Morgunblaðið - 22.12.2016, Qupperneq 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016
Vistvænna prentumhverfi
og hagkvæmni í rekstri
Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri
og fyrsta flokks þjónusta.
www.kjaran.is | sími 510 5520
ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST TIL KAUPS
Erum með traustan aðila sem hefur áhuga á að fjárfesta
í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu
með eða án leigusamnings.
Allar eignir skoðaðar.
Nánari upplýsingar veitir
Ísak V. Jóhannsson sölustjóri í síma 822-5588
Netfang : isak@tingholt.is
Viðar Marionsson Löggiltur fasteignasali
Bæjarlind 4 , 201 Kópavogur, 512 3600, tingholt.is
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is
Eitt aðalvanda-
málið í íslenzku efna-
hagslífi hefur verið
óstöðugt og hátt verð-
lag og háir vextir.
Ástæðan fyrir þessu
er sú, að íslenzka
krónan stendur og
fellur með íslenzku
efnahagslífi sem alltaf
hefur verið sveiflu-
kennt. Stöðugleika
hefur því vantað hér – og vantar enn
– en þetta leiðir m.a. til óstöðugs og
hás verðlags og hárra vaxta. Aðrar
smáþjóðir Evrópu hafa átt við sama
vanda að glíma. Ég á hér við þjóðir,
sem hafa færri en 5 milljónir íbúa.
Tveir ólíkir heimar
Eftirtaldar 8 smáþjóðir gengu í
ESB og tóku upp evruna eins fljótt
og þeim var mögulegt: Eistland, Ír-
land, Kýpur, Lettland, Litháen, Lúx-
emborg, Malta og Slóvenía. Öll þessi
lönd hafa síðan notið lægra verðlags –
því að með þessu urðu löndin aðilar
að miklu stærri opnum, gagnsæjum
og frjálsum markaði – stöðugs verð-
lags og lágmarksvaxta. Er hér nánast
um tvo ólíka heima að ræða, ef staðan
á Íslandi er borin saman við stöðuna
meðal þessara átta evrópsku smá-
þjóða. Verðlag er hér nú það hæsta í
heimi, síbreytilegt og ótraust og vext-
ir á okurstigi.
Hræðslan við ESB og
myntbandalagið
Það virðist vera að þröngsýnis- og
íhaldsöflum hér hafi tekizt að skapa
hræðslu meðal manna við ESB og
myntbandalagið. Reynt hefur verið,
að því er virðist, að tengja hrunið ein-
hvern veginn við ESB. Slíkt er auð-
vitað fjarri öllu sanni! Þar á milli eru
engin tengsl, en, eins og menn muna,
átti hrunið hér upptök í banka- og
fjármálakreppunni í Bandaríkjunum,
en hún bitnaði jafnt á Íslandi sem
Evrópu og ESB.
Sumir reyna að hræða
með því að það gangi
landráðum næst að
ganga í ESB. Slíkt er al-
gjör fjarstæða. Voru það
landráð að ganga í Sam-
einuðu þjóðirnar, NATO,
Norðurlandaráð, EFTA,
OECD, o.s.frv.!? ESB er
bandalag sjálfstæðra
ríkja, ekki ríki. Af hverju
halda menn að fyrr-
nefndar átta smáþjóðir
hafi gengið í ESB og
myntbandalagið!?
Eins og flestir skilja lifum við
meira og meira í einum sameig-
inlegum heimi, og þeir sem eiga svip-
aðan bakgrunn og uppruna, búa yfir
svipaðri menningu og arfleifð og
byggja sömu svæði verða að vinna
saman, stilla saman stefnu og standa
saman. Þetta skildu þjóðirnar átta.
Tal um „rjúkandi rústir“ er
út í hött
Forsætisráðherra talaði í kosn-
ingabaráttunni um það, að ESB væri
„rjúkandi rústir“.
Hver er viðmiðun forsætisráð-
herra, þegar hann lætur þessi orð
falla!? Ef úttekt er gerð á einhverju
máli eða einhverri stöðu, hlýtur að
koma til einhver viðmiðun. Hver var
viðmiðun forsætisráðherra!? Hvar
standa mál svona miklu betur!?
Í mínum huga eru þetta ógrund-
aðir sleggjudómar. Það virðist vera í
tízku hjá sumum að tala illa um ESB.
Jafn ómaklegt og það er.
ESB er öflugasta ríkja-
samband heims
Staðreyndin er sú, að ESB stendur
ótrúlega vel, þrátt fyrir banka- og
fjármálakreppu, sem – að mestu að
ósekju – á henni dundi, og þrátt fyrir
stríð og ófremdarástand í Mið-
Austurlöndum og flóttamannastraum
þaðan, sem heimskir menn, að mestu
vestan hafs, bera ábyrgð á.
ESB er stærsti markaður heims,
stærsti útflytjandi heims og evran er,
ásamt með bandaríkjadal, öflugasti
gjaldmiðill heims. Þegar evran var
innleidd 1999, var gengi hennar 1.07
gagnvart bandaríkadal, og þannig er
það einnig í dag. Jafnvægi hefur hal-
dizt þessi 17 ár milli þessara helztu
efnahagssvæða heims.
Um hvaða „brennandi hús“ eða
„rjúkandi rústir“ eru menn að tala!?
