Fréttablaðið - 30.03.2017, Side 40

Fréttablaðið - 30.03.2017, Side 40
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Frost er víðast farið úr jörðu og illgresi farið að bæra á sér. Það sparar mikla vinnu að hreinsa og reyta upp illgresi meðan rótarfesta er lítil. Þegar við fáum jörðina svona þíða undan vetri er ýmislegt hægt að gera,“ segir Kristinn H. Þorsteinsson, garðyrkjufræð- ingur frá Garðyrkjufélagi Íslands. Ráðast á illgresið „Á flestum stöðum á landinu er snjór farinn eða rétt að fara og lítið frost í jörðu. Fjölærar illgresisteg- undir eins og húsapuntur, snarrót og skriðsóley eru lausar í jarðveg- inum núna og hægt að rífa auð- veldlega upp. Fífla í grasflötinni er einnig gott að rífa upp núna með fíflajárni. Þá er einnig góður tími til að rífa mosann upp úr grasflötinni og gera það með hrífu eða leigja sér mosatætara. Mosann er best að rífa upp á þurrum dögum og um að gera að setja hann í safnkassann. Illgresið er einnig óhætt að setja í safnkassann þar sem það er ekki fræberandi á þessum tíma árs,“ útskýrir Kristinn. Sá í flötina og klippa „Grasflötin gisnar með árunum. Þegar búið er að rífa mosann upp opnast svörðurinn og þá er gott að sá í hann grasfræi. Í maí, þegar grasfræið hefur spírað, er borinn áburður á og mikilvægt er að lesa vel leiðbeiningarnar utan á pok- unum varðandi magn. Þá er apríl- mánuður góður tími til að klippa bæði tré og runna og má klippa alveg þar til laufgun á sér stað. Færa til runna og tré „Af því að frost er komið úr jörðu má byrja að skipta fjölærum plöntum, taka þær upp og færa til. Fljótlega má einnig fara að færa til tré og runna í garðinum. Núna er einnig ágætis tími til gróðursetn- ingar á trjáplöntum og mögulega hægt að nálgast plöntur í garð- yrkjuverslunum fljótlega.“ Vorlaukana niður „Nú hefur forræktun á vorlaukum staðið yfir, úti í glugga eða í gróðurhúsi og tími til kominn að setja þá niður, begóníur, anemón- ur, dalíur og liljur. Svo blómstra laukarnir frá miðju sumri og fram undir haust. Sáningartími sumarblóma í gróðurhúsum og vermireitum er núna en margar tegundir þurfa fjórar til átta vikur eins og morgunfrú og flauelsblóm. Á öllum fræpökkum eru góðar upplýsingar til að styðjast við sem ætti að fylgja. Bylta matjurtagarðinum „Nú er góður tím til þess að undir- búa kartöflugarðinn í rólegheitum, bylta jarðveginum svo lofti aðeins um hann. Á næstu dögum fer kartöfluútsæðið að koma og þegar fer að líða að páskum má fara að undirbúa spírun. Kartöflurnar geta svo farið niður í maí þegar aðeins hefur þornað í garðinum.“ Vorverkin hefjast í garðinum Frostlaust er nánast í jörðu og óþreyjufullt garðáhugafólk á því spenn- andi tíma fram undan. Kristinn H. Þorsteinsson fer yfir vorverkin í apríl. Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn... Blaðberinn bíður þín Gabrelía Sif og Andrea Lind tilbúnar í Vorverkin með afa sínum. MYNDIR/KRISTINN H. ÞORSTEINSSON Ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is 2 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . M A R S 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 3 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 9 2 -E 5 8 8 1 C 9 2 -E 4 4 C 1 C 9 2 -E 3 1 0 1 C 9 2 -E 1 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 8 s _ 2 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.