í byrjun, þá
lærir fólk rétta líkamsbeitingu við
framkvæmd æfinga.
Fólk sem er í góðu formi leitar
líka til einkaþjálfara og sækir þá
í að hafa æfingarnar erfiðar og
hvetjandi. Það er mjög algengt
að fólk sem æfir sjálft sé að taka
æfingar sem því finnst skemmti-
legar eða æfingar sem það er gott
í. Það eru mjög fáir sem nenna að
gera eitthvað sem þeir eru lélegir
í. Einkaþjálfari lætur þig líka gera
hvernig á að útbúa hefðbundinn
íslenskan heimilismat, til dæmis
hvernig á að steikja fisk, búa til
fiskibollur, steikja hrygg og annað
í þeim dúr. Auk þess sem ráðist er
í sláturgerð og sultugerð.
Nemendahópnum er skipt í tvo
hluta og annar hópurinn er í eld-
húsinu en hinn fer í handavinnu
og er þar í útsaumi, fatasaumi og
ræstingu. „Við kennum í einni lotu
á daginn og oftast finnst öllum svo
gaman að vinna að frímínútum er
gjarnan sleppt.“
Á miðri önn skipta hóparnir aftur.
Prjón og vefnaður er á dagskrá alla
önnina fyrir báða hópana auk þess
sem ýmislegt annað er kennt, til
dæmis næringarfræði og vörufræði.
„Við kennum ýmislegt smálegt sem
auðveldar manni lífið, til dæmis
hvernig hægt er að láta flíkur og
húsgögn endast með réttri um-
hirðu, hvernig á að ná fitublettum
úr fötum, hvernig á að umgangast
þvottavélarnar svo það komi ekki
fýla af fötunum og hvernig á að
nota þurrkara, svo dæmi séu nefnd.
Þrif eru eitt af því sem við kennum
mjög vel og það kemur mörgum til
dæmis á óvart að gömlu vaskarnir
í skólanum líta allir út eins og þeir
séu nýir,“ segir Margrét.
Stór hluti nemenda kýs að dvelja
á heimavist skólans á meðan önn-
in stendur yfir, en oftast eru það
nemendur sem búa utan höfuð-
borgarsvæðisins. „Krakkar sem búa
í úthverfunum velja líka að vera á
heimavistinni, enda er það svo gam-
an. Þar myndast mikil vinátta og
allir sitja saman í klessu á kvöldin
og prjóna saman yfir sjónvarpinu.
Þetta eru fullorðnar stelpur og
aldrei neitt vesen á þeim.
Þegar önninni lýkur þá eru oftast
felld tár, faðmast og teknar myndir
til að minnast góðra stunda.“ Eins
og áður sagði eru enn nokkur pláss
laus og um að gera fyrir þá sem
áhuga hafa á því fjölbreytta námi
sem fer fram í Hússtjórnarskólanum
að grípa gæsina.
Allar upplýsingar er hægt
að finna á heimasíðu skólans
Hússtjórnarskolinn.is
eða í síma 551 1578.
það sem er leiðinlegt og þú færð
meira út úr æfingunni fyrir vikið,“
segir Birkir Vagn. „Það er misjafnt
hvort fólki finnst henta að vera
eitt og sér hjá einkaþjálfara eða í
hópi. Vinsælt er að vera þrír, fjórir
eða fimm saman í hópi, þá kemur
aukin hvatning og pressa frá þeim
sem eru með þér í hópi,“ segir
Birkir Vagn sem er einn vinsælasti
þjálfarinn í World Class.
Mikill fjöldi einkaþjálfara
starfar í World Class og er hægt
að kynna sér þá á heimasíðunni,
www.worldclass.is.
Birkir Vagn kennir vinsæla
tabata-tíma í Laugum í hádeginu
á virkum dögum. Allt að hundrað
manns æfa hjá honum í hverju
hádegi svo væntanlega er um
vinsælustu hóptímana hér á landi
að ræða. „Það er oft býsna mikil
stemning,“ segir Birkir Vagn.
„Þetta er mikil keyrsla í 45 mín-
útur, brennsla og lyftingar í bland.
Sumir láta sér nægja að mæta í
þessa tíma þrisvar í viku, skella
sér kannski í hot jóga hina tvo
dagana,“ segir Birkir Vagn þegar
hann er beðinn að lýsa tabata-
-tímunum.
„Þetta eru mjög fjölbreyttir
tímar sem henta öllum. Þarna eru
einfaldar æfingar sem eru gerðar
í miklu tempói, eins og að hlaupa
á staðnum og hnébeygjur með
léttum þyngdum. Þeir sem mæta í
tabata-tímana eru alveg frá 18-20
ára krökkum upp í sextugt fólk,“
segir hann.
Aðrir hóptímar sem notið hafa
mikilla vinsælda að undanförnu
eru Unglingahreysti sem eru fyrir
krakka í 7.-10. bekk.
„World Class reynir að koma til
móts við alla og þessir tíma eru
frábærir fyrir krakkana, hvort sem
þú ert í íþróttum eða ekki. Líka þá
sem finna sig ekki í hefðbundnum
æfingum en vilja fá hreyfinguna.
Krakkarnir æfa tvisvar í viku und-
ir leiðsögn þjálfara og þarna hef-
ur myndast mjög góð stemning.
Tímarnir hafa líka þjappað
krökkum úr mismunandi skólum
saman,“ segir Birkir Vagn.
Hann segir að æfingarnar í
Unglingahreysti séu hefðbundnar.
Mikið sé unnið með eigin líkams-
þyngd og ekki séu neinar þungar
lyftingar. „Þegar ég er að þjálfa
reyni ég að blanda saman leikjum
sem krakkar þekkja. Við förum
til dæmis stundum í skotbolta
þannig að ef þú ert skotinn þarftu
að taka tíu froskahopp eða eitt-
hvað slíkt. Krakkarnir fá fræðslu
um mataræði og almenn heilsu-
ráð, sem virðist oft ekki veita af.
En fyrst og fremst á þetta að vera
skemmtilegt.“
Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir,
skólastýra Hússtjórnarskólans
í Reykjavík, segir námið í skól-
anum fjölbreytt og skemmtilegt
og mikil vinátta myndist meðal
nemenda Mynd | Rut
Birkir Vagn Ómarsson
íþróttafræðingur er einn
vinsælasti þjálfari í World
Class. Það er alltaf fullt af
fólki í tabata-tímum hans í
hádeginu og Unglingahreysti
hefur sömuleiðis notið mikilla
vinsælda. Mynd | Hari
Fjöldi frábærra þjálfara eru í World Class
stöðvunum. Mynd | Hari