Fréttablaðið - 30.03.2017, Qupperneq 12
salan á búnaðarbankanum
fylgir með Fréttablaðinu í dag
Blómavals
Páskablað
FJÖLSKYLDUVÆNN
Volkswagen Caddy fólksbíll
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
HEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu.
Nú kemur hinn vinsæli VW Caddy í fimm og sjö
manna fjölskylduútfærslum.
VW Caddy er fáanlegur með fjórhjóladrifi
sem eykur enn við öryggi og aksturseiginleika
bílsins og hentar einstaklega vel við íslenskar
aðstæður.
Volkswagen Caddy fólksbíll
kostar frá
2.990.000 kr.
Geir Haarde og Valgerður Sverrisdóttir undirrituðu kaupsamninginn fyrir hönd ríkisins. Fréttablaðið/VilHelm
„Þessum vel undirbúnu blekkingum
gátu stjórnvöld ekki varist enda
höfðu þau ekki ástæðu til að gruna
kaupendur um þess háttar athæfi,“
segir Geir Haarde, sem var fjármála-
ráðherra þegar Búnaðarbankinn var
seldur árið 2003 og tók þátt í að stað-
festa kaupsamninginn.
„Það er dapurlegra en orð fá lýst
að nú, 14 árum síðar, skuli leitt í ljós
að stjórnvöld. sem seldu þessa eign
almennings í góðri trú og í samræmi
við lagaheimildir, hafi verið blekkt
varðandi þennan þátt málsins,“
segir Geir í skriflegu svari til Frétta-
blaðsins þegar hann var inntur eftir
viðbrögðum.
Valgerður Sverrisdóttur sem einn-
ig sat í ríkisstjórninni, sem iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, segist dolfallin
yfir niðurstöðunni. „Já, ég er sorg-
mædd,“ segir Valgerður Sverrisdóttir.
„Ég var blekkt eins og aðrir, eins og
fjölmiðlar, almenningur og aðrir. Ég
er bara mest undrandi á því að þessir
aðilar sem við borguðum fúlgur fjár
fyrir að vera ráðgjafar, HSBC, skuli
ekki hafa skoðað þetta,“ bætir Val-
gerður við. Hún segir það þó gott
að sannleikurinn hafi verið leiddur
í ljós. Valgerður segir umhugsunar-
efni hvort það þurfi ekki að rannsaka
sölu Landsbankans líka á þessum
tíma.
Steingrímur J. Sigfússon var for-
maður VG og sat í stjórnarandstöðu á
þeim tíma þegar bankinn var seldur.
Hann segist ekkert geta fullyrt um
það að stjórnvöld hafi vitað af blekk-
ingunum. „Ég vil ekki ætla mönnum
það að hafa haft grun sem þeir hafi
bælt niður,“ segir Steingrímur. Þetta
sé hins vegar þáttur sem verði að fara
betur yfir. „Hvernig gat þetta farið
framhjá öllum?“ segir Steingrímur.
jonhakon@frettabladid.is
Undrast sinnuleysi
erlenda ráðgjafans
Fyrrverandi fjármálaráðherra segir það dapurlegra en orð fá lýst að stjórnvöld
hafi verið blekkt við sölu Búnaðarbankans. Fyrrverandi iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra segist sorgmæddur yfir niðurstöðum rannsóknarnefndar Alþingis.
Hvernig gat þetta
farið framhjá öllum?
Steingrímur J. Sigfússon
„Skýrslan gefur fullt tilefni til að
skoða til hlítar hvernig aðkomu
sjóðanna er háttað. Sagan kennir
okkur að við verðum að vera var-
kár í þessum efnum,“ segir Bene-
dikt Jóhannesson fjármálaráðherra
aðspurður hvort hann telji að sam-
bærileg flétta sé upp á teningnum
varðandi kaup sjóða á tæplega þrjá-
tíu prósenta hlut í Arion banka.
„Það liggur fyrir að blekkingum
var vísvitandi beitt gagnvart stjórn-
völdum og almenningi. Eftirlits-
stofnanir könnuðu ekki til hlítar
hvernig aðkomu aðilanna var hátt-
að,“ segir Katrín Jakobsdóttir for-
maður Vinstri grænna. Hún segir
að niðurstaða
nefndarinnar
sýni mikil-
vægi þess
að lokið
verði við
h e i l d a r -
rannsókn
á þess-
um málum líkt og samþykkt var af
þinginu árið 2012. Þar vísar Katrín
meðal annars til hvernig staðið var
að sölunni á Landsbankanum.
„Það er einnig mikilvægt að kanna
hvort breytingar sem gerðar hafa
verið á lögum gefi eftirlitsstofnunum
heimildir til að kanna síðari við-
skipti til hlítar,“ bætir hún við.
„Fyrstu viðbrögð eru
gleði og kæti yfir því að
það sem ég hef sagt, og
verið hæddur og smáð-
ur fyrir, reyndist satt og
rétt,“ segir Vilhjálmur
Bjarnason, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
S k ý r s l a r a n n -
s ó k n a r n e f n d a r
Alþingis verður til
umræðu á þingfundi
í dag. – jóe
Tilefni til að kanna málin
Katrín Jakobs-
dóttir og Vilhjálmur
bjarnason.
Það sem ég hef sagt, og
verið hæddur og smáður
fyrir, reyndist satt og rétt.
3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r12 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
2
-A
F
3
8
1
C
9
2
-A
D
F
C
1
C
9
2
-A
C
C
0
1
C
9
2
-A
B
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K