Fréttablaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 50
Ávaxtaræktendur víða um heim hafa þann leiða vana að hylja ávexti sína, sér í lagi
epli, með vaxi, til að þau líti betur
út. Bragðið verður þó síst betra við
þetta fyrir utan hversu ólystugt það
er að borða vax.
Ýmsar leiðir eru til að losna við
vaxið af eplum.
1. Fyllið fat með köldu vatni og
bætið bolla af ediki út í. Látið
ávextina ofan í vatnið og látið
standa í um tíu mínútur. Við það
á bæði skítur og vax að renna af
ávöxtunum.
2. Fyllið spreybrúsa með vatni
og ediki og spreyið á eplið.
Látið standa í fimm mínútur og
hreinsið síðan eplið vandlega
með vatni.
3. Blandið matskeið af sítrónusafa
og matskeið af matarsóda í fjóra
lítra af vatni. Dífið hverju epli
í vatnið og nuddið með græn-
metisbursta. Hreinsið eplið að
lokum í volgu vatni og þurrkið
með eldhúsbréfi.
4. Enn ein leið er að dýfa epli ofan í
sjóðandi vatn í nokkrar sekúnd-
ur, þá á vaxið að leysast upp.
Vaxið þrifið af eplum
Mun girnilegra
er að borða epli
þegar búið er að
ná vaxhúðinni
af því.
Útihúsgögn eru gerð til að standa úti árið um kring. Þó er ágæt regla að hafa þau undir
þaki yfir helstu vetrarmánuði. Raðið
húsgögnunum þannig upp að vatn
renni auðveldlega af þeim ef rignir.
Þegar vorar er gott að þvo hús-
gögnin með volgu sápuvatni. Ef um
tréhúsgögn er að ræða er gott að bera
á þau olíu á vorin og haustin. Ekki
bera olíu á húsgögnin í sól. Ef gömul
málning hefur flagnað þarf að skafa
allt slíkt í burtu. Síðan þarf að mála
húsgögnin þegar þau eru alveg hrein
og þurr.
Vönduð plasthúsgögn þola að vera
úti en samt er ágætt að breiða yfir
þau yfir vetrartímann. Þvoið hús-
gögnin að vori. Ef þau eru orðin mött
má þrífa þau með bílabóni.
Álhúsgögn þurfa ekki mikla
umhirðu utan þrifa. Stundum þarf
samt að fara með stálbursta yfir þau
og mála svo þau verði eins og ný.
Gamlir tréstólar sem eru farnir
að láta á sjá geta fengið alveg nýtt líf
með litríkri málningu, til dæmis gulri
eða grænni. Síðan er hægt að setja
stólana út í garð með blómapottum.
Útihúsgögn
þurfa umhirðu
Gamlir stólar fá nýtt líf í garðinum.
Stórir blómapottar og -kassar eru skemmtileg viðbót við beð í görðum eða til prýði á
svölum. Úrvalið af pottum er slíkt
að allir ættu að geta fundið einn
slíkan að sínum smekk. Leirpottar
eru þannig gerðir að jarðvegurinn
getur „andað“ í þeim en að sama
skapi gufar vökvi hraðar upp í
þeim. Því þarf að vökva oftar verði
þannig pottur fyrir valinu en hann
hentar vel fyrir blóm sem þola að
þorna af og til. Þess þarf að gæta
að potturinn sé nógu stór fyrir það
blóm eða plöntu sem á að setja í
hann. Sé plantan há þarf potturinn
að vera stór.
Til að plönturnar dafni vel er lyk-
ilatriði að nota góðan og næringar-
ríkan jarðveg og muna að vökva
reglulega.
Ekki er æskilegt að blanda saman
vor- og sumarblómum í sama
pottinn. Betra er að byrja á að setja
vorblóm í pottinn og skipta þeim
svo út fyrir sumarblóm. Á haustin
er síðan hægt að setja í hann haust-
blóm, t.d. lyngplöntur (Erica).
Þannig hefur potturinn notagildi
stóran hluta ársins.
Gróður í
blómapottum
Prýði er að blómum og öðrum gróðri
á svölum. NORDICPHOTOS/GETTY
Allt fyrir garðinn
á einum stað
hafðu samband
Við erum ávallt til þjónustu
reiðubúin og keppumst við
að svara öllum fyrirspurnum
og pöntunum samdægurs.
vönduð vinnubrögð
Við viljum tryggja að allt sé
eins og það á að vera og höfum
því samband eftir að fagmenn
okkar hafa lokið verki.
þjónustan okkar
Garðsláttur
Trjáklipping
Beðahreinsun
Úðun
Stubbatæting
Þökulagning
Áburðargjöf
Trjáfelling
Stéttahreinsun
Hellulagning
Bílastæðasópun
...o.fl...
Frá því Garðlist ehf. var stofnað árið 1989, höfum við haft það að leiðarljósi
að veita framúrskarandi þjónustu fyrir garðinn á einum stað. Við þökkum
þeim þúsundum einstaklinga, húsfélaga og fyrirtækja sem við höfum
átt í viðskiptum við undanfarin ár, á sama tíma og við bjóðum nýja
viðskiptavini hjartanlega velkomna.
Tunguhálsi 7, 110 Reykjavík gardlist@gardlist.iswww.gardlist.is 554 1989
8 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
2
-E
0
9
8
1
C
9
2
-D
F
5
C
1
C
9
2
-D
E
2
0
1
C
9
2
-D
C
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K