Morgunblaðið - 22.12.2016, Page 14

Morgunblaðið - 22.12.2016, Page 14
friðun yrði aflétt af timburhúsinu að Veghúsastíg 1A og steinbænum að Klapparstíg 19. Árið 2013 tók Minja- stofnun neikvætt í affriðun steinbæj- arins, en ekki var tekin endanleg af- staða varðandi timburhúsið. Nokkr- um árum áður hafði vatn lekið um það (hitaveiturör sprakk) og húsið var mikið skemmt og var það metið ónýtt með álitsgerð 2011. Vegna þessa álits mat heilbrigðiseftirlitið húsið óíbúðaræft í ársbyrjun 2012. Minjastofnun affriðaði húsið á árinu 2014 vegna bágs ástands þess og gerði ekki athugasemdir við niðurrif þess. Vegna fyrrgreindra umsagna og álitsgerða var á fundi umhverfis- og skipulagsráðs tekið jákvætt í að auglýsa tillögu þá sem nú liggur fyr- ir. Fram kemur í umsögn Margrétar Þormar að Reykjavíkurborg hafi í nokkrum álitsgerðum og minnis- blöðum lagt á það áherslu að haldið yrði í bæði húsin, steinbæinn á Klapparstíg 19 og timburhúsið að Veghúsastíg 1. Þó að timburhúsið sé illa farið væri æskilegt að gera við það eða eftir atvikum endurbyggja það á núverandi stað, helst á upphaf- legum undirstöðum. Vegna fram kominna athugasemda var ákveðið að fara yfir málið á ný með það í huga að húsið stæði áfram á sínum stað. Fram kemur í umsögninni að tveir fundir voru haldnir á umhverf- is- og skipulagssviði með fulltrúum lóðarhafa. Fyrri fundurinn var hald- inn 19. október 2016 og var þá lóðar- höfum tilkynnt að borgin hefði, vegna fram kominna athugasemda, hug á því að vinna að því með lóðar- höfum að varðveita húsið á Veghúsa- stíg 1 og gera það upp/endurbyggja það á sínum stað. Óskað var eftir því að lóðarhafar legðu fram nýja tillögu sem miðaði að varðveislu hússins. Vildu halda í bæði húsin Þann 28. nóvember 2016 var svo haldinn annar fundur þar sem arki- tekt deiliskipulagsbreytinganna, Arkís arkitektar, lagði fram nýja til- lögu sem miðaði að því að halda í bæði steinbæinn og timburhúsið. Gert var ráð fyrir að færa timbur- húsið austar á lóðinni og voru ný- byggingar auk þess hækkaðar um eina hæð. Þá var með tillögunni gert ráð fyrir að auka byggingarmagn um u.þ.b 300 fermetra. Heildar– byggingamagn á lóðinni yrði 1.115 fermetrar. „Tillaga þessi tekur ekki nægilegt mið af gömlu húsunum sem gert er ráð fyrir að varðveita og er bygging- armagn skv. breytingartillögu of mikið fyrir þessa lóð,“ segir í um- sögn skipulagsfulltrúa. Því var lagt til að tillögu að deiliskipulagsbreyt- ingu verði hafnað. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins vildu samþykkja deili- skipulagið. Húsið hafi verið metið ónýtt og óíbúðarhæft og Minja- stofnun hafi ekki athugasemdir við niðurrif þess. Synja skipulagi í Skuggahverfi  Áralangar deilur um nýbyggingar og varðveislu gamalla húsa  Borgaryfirvöld telja að ónýtt timburhús við Vegahúsastíg hafi varðveislugildi  Telja byggingamagn á lóðinni of mikið Morgunblaðið/RAX Veghúsastígur 1 Húsið var byggt 1899 en var dæmt óíbúðarhæft eftir leka. Teikning/Arkís arkitektar Tillagan sem var hafnað Reisa átti hús með sex íbúðum innan um eldri húsin tvö sem fyrir eru á lóðinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Klapparstígur 19 Lóðarhafi hefur fallist á að steinhúsið fái að standa. BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgaryfirvöld hafa hafnað breyt- ingu á deiliskipulagi Skuggahverfis vegna lóðanna nr. 19 við Klapparstíg og nr. 1 við Veghúsastíg. Breyting- unni var hafnað í umhverfis- og skipulagsráði, síðan í borgarráði og loks í borgarstjórn sl. þriðjudag. Þar var synjun samþykkt með 10 at- kvæðum borgarfulltrúa Samfylking- arinnar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Framsóknar og flugvallarvina gegn 4 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Meirihlutinn bókaði að hann hafni deiliskipulags- tillögu um að heimilt verði að rífa eða fjarlægja timburhúsið við Veg- húsastíg, sem hafi ótvírætt varð- veislugildi. Um er að ræða verðmæta lóð í hjarta Reykjavíkur sem styr hefur staðið um árum saman. Langur aðdragandi Fram kemur í minnisblaði Mar- grétar Þormar hjá skipulagsfulltrúa borgarinnar að deiliskipulagsbreyt- ing þessi hafi átt sér langan aðdrag- anda sem hófst með því að lóðirnar Veghúsastígur 1 og Klapparstígur 19 voru sameinaðar árið 2008. Sam- kvæmt deiliskipulagi, sem samþykkt var árið 2004, var gert ráð fyrir að mætti rífa síðasta steinbæinn í Skuggahverfi að Klapparstíg 19 og hélst sú heimild inni þegar lóðirnar voru sameinaðar árið 2008. Timbur- húsið á Veghúsastíg 1 var byggt árið 1899. Árið 2009 var lögð fram fyrir- spurn um nýbyggingu með sjö íbúð- um og með þeirri tillögu var gert ráð fyrir að rífa bæði steinbæinn og timburhúsið. Þeirri tilögu var synjað á fundi skipulagsráðs í september 2010 og var embætti skipulagsstjóra falið að vinna að því með lóðarhöfum að gera nýja tillögu, þar sem kannað yrði hvort unnt væri að fella steinbæinn á lóðinni inn í uppbygg- inguna. Lóðarhafi, Ottó ehf., fór fram á að 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016 Ármúla 24 - s. 585 2800 - www.rafkaup.is Opið virka daga 9-18, laugardaga 11-16 Ljós á mynd: VALENCIA frá BELID Opnunartímar fyrir jól 22. des - 09:00-20:00 23. des - 09:00-22:00 24. des - Lokað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.