Fjórar þjóðir með um 90 milljónir
manna knýja nú á dyr ESB og óska
aðildar, og er Úkraína, með sínum 47
milljónum, þá ótalin. Vilja allar þess-
ar þjóðir og allt þetta fólk komast í
„rjúkandi rústir“!? Mín persónulega
skoðun er líka sú að Bretar muni á
endanum hætta við Brexit.
Tilurð ESB er sögulegt
kraftaverk
Þær 28 þjóðir sem mynda ESB í
dag hafa staðið í átökum, illindum og
stríðum í gegnum ár og aldir. Þessar
28 þjóðir tala 24 ólíkar tungur. Það er
því með ólíkindum og einsdæmi í sög-
unni að þessum fyrri andstæðingum
og óvinum skuli hafa tekizt að sam-
einast, sem vinir og nánir samherjar,
með bræðralag, frið, sameiginlega
hagsmuni og velferð og sameiginlegt
öryggi að leiðarljósi.
Það var ekki að ófyrirsynju, að
ESB fékk friðarverðlaun Nóbels
2012.
80-90% aðild án áhrifa
Í gegnum EFTA er Ísland fyrir
löngu orðið 80-90% aðili að ESB, eins
og ég fjallaði um í blaðinu þann 29.
nóvember sl. Það eina þýðingarmikla
sem eftir er að semja um eru sjávar-
útvegs- og veiðikvótamál. Bretar,
Danir og Malta t.d. fengu viðunandi
undanþágur fyrir sín fiskveiðimál.
Við munum ná fram okkar hags-
munum í þessu líka.
Auðvitað er fleira sem fjalla þarf
um og útkljá. Það mun takast líka.
Það þarf að láta reyna á þetta sem
fyrst með nýrri ríkisstjórn. Og, ef ég
reynist sannspár um góða endanlega
samninga fyrir Ísland, þurfum við að
innleiða evruna sem allra fyrst, til að
tryggja lágt og stöðugt verðlag og
sanngjarna lágmarksvexti. Lágir
vextir yrðu mikil búbót fyrir alla Ís-
lendinga; einstaklinga og fjölskyldur,
fyrirtæki og stofnanir, sveitarfélög og
ríkið sjálft. Og með fullri aðild mynd-
um við fá okkar kommissar, atkvæði
og neitunarvald og setu á ESB-
þinginu; íslenzk rödd mun þá líka
óma í Evrópu.
Hví eru allar smáþjóðir Evrópu
í ESB og myntbandalaginu?
Eftir Ole Anton
Bieltvedt »ESB er stærsti
markaður heims,
stærsti útflytjandi
heims og evran er,
ásamt með bandaríkja-
dal, öflugasti gjaldmiðill
heims.
Ole Anton Bieltvedt
Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu-
maður og stjórnmálarýnir.
Við sátum steini
lostin fyrir framan
sjónvarpið, þegar
Geir H. Haarde bað
guð að blessa Ísland,
og þó að mörg okkar
segist ekki trúa á
guð, þá trúum við öll
á hann þegar við
þurfum á honum að
halda. Okkur hraus
hugur við því hruni
og örbirgð sem við okkur blasti og
fannst óréttlæti í því að þurfa að
leggja á okkur níðþungan skulda-
bagga til 40 eða 50 ára.
Einn maður og einn flokkur
stóð keikur í þessari orrahríð og
formaðurinn, Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, barði Samfylk-
inguna til að axla þá ábyrgð sem
henni bar gagnvart kjósendum
sínum og lofaði að verja hana van-
trausti í stjórn með Vinstri græn-
um. Þeim fannst hann vitlaus, að
setja ekki skilyrði um áhrif á
stjórnina í þessum átökum og þeg-
ar hann síðan vildi rétta hlut
landsmanna, þá virtu þau hann
ekki viðlits.
En baráttan hélt áfram og þeg-
ar ríkisstjórnin vildi undirrita
ólesið skuldabréf Svavars-
samninganna til áratugaþrælk-
unar, þá reis Sigmundur upp til
andmæla, og sameiginlega tókst
stjórnarandstöðunni og fólkinu í
landinu að hrista af
sér ánauðina.
Einn stóð Sigmund-
ur, með flokkinn að
baki sér, þegar hann
vildi ekki leyfa hræ-
gammasjóðunum að
draga sér allt fjár-
magn út úr landinu.
Við þekkjum öll fram-
haldið og við vitum
líka af hverju hann er
ofsóttur. Það skerðir
enginn erlenda ok-
ursjóði án þess að finna til te-
vatnsins og það virðist vera til nóg
af mönnum til að ganga þeirra er-
inda, að refsa honum. Þeir veifa
sinni Galdrabók, sem þeir kalla
Panamaskjölin, þótt þeir geti ekki
fundið í henni sök, og þeir beina
vísifingrinum að honum, en finna
um leið að þrír aðrir fingur vísa á
þá sjálfa, og það er sárt, að benda
á sinn ræfildóm og finna sig knú-
inn til að reyna að grafa hann og
hið liðna í lyginni.
Sælir eru þeir, sem
ofsóttir eru fyrir
réttlætis sakir
Eftir Kristján
Hall
Kristján Hall
» Þeir veifa sinni
Galdrabók, sem þeir
kalla Panamaskjölin,
þótt þeir geti ekki fund-
ið í henni sök á hendur
honum.
Höfundur er á eftirlaunum.