Fréttablaðið - 30.03.2017, Qupperneq 44
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
Baldur brugg-
meistari, Hilmar
og Hreiðar
lyfta glösum
fyrir framan
brugg tanka
í Ægisgarði.
Þangað geta
gestir komið og
kynnt sér fram-
leiðsluna.
MYND/GVA
Ölið kemur freyðandi úr krananum.
Upphaflega hugsunin var að búa til hálfgert félagsheimili fyrir Víking brugghús í Reykjavík. „Bruggverk
smiðjan okkar er á Akureyri en okkur
vantaði stað hér í borginni til að taka á
móti fólki. Hlutirnir eru fljótir að breytast
og allt í einu var félagsheimilið orðið að
brugghúsi. Í Ægisgarði verðum við með
nokkurs konar tilraunaeldhús fyrir Víking.
Við getum bruggað minni upplög af sér
bjórum, sem væru jafnvel í boði í stuttan
tíma. Baldur Kárason, bruggmeistarinn
okkar, fær að leika sér hér með nýja bjóra.
Auk þess verða Víking Craft Selection
bjórarnir okkar bruggaðir í Ægisgarði,“
útskýrir Hilmar.
Þess má geta að hönnunin á Craft Select
ion bjórunum fékk verðlaun á uppskeru
hátíð Félags íslenskra teiknara fyrir bestu
umbúðir og sömuleiðis á ÍMARKhátíð
inni. Umbúðirnar hafa vakið mikla athygli
bæði hér heima og erlendis.
Eins og flestir vita var sala og fram
leiðsla á sterkum bjór leyfð á Íslandi
1. mars 1989. Víking brugghús hefur undir
forystu Baldurs bruggmeistara, framleitt
verðlaunabjóra og átt söluhæsta bjórinn í
Vínbúðunum. Víking Gylltur hefur verið
margverðlaunaður í gegnum tíðina. Í dag
eru framleiddar átján gerðir af Víking.
„Víking á sér langa sögu á Íslandi, eigin
lega allt aftur til ársins 1939 og hefur ávallt
verið frumkvöðull á markaðnum,“ segir
Hreiðar Þór Jónsson, markaðsstjóri CCEP.
„Við höfum fetað ótroðnar slóðir í gegnum
tíðina og gerum það enn. Það sýnir nýja
Craft línan okkar. Allir bjórarnir í Craft
línunni eru að einhverju leyti frumkvöðlar,
til dæmis fyrsti íslenski stoutinn, fyrsti
lífræni bjórinn og fyrsti rauði IPA bjórinn.
„Við erum til dæmis eina brugghúsið sem
er með lífræna vottun og allir bjórarnir frá
Víking eru vegan. Við viljum halda áfram
að þróa þetta brautryðjendastarf okkar
og fáum gott tækifæri til þess hér,“ segir
Hreiðar.
„Baldur hefur verið að þróa bjór með
íslenskum jurtum sem hafa vakið athygli.
Hann hefur prófað sig áfram með reykt
bygg, einiber, hvannarót, greninálar og
fleira úr íslenskri náttúru. Það gerir bjórinn
séríslenskan. Síðan er auðvitað íslenskt
vatn meginuppistaðan í bjórnum,“ segir
Hilmar Geirsson, vörumerkjastjóri Víking
brugghúss.
Gestir eru velkomnir í Ægisgarð. Þar
er hægt að skoða bruggverksmiðjuna og
bragða á freyðandi bjórnum. Tekið er á
móti hópum og þeir fá fræðslu um starf
semina, að sögn Hilmars
„Rúmt ár er síðan við opnuðum Ægis
garð og höfum tekið á móti mörgum
hópum, til dæmis í bjórfræðslu. Einnig
erum við með svokallaða Víkingleika en
það er uppákoma fyrir alla sanna bjór
áhugamenn sem vilja fá aukna þekkingu á
bjór, sögu hans og hefð,“ segir Hilmar. „Við
setjum síðan upp skemmtilegan leik sem
tengist fróðleiknum um bjórinn,“ útskýrir
Hilmar. „Hægt er að bóka Víkingleik með
mat, til dæmis fyrir þá sem eru í óvissuferð
eða hópefli. Við getum sett upp kvöld
skemmtun fyrir mismunandi hópa.“
Hilmar segir að daglega fái Víking
brugghús fyrirspurnir frá ferðamönnum
eða ferðaskrifstofum þar sem óskað sé eftir
því að fá að koma í brugghúsheimsóknir.
Fljótlega verður boðið upp á hefðbundnari
brugghúsheimsóknir sem eru miðaðar
við erlenda ferðamenn til að verða við
þessari eftirspurn. „Fólk fær þá að skoða
brugghúsið og smakka bjórinn. Vitaskuld
verður þetta í boði fyrir Íslendinga líka. Það
þarf ekki hópa í bruggheimsóknina,“ segir
Hilmar.
Hægt er að fræðast um Ægisgarð og panta
hópferð á heimasíðunni www.aegisgardur.is
Staðurinn getur tekur allt upp í 200 manns.
Tilraunabrugghús
Víking
Ægisgarður nefnist nýtt brugghús Víkings sem opnað hefur verið
við Eyjaslóð 5. Áður hafði allur bjór verið bruggaður á Akureyri. Í
Ægisgarði verða Víking Craft Selection bjórarnir bruggaðir.
Hönnunin á Craft Selection bjórunum fékk verðlaun á
uppskeruhátíð Félags íslenskra teiknara fyrir bestu um-
búðir og sömuleiðis á IMARK hátíðinni.
2 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . m A r S 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
2
-F
4
5
8
1
C
9
2
-F
3
1
C
1
C
9
2
-F
1
E
0
1
C
9
2
-F
0
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K