Morgunblaðið - 22.12.2016, Page 28

Morgunblaðið - 22.12.2016, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2016 ✝ Jón Tómassonframkvæmda- stjóri fæddist á Sauðárkróki 27. september 1924. Hann lést 12. des- ember 2016. Foreldrar hans voru Tómas Gísla- son, kaupmaður á Sauðárkróki, f. 21.10. 1876, d. 12.10. 1950, og kona hans Elinborg Jónsdóttir, f. 23.7. 1886, d. 23.7. 1975. Systk- ini Jóns voru Gísli, f. 25.12. 1908, d. 26.9. 1927, Sigurður, f. 31.3. 1914, d. 9.8. 1978, kvænt- ur Herborgu Guðmundsdóttur, dætur þeirra Ingibjörg og Elin- borg. Herborg átti Jónínu og Jón frá fyrra hjónabandi. Guðný, f. 19.3. 1912, d. 6.8. 2008. Gísli, f. 19.7. 1927, d. 20.4. 1998, kvæntur Kristbjörgu Sig- jónsdóttur. Börn þeirra eru Sig- rún, Tómas og Gísli Friðrik. Jón kvæntist 21. júní 1947 Önnu, f. 3. mars 1924, d. 22. september 2009, Árnadóttur Ólafssonar, bónda á Kjarna og síðar skrifstofumanns á Akur- eyri, f. 26. maí 1897, d. 19. des- ember 1946 og Valgerðar Rós- inkarsdóttur, f. 24. mars 1903, d. 30. ágúst 1979. Börn þeirra: 1) Elinborg Jónsdóttir, textíl- kennari, f. 11. apríl 1948. Var gift Jóni Tryggvasyni bifvéla- virkja, f. 8. júní 1948, d. 18. júlí 2009. Börn þeirra: a) Anna Sól- veig, f. 1977, d. 31. desember 1979. b) Tryggvi, verkfræð- kennari, f. 1985, maki Sigríður Halldórsdóttir fréttamaður. Börn þeirra: Urður Ása, f. 2010, og Hallveig Lóa, f. 2016. e) Elísabet verkfræðinemi, f. 1994. 4) Anna Jóna hönnuður, f. 2. júlí 1956, d. 11. júní 1988. Var gift Þorleifi Gunnlaugssyni, fyrrverandi borgarfulltrúa. Sonur þeirra er Haraldur Ingi, hagfræðingur og vefhönnuður, f. 1977. Maki Margrét Rut Eddudóttir, sjúkraliði og myndlistarkona. Dóttir þeirra er Emma, f. 2012. Anna Jóna var gift Jóhanni Sigurðarsyni, leikara er hún lést. 5) Guð- mundur Árni viðskiptafræð- ingur, f. 13. júlí 1965. Maki Lára Nanna Eggertsdóttir fjármálastjóri, f. 22. janúar 1966. Dætur þeirra; Guðlaug Sara verkfræðingur, f. 1988, maki Aron Steinþórsson sagnfræðinemi og Steinunn Sandra sálfræðinemi, f. 1990, maki Hjörtur Sigurðsson við- skiptafræðingur. Sonur þeirra Hilmar Bjarki, f. 2014. Jón var stúdent frá MA 1946. Nam leðuriðnað við Cordwain- ers Technical College í London 1947-48. Framkvæmdastjóri Nýju skóverksmiðjunnar hf. í Reykjavík 1948-1958 og Múla- lundar vinnustofu Öryrkja- bandalags SÍBS í Reykjavík 1959-1964. Stofnaði heildversl- unina Hoffell sf. ásamt Magnúsi Péturssyni og Klæðagerðina Elízu ásamt fleirum. Rak einnig um tíma Skótízk- una og Elízubúðina ásamt eig- inkonu sinni. Jón verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 22. des- ember 2016, klukkan 13. ingur, f. 1982. Var kvæntur Þórhildi Þorkelsdóttur. Dætur þeirra; Brynhildur Freyja, f. 2007, og Elinborg Dóra, f. 2010. Maki Hrefna Lind Ás- geirsdóttir verk- fræðingur. Börn hennar Magnús Falk, f. 2010, og Hrafnhildur Anna, f. 2013. c) Anna sálfræðingur, f. 1985, maki Róbert Michelsen úrsmið- ur. Sonur þeirra er Arnór Bjarki, f. 2011. 2) Valgerður Katrín, uppeldis- og mennt- unarfræðingur og blaðamaður, f. 1. maí 1950. Var gift Skúla Thoroddsen lögfræðingi. Sonur þeirra er Jón Fjörnir hagfræð- ingur, f. 1971, maki Eloise Freygang markaðsstjóri. Börn þeirra Tristan Theodór, f. 2005, Anna Katarína, f. 2007, og Jón Louie, f. 2012. 