Fréttablaðið - 30.03.2017, Síða 6
salan á búnaðarbankanum
3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r6
BÍLALAND BÝÐUR NOKKRA BÍLA Á EINSTÖKUM
KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU
ÞÉR GÓÐAN BÍL Á FRÁBÆRU VERÐI!
Á VÖLDUM BÍLUM
HYUNDAI ix35 Comfort
Nýskr. 04/15, ekinn 63 þ.km,
dísil, beinskiptur.
Verð áður: 3.490 þús. kr.
TILBOÐ 2.990 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
RENAULT Clio Expression Sport Tourer
Nýskr. 07/15, ekinn 53 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður: 2.250 þús. kr.
TILBOÐ 1.890 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
HYUNDAI i20 Classic
Nýskr. 06/13, ekinn 61 þ.km,
dísil, beinskiptur.
Verð áður: 1.580 þús. kr.
TILBOÐ 1.350 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
TOYOTA Auris Terra
Nýskr. 05/14, ekinn 72 þ.km,
bensín, beinskiptur.
Verð áður: 1.990 þús. kr.
TILBOÐ 1.490 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
CHEVROLET Captiva
Nýskr. 10/15, ekinn 77 þ.km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður: 4.980 þús. kr.
TILBOÐ 4.290 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
RENAULT Megane Berline
Nýskr. 11/12, ekinn 73 þ.km,
dísil, beinskiptur.
Verð áður: 1.790 þús. kr.
TILBOÐ 1.390 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
Rnr. 370253
Rnr. 330423
Rnr. 370188
Rnr. 370268
Rnr. 283984
Rnr. 340243
www.bilaland.is
Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og
Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ
Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is
Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16.
www.facebook.com/bilaland.is
TILBOÐ
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
1
2
5
1
Skýrsluhöfundarnir Kjartan Bjarni Björgvinsson og Finnur Vilhjálmsson. FréttaBlaðið/Vilhelm
Ólafur Ólafsson athafnamaður hagn-
aðist um 3,8 milljarða króna árið
2006 á því að hafa blekkt stjórnvöld
og almenning hvað snerti eignarhald
á hlut í Búnaðarbankanum. Ólafur
lagði ekkert fé inn í aflands félag, en
fékk í gegnum félagið helming af
söluhagnaði hlutar í Búnaðarbank-
anum þegar hann var seldur 2004
og 2005.
Á blaðamannafundi í gær stað-
festu fulltrúar rannsóknarnefndar
Alþingis að þýski bankinn Hauck
& Aufhäuser var aldrei í reynd fjár-
festir í Búnaðarbankanum þegar 45,8
prósenta hlutur ríkisins í honum var
seldur Eglu hf. í janúar 2003. Rann-
sóknarnefndin segir að stjórnvöld
og almenningur hafi skipulega verið
blekkt í tengslum við söluna.
Í skýrslu nefndarinnar segir að
ítarleg skrifleg gögn sýni með óyggj-
andi hætti að þýski bankinn Hauck
& Aufhäuser, Kaupþing hf. á Íslandi,
Kaupthing Bank Luxembourg og
hópur manna sem vann fyrir og í
þágu Ólafs Ólafssonar fjárfestis not-
uðu leynilega samninga til að fela
raunverulegt eignarhald þess hlutar
sem Hauck & Aufhäuser var sagður
eiga.
Í raun var eigandi 16,3 prósenta
hlutar í Búnaðarbankanum, sem
Hauck & Aufhäuser var skráður fyrir,
aflandsfélagið Welling & Partners
(W&P), skráð á Tortóla á Bresku Jóm-
frúaeyjum. Baksamningarnir, sem
földu raunverulegt eignarhald, voru
undirbúnir og frágengnir í janúar
2003. Kaupthing Luxembourg útveg-
aði aflandsfélagið, en félagið hafði
reikning hjá Hauck & Aufhäuser.
Á blaðamannafundinum kom
fram að ráðherrar og starfsfólk
stjórnarráðsins, sem og aðrir leiðtog-
ar S-hópsins, utan Ólafs, höfðu ekki
vitneskju um þessa fléttu. „Ólafur
Ólafsson stýrði verkefninu frá a til
ö,“ sagði Finnur Vilhjálmsson, starfs-
maður nefndarinnar.
Bankanum tryggt skaðleysi
Gengið var frá baksamningum þann
16. janúar 2003 og síðar um daginn
var samningurinn um kaup Eglu
undirritaður á Íslandi. Kaupþing
greiddi Hauck & Aufhäuser 35,5
milljónir dala inn á bankareikning
W&P. Fjárhæðin var sett þýska bank-
anum að handveði til að tryggja
skaðleysi hans af hlutafjárframlagi
sem honum bæri að greiða Eglu hf.
vegna hlutdeildar Eglu í kaupunum
á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum.
Bankinn fékk milljón evrur greiddar
fyrir að vera leppur.
