Morgunblaðið - 22.12.2016, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016
Heilsugæslan Höfða,
Heilsuborg og Apótekarinn
munu hefja starfsemi á
Bíldshöfða 9 vorið 2017.
Heilsukjarni rís
á Ártúnshöfða
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Í vondum veðrum að vetri til síð-
ustu ár hefur fólk oft orðið innlyksa
í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Á
mánudag biðu í þjónustumiðstöð-
inni um 50
manns á einka-
bílum af sér
storminn sem
gerði síðdegis og
við gestastofuna
á Haki voru
þrjár stórar rút-
ur í nokkra
klukkutíma, en í
þeim voru um
120 manns.
Ákvörðun um að
bíða eftir því að veðrið gengi niður
hefur vafalítið verið rétt, því margir
lentu í erfiðleikum á Mosfellsheiði.
Gullni hringurinn
getur verið erfiður
Lokanir vega eins og um Mos-
fellsheiði, Hellisheiði og Lyngdals-
heiði hafa færst í vöxt á síðustu ár-
um og var gripið til slíkra aðgerða
á mánudag er vetrarhvellur skall á.
Einar Á. E. Sæmundsen, fræðslu-
fulltrúi þjóðgarðsins á Þingvöllum,
hefur viðrað þá hugmynd að fyrr
verði gripið til slíkra aðgerða og
eins skjótari innri lokana í Þjóð-
garðinum.
Með slíkum aðgerðum haldi öku-
menn ekki upp á Mosfellsheiði að
austan, en í þá átt leggja tugir
rútubíla upp síðdegis á hverjum
degi á leið til borgarinnar eftir ferð
um Gullna hringinn. Síðdegis á
mánudag kom Einar að fjórum bíl-
um sem farið höfðu út af í blindbyl
á Mosfellsheiði, þar á meðal rútu
með 18 farþegum. Í engum tilvik-
anna urðu alvarleg slys og segir
Einar það mikla mildi.
„Meðan ég beið eftir björg-
unarliði var mjög mikil umferð alls
konar farartækja framhjá slys-
staðnum í arfavitlausu veðri. Þarna
voru mun stærri rútur að læðast yf-
ir heiðina í sortanum, en þær taka
á sig miklu meiri vind en sú sem
fór útaf,“ segir Einar.
Hann segir mögulegt að starfs-
fólk þjóðgarðsins geti aðstoðað við
lokanir inni á svæðinu. Þrátt fyrir
að lokað sé við Gljúfrastein í Mos-
fellsdalnum og hjá Laugarvatni við
Lyngdalsheiði geti tekið nokkurn
tíma að senda viðbragðsbíla yfir
heiðarnar til að loka við Miðfell og
Grafningsafleggjara. Ef það geri
hvell eftir hádegi séu þegar mjög
margir ferðamenn staddir á Þing-
völlum og oft á leið upp á Mosfells-
heiði.
Þá sé oft ekki búið að fullmanna
Biðstöð strandaðra ferðamanna
Fólk oft innlyksa á Þingvöllum Fyrr verði gripið til lokana innan þjóðgarðs
Kom að fjórum bílum utan vegar Alls konar farartæki í arfavitlausu veðri
Ljósmynd/Einar Á.E. Sæmundsen
Í skjóli Fjöldi ferðamanna frá Asíu hefur heimsótt Ísland í ár. Þeirra á meðal þessi glaðlegi hópur frá Malasíu, sem
leitaði skjóls í gestastofunni á Haki á mánudag. Þau höfðu ekki áður séð snjó, en fengu að kynnast íslenskum vetri.
Einar Á. E.
Sæmundsen
„Það mátti við því
búast að það væri
erfitt að fá svona
háttsettan yfir-
mann lögreglu
rannsakaðan al-
mennilega,“ segir
Garðar Steinn
Ólafsson, lög-
fræðingur Gunn-
ars Scheving
Thorsteinssonar,
lögreglumanns, sem ásamt starfs-
manni Nova kærði Öldu Hrönn Jó-
hannesdóttur, aðallögfræðing lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Settur héraðssaksóknari í málinu,
Lúðvík Bergvinsson, hefur fellt mál-
ið niður þar sem hann telur litlar lík-
ur á sakfellingu. Garðar Steinn ætlar
að áfrýja þeirri niðurstöðu til setts
saksóknara.
„Eins og mál þetta liggur fyrir er
þó ekkert sem bendir til þess að
kærða hafi í heimildarleysi rannsak-
að málið, aflað upplýsinga, dreift
nektarmyndum eða borið rangar
sakargiftir á kærendur,“ segir meðal
annars í bréfi héraðssaksóknara.
Garðar Steinn sagði í samtali við
mbl.is að í ákvörðun héraðssaksókn-
ara komi fram að nokkuð erfiðlega
hafi gengið að fá lögreglu til að að-
stoða við rannsókn málsins. Segir
hann að ef þrýst væri á lögreglu að
taka fleiri skýrslur, spyrja tiltekinna
spurninga, væri hægt að varpa frek-
ara ljósi á málið.
Mál gegn
Öldu Hrönn
fellt niður
Viðbúið að rann-
sóknin yrði erfið
Alda Hrönn
Jóhannsdóttir