3) Margrét grunnskólakennari, f. 8. júní 1954. Maki Ragnar Sigurðsson framhaldsskólakennari, f. 28. febrúar 1953. Börn þeirra: a) Tómas Orri viðskiptafræðingur, f. 1973, maki Bryndís Eva Birg- isdóttir næringarfræðingur. Börn þeirra: Theodóra, f. 2001, Bríet Natalía, f. 2004, og Soffía Margrét, f. 2008. b) Anna Sig- urveig umhverfisfræðingur, f. 1977, maki Paolo Gianfrancesco arkitekt. c) Guðrún Inga íslenskufræðingur, f. 1983. d) Jón Ragnar framhaldsskóla- Það kom mér í opna skjöldu þegar ég frétti lát tengdaföður míns Jóns Tómassonar. Þó að hann væri níutíu og tveggja ára var erf- itt að sætta sig við tilhugsunina. Fyrir nokkrum vikum höfðum við farið í leiðangur. Gamli bíllinn hafði gefið upp öndina og við fórum og keyptum nýjan sem hann var veru- lega ánægður með. Nýr bíll sem hægt var að treysta að færi strax í gang og gæti farið með eigandann hvert sem hann vildi. Örfáum dög- um fyrir andlátið fórum við í leið- angur í byggingavöruverslun til að ná í efni fyrir aðaláhugamálið síð- ustu árin en það var útskurður. Jón hafði á sínum tíma numið leður- smíði í Englandi rétt eftir stríð og hluti af starfsævi hans var tengdur því, hann var framkvæmdastjóri skóverksmiðju á hinum íslensku haftatímum þegar öll framleiðsla átti helst að vera innlend. Nú hafði hann búið sér til athvarf þar sem hann skar út fiska og málaði lista- vel. Ef kíkt var í heimsókn sat hann jafna við þessa iðju eða þá við lest- ur. Kallið kom því okkur öllum sem honum unnum að óvörum. Sá sem þessar línur skrifar byrjaði að venja komur sínar kornungur á heimili þeirra hjóna Jóns og Önnu til að sitja um eina af dætrum Jóns. Alla tíð var mér vel tekið af þeim hjónum, aldrei fékk ég nokkurt hnjóðsyrði af þeirra hálfu þó svo að fljótlega kæmi nýtt barn á heimilið og drengstaulinn væri skelfilegur beturviti sem rétta skoðun hafði á öllum hlutum að eigin mati. Þvert á móti, heimilið var mér ætíð opið og þaðan stafaði bæði hlýju og um- burðarlyndi sem smám saman hafði áhrif á piltinn og gerði hann að betri manni. Þegar ég hóf kynni mín af þeim Jóni og Önnu starfaði hann við litla heildverslun sem hann rak og sam- an ráku þau hjón einnig litla fata- verslun sem um árabil var einn af föstum punktum í verslunarflóru Reykjavíkur – Elízubúðina. Jón og Anna voru mjög samhent, fóru saman í innkaupaferðir til Eng- lands og unnu mikið saman. Einn atburður sem hafði djúp og mikil áhrif á Jón var andlát dóttur hans, Önnu Jónu, fyrir rúmum aldar- fjórðungi. Jón jafnaði sig aldrei eft- ir það slys og þá erfiðleika sem því fylgdu. Jón var fæddur og uppalinn á Sauðárkróki, leit alltaf á sig sem Skagfirðing og las reiðinnar ósköp af skagfirskum fróðleik, bæði gömlum og nýjum. Oft ræddum við það sem hann hafði verið að lesa, bæði hinn skagfirska fróðleik en einnig las hann mikið af skáldskap og fréttatengdu efni. Það stóð til að skreppa norður síðastliðið sumar en þegar til kastanna kom ákvað hann að fresta þeirri ferð til næsta sumars. Hann fylgdist gríðarvel með öll- um fréttum innlendum sem er- lendum. Hann hafði einnig ákveðnar skoðanir á stjórnmálum og öllum þeim átökum sem þar eru í gangi. Pólitískar skoðanir Jóns voru byggðar á lestri og rökum og tóku gjarnan breytingum með nýrri þekkingu. Ég kveð Jón með miklum söknuði, mann sem alltaf reyndist mér vel og var alla tíð sannur í því sem hann tók sér fyrir hendur. Ragnar Sigurðsson. Afi Jummi, afi í Bólstó er látinn. Hann kvaddi snöggt og óvænt, í raun eins og hann hafði óskað sér. Eftir standa