Baksamningurinn hafði meðal
annars að geyma ákvæði um sölu-
rétt Hauck & Aufhäuser á hlutum
sínum í Eglu hf. til W&P og einnig
ákvæði um forkaupsrétt W&P að
hlutunum. Helmingur af hagnaði
W&P vegna hlutanna í Eglu hf. skyldi
samkvæmt samningnum greiddur
Serafin Shopping Corp., aflands félagi
í eigu Ólafs.
Árið 2006 höfðu samningarnir
þjónað gildi sínu fyrir samningsað-
ila, segir í skýrslunni. Fyrri viðskiptin
á grundvelli baksamninganna áttu
sér stað í apríl til maí 2004. Þá gerði
Ker hf. tilboð í 2/3 af hlut Hauck &
Aufhäuser í Eglu fyrir 59,7 milljónir
Bandaríkjadala. Það tilboð virkjaði
forkaupsrétt W&P og leiddi til þess
að W&P keypti hlutina af Hauck &
Aufhäuser. Þýski bankinn seldi þá
svo jafnskjótt til Kers í eigin nafni.
Allt söluandvirðið rann til W&P.
Eftirstandandi hlutirnir í Eglu voru
svo seldir til W&P í júní og júlí 2005.
Þá bauð Kjalar ehf. í eftirstandandi
hlut Hauck & Aufhäuser í bank-
anum. „Þetta gerist nokkurn veginn
á nákvæmlega sama hátt og hin við-
skiptin,“ sagði Finnur á fundinum.
„Þetta virkjar forkaupsrétt Welling &
Partners og allt söluandvirðið rann
til Welling & Partners.“
102,3 milljóna dala hagnaður
Gögn rannsóknarnefndar sýna að
inn á bankareikninga W&P runnu
við þessi tvenn viðskipti samtals
102,3 milljónir Bandaríkjadala sem
var lágmarkshagnaður W&P af við-
skiptunum. Við útdeilingu hagnað-
arins fóru 46,5 milljónir dala út af
bankareikningi W&P inn á banka-
reikning svissneska bankans Julius
Bar & Co. Endanlegur viðtakandi var
Dekhill Advisors Limited. Dekhill
var skráð á Tortóla í júlí 2005 en enn
er óljóst hverjir endanlegir eigendur
þess félags eru.
Finnur sagði að líklega væru aðilar
tengdir Kaupþingi hf. að meðtöldu
KBL og aðilar þeim tengdir raun-
verulegir eigendur.
Fékk 3,8 milljarða úr fléttunni
Í febrúar 2006 er svo eftirstandandi
innistæða, 58 milljónir dala, sett inn
á bankareikning hjá Kaupthing Bank
Luxembourg. Eigandi reikningsins
var Marine Choice Limited (í stað
Serafin Shipping Corp.) sem Ólafur
Ólafsson var raunverulegur eigandi
að.
Fjárhæðin jafngilti 3,8 milljörðum
króna samkvæmt skráðu gengi
á þeim degi. Þessu var ráðstafað
umsvifalaust til dreifðra fjárfestinga í
erlendum verðbréfum. „Þar með var
þessi flétta fullframkvæmd,“ sagði
Finnur. saeunn@frettabladid.is
Fléttan afhjúpuð
Staðfest er að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser var leppur fyrir kaup á hlut í
Búnaðarbankanum árið 2003. Ólafur Ólafsson athafnamaður stýrði verkefn-
inu, en aðrir leiðtogar í S-hópnum virðast ekki hafa vitað um fléttuna.
Um baksamninga og
tengda gerninga
hauck & aufhäuser
l Lagði ekkert fram og gat engu
tapað.
l Gat ekkert grætt.
l Fékk þóknun.
Kaupþing hf. (Kaupthing Bank
luxembourg) gegnum Welling
& Partners
l Fjármagnaði allt í reynd og
tók alla áhættu.
l Átti helming hugsanlegs
nettóhagnaðar.
Ólafur Ólafsson gegnum
Serafin Shipping Corp. (síðar
marine Choice limited) og
hagnaðarskiptasamning
l Lagði ekkert fram og gat
engu tapað.
l Átti helming hugsanlegs
nettóhagnaðar.
Heimild: Rannsóknarnefnd
Alþingis
l Fléttan útskýrð.
l Helstu persónur og
leikendur.
Síða 8
l Meðlimum S-hópsins
er brugðið við tíðindin.
l Ólafur Ólafsson vísar
niðurstöðunum á bug.
Síða 10
l Stjórnvöld gátu ekki
varist blekkingunum.
l Valgerður Sverrisdóttir
segist hafa verið blekkt
eins og aðrir.
Síða 12
l Brynjar Níelsson vill
ekki rannsaka einka-
væðingu Landsbank-
ans.
Síða 14
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
2
-B
4
2
8
1
C
9
2
-B
2
E
C
1
C
9
2
-B
1
B
0
1
C
9
2
-B
0
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K