minningar um frá- bæran og ljúfan afa sem einkennd- ist af trausti, glaðlyndi, blíðleika og dugnaði. Hann naut lífsins fram á síðasta dag og lét aldurinn ekki aftra sér í því sem hann langaði að gera. Hann stundaði göngur dag- lega, garfaði í ættfræði, og dundaði við tréútskurð þar sem við fjöl- skyldan fengum svo að njóta af- rakstursins. Í Bólstó var manni alltaf tekið opnum örmum og hann hafði mik- inn áhuga á öllu því sem maður tók sér fyrir hendur. Það var því ótrú- lega notalegt að kíkja inn, hella sér upp á kaffi og ræða við hann um það sem var efst á baugi hjá manni þá stundina. Í þeim samræðum kom hann sífellt á óvart með því hversu ótrúlega vel hann var og gat sett sig inn í alla mögulega hluti, allt frá hugbúnaðargerð til þjóðfélagsmála. Hann var vinsæll meðal barnanna okkar sem sóttu í að vera með honum, ekki síst vegna þess hve mikill rólyndismað- ur hann var og hversu óskipta at- hygli þau fengu þegar þau töluðu við hann. Þó hefur ísinn í frystin- um, sem var fastur liður í heim- sóknum, kannski eitthvað hjálpað líka. Hvíl í friði, elsku afi. Tryggvi og Anna. Elsku afi Jummi, ég elskaði þig svo ótrúlega mikið. Mér finnst svo leiðinlegt að geta aldrei hitt þig aft- ur. Þú varst svo góður og skemmti- legur afi. Takk fyrir alla fiskana. Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér. Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á. En ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá. Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær stjörnur á blárri festinguni sem færast nær og nær. Ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund. En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund. (Megas.) Arnór Bjarki. Amma Anna og afi Jón fluttu í Bólstaðarhlíð 31 árið 1955, þá með þrjár dætur, og ólu þar upp börnin sín fimm. Heimili þeirra varð miðstöð ætt- arinnar og oftar en ekki margt um manninn og fjöldi barnabarna á sveimi þegar leið á áttunda, níunda og tíunda áratuginn. Kærleikurinn streymdi frá þeim til okkar barna- barnanna og síðar til barnabarna- barna þegar þau fóru að taka sín fyrstu skref rétt eftir aldamótin. Eftir að heilsu ömmu hrakaði hratt upp úr árinu 2006 hugsaði afi um hana af alúð og þeirri hlýju sem einkenndi hann. Ást, þolinmæði og góðmennska hans í hennar garð var greinileg en eftir að amma lést árið 2009 hafði hann meiri tíma til að sinna sjálfum sér og sínum áhugamálum, meðal annars tré- skurði og lestri bóka, einkum sem tengdust sögu og ættfræði. Hann var fram á síðasta dag við ágæta heilsu og naut þess að geta enn bú- ið heima, þar sem honum leið best, farið út að ganga, í matarboð og heimsóknir og tekið á móti gestum sem áttu leið hjá. Afi hafði einstaka nærveru, hann var rólegur, yfirvegaður og hlýr. Hann var ekki einn þeirra sem héldu fast í gömlu gildin heldur fylgdi hann tíðarandanum og var frjór og nútímalegur í hugsun. Hann var áhugasamur um það sem við barnabörnin tókum okkur fyr- ir hendur, reiðubúinn til að hlusta, leggja fram sitt mat og segja sína skoðun á hlutunum. Dyrnar stóðu ávallt opnar í Bólstaðarhlíðinni og öll þessi ár var afi þar til staðar, einnig með faðminn opinn. Afi var okkur góður vinur og það verður erfitt að venjast því að geta ekki heilsað upp á hann. Við erum þakklát fyrir að hafa getað leitað til hans í gegnum árin og minnumst með mikilli hlýju allra góðu stundanna með ömmu og afa í Bólstó. Tómas Orri, Anna Sigurveig, Guðrún Inga, Jón Ragnar og Elísabet. Með sorg í hjarta kveð ég afa minn í dag. Mann svo góðan, að erfitt verður að hugsa sér heiminn án hans. Hann var ríkur af árum, en gamall maður varð hann aldrei og var sinn eigin heilsuhrausti herra allt þar til yfir lauk. Hann undi sér vel í alls konar handverksupp- átækjum og arkaði þess á milli um götur bæjarins hvernig sem viðr- aði. Hann var samkvæmur sjálf- um sér og sagði ekki illt orð um nokkurn mann. Mikið dálæti hafði hann á fjölskyldunni, rakti ættir forvera sinna, léði afkomendum sínum ætíð eyra og hlustaði af at- hygli. Dyrnar á heimili þeirra ömmu í Bólstaðarhlíðinni voru okkur allt- af opnar og hlýjan og ylurinn sem umvafði heimilið varð til þess að allar áhyggjur heimsins urðu eftir úti í hvert sinn sem maður steig inn fyrir. Þegar ég var 10 ára heyrði ég að ég væri með alveg eins augu og hann afi. Líkindin ber ég með stolti en sýn hans á lífið ætla ég að temja mér enda eru fróðleiksfýsi, fordómaleysi og kærleikur eitt- hvað sem við öll getum tekið okk- ur til fyrirmyndar. Erfitt er að hugsa til þess að Bólstaðarhlíðin standi nú tóm og það sé enginn hummandi afi í stólnum sínum tilbúinn að ræða daginn og veginn, en gott er að vita af honum og ömmu í faðm- lögum og eftir skilur hann enda- laust af yndislegum minningum og heitt gos í eldhússkápnum. Elsku afi, uppátækjasemin, hlýjan og hláturinn munu fylgja okkur um alla tíð. Takk fyrir allt og allt. Þínar, Guðlaug Sara og Steinunn Sandra. Látinn er stórvinur og sam- starfsfélagi um árabil, Jón Tóm- asson. Ég kynntist Jóni fyrst er ég réði mig til sölumannsstarfa hjá Magnúsi Víglundssyni, Samein- aða verksmiðjuafgreiðslan, SAFA, sem samanstóð af átta fyr- irtækjum í framleiðslu á skóm, sjófatnaði, skyrtum, nærfötum o.fl. Jón var þá framkvæmdastjóri skóverksmiðjunnar. Jón hætti störfum ári á undan mér og fór til starfa hjá Múlalundi og bauð hann mér þar sölumannsstarf sem ég tók. U.þ.b. fjórum árum síðar hætt- um við báðir hjá Múlalundi og stofnsettum Heildverslunina Hof- fell árið 1965 og leigðum skrifstofu að Laugavegi 31 í Biskupshúsinu. Síðar fluttum við í Ármúlann þar sem við vorum til starfsloka. Við stofnuðum klæðagerðina Elísu og ásamt Elísubúðinni sem fram- leiddi kvenfatnað. Jón, sem var átta árum eldri en ég, stakk síðan upp á því að við skiptum upp rekstrinum sem við gerðum eftir 24 ára samstarf, Jón tók Elísubúðina og ég fékk Hof- fell. Eftir að við skiptum upp rekstrinum fylgdist Jón eftir sem áður með Hoffelli og var alltaf tilbúinn með góð ráð ef þess þurfti. Ég mun alltaf minnast Jóns sem eins af mínum betri vinum en með okkur var alltaf mikill vin- skapur. Ég og Eyþóra vottum fjölskyldu og aðstandendum Jóns okkar dýpstu samúð. Magnús V. Pétursson og Eyþóra Valdimarsdóttir. Jón Tómasson Merk kona, Stein- unn Finnbogadóttir, hefur lokið löngum og viðburðaríkum ferli 92 ára að aldri. Andlega heil til hinstu stundar, en þrotin að heilsu og kröftum. Starfa hennar á opin- berum vettvangi veit ég að margir munu minnast og þakka, svo víða sem hún kom að og lagði gott til mála á margbreyti- legum athafnatímum samfélags- ins, sem hún tók alltaf virkan þátt í með yfirvegun, áhuga og athafnagleði. Sem aðstoðarráð- herra, borgarfulltrúi, ritstjóri Ljósmæðratals í tveim bindum, orlofsmál húsmæðra, búseturétt- indi og húsnæðismál, jafnrétt- ismálin og margskonar félags- málastörf nutu krafta hennar og Steinunn Finnbogadóttir ✝ Steinunn Finn-bogadóttir fæddist í Bolungar- vík 9. mars árið 1924. Hún lést 9. desember 2016. Útför Steinunnar fór fram 16. desem- ber 2016. fylgis. Ég læt öðr- um eftir að fara yf- ir þann feril. En í fáum orð- um langar mig að- eins að þakka tryggð og vináttu á langri vegferð. Skemmtilegu sam- verustundirnar, glettnu tilsvörin, gjöfulu samræð- urnar, listfögru ljóðin og djúpvitran skilning á lögmálum lífsins. Hún auðgaði hversdagsins amstur og tilveru með skapandi bjartsýni og frjórri hugsun, gamni og glettni, sem létti lund og gaf góða nær- veru. Hennar er og verður sárt saknað, en minningarnar lifa og ylja um hjartarætur, hugurinn kallar fram myndir frá liðnum tíma og „rjálar við að raða brot- unum saman“. Blessuð sé minn- ing hennar. Börnum hennar, sambýlis- manni og öðrum aðstandendum sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Guðríður B. Helgadóttir. ✝ Júlíus SverrirSverrisson fæddist í Njarðvík 17. maí 1977. Hann lést 11. des- ember 2016. For- eldrar hans eru Sverrir Júlíusson, f. 26. janúar 1935 í Hafnarfirði, og Brynja Árnadóttir, f. 8. janúar 1942 á Siglufirði. Börn hans eru Guðmundur Bjart- ur, f. 29. júní 2000, Ívan Jökull, f. 5. júlí 2000, og Írena Hlín, f. 11. september 2002. Samfeðra systkini hans eru Sigurbjörg, f. 23. desember 1954, Birna Guð- rún, f. 29. júlí 1957, Björk, f. 20. september 1961, og Hjalti Allan, f. 20. febrúar 1969. Sammæðra bræður hans eru Rúnar Sigurðsson, f. 11. október 1960, Eiríkur Árni Sigurðsson, f. 22. ágúst 1962, og Gunnar Sigurðsson, f. 24. ágúst 1963. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 22. desember 2016, klukkan 13. Elsku Júlli okkar, það er erfitt að sjá á eftir þér svona ungum manni í blóma lífsins, en vonandi ertu komin á betri stað og ánægjulegt að þið vin- irnir getið hvílst saman. Við viljum þakka þér fyrir góðan dag í sumar þegar við hittumst fyrir tilviljun fyrir utan Hverf- isgötu 8 og það endaði í heim- sókn hjá þér og skemmtilegum símhringingum sem fylgdu eft- ir á. Hvíldu friði, litli bróðir. Þegar raunir þjaka mig, þróttur andans dvínar, þegar ég á aðeins þig, einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni, láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum) Þínar systur, Birna og Björk. Júlíus Sverrir Sverrisson Fagur fiskur í sjó, brettist upp á halanum með rauða kúlu á mag- anum. Vanda, banda, gættu þinna handa. Vingur, slingur, vara þína fingur. Fetta, bretta, svo skal högg á hendi detta. (Höfundur ókunnur) Allt tekur enda. Silfurgata, Grettisgata, Vitastígur, Borgar- hlíð og Dvaló eru sögusvið sem Þorvaldur Ólafsson ✝ ÞorvaldurÓlafsson fædd- ist 15. desember ár- ið 1937. Hann lést á 10. desember 2016. Útför hans fór fram 16. desember 2016. nú hafa tekið enda. Hvert einasta okkar á sínar persónulegu minningar um þig frá hverjum einasta þessara staða. Á þeim sást þú til þess að við barna- börnin og langafa- börnin fengjum þá athygli sem við höfðum þörf fyrir og aðgang að þeim afa sem við þurftum hverju sinni. Ég held að ég sé ekkert að ýkja þegar ég segi að fyrir okkur varst þú besti afi og langafi í heimi. Þú sýndir það og sannaðir með gjörðum þínum. Valdi afi, takk fyrir skemmt- unina, kaffið og kjötsúpuna. Fyrir hönd barnabarna, Þorvaldur Konráðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.