Fréttablaðið - 30.03.2017, Page 60
3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r32 s p o r T ∙ F r É T T a B L a ð I ð
sport
Deildarmeistaratitillinn innan seilingar hjá FH-ingum
Sóttu dýrmætan sigur til nágrannanna á Ásvöllum FH-ingum nægir jafntefli í lokaumferðinni til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Olís-deild
karla eftir tveggja marka sigur á Haukum í Hafnarfjarðarslagnum á Ásvöllum í gær. Hér fagna FH-ingar sigrinum í leikslok. Fréttablaðið/ernir
FóTBoLTI Freyr Alexandersson,
landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta,
tilkynnti í gær 23 manna leik-
mannahóp sem mætir Slóvakíu og
Hollandi ytra í tveimur vináttu-
leikjum í byrjun næsta mánaðar.
Í hópinn vantar fjóra fastamenn
sem eru meiddir en það eru Dagný
Brynjarsdóttir, Hólmfríður Magnús-
dóttir, Sandra María Jessen og Dóra
María Lárusdóttir. Sú síðastnefnda
sleit krossband fyrir nokkrum
vikum og á engan möguleika á að
ná EM í Hollandi í sumar. Hinar eru
líklegri en staðan er ekki góð.
„Ég er auðvitað óánægður með að
þurfa að glíma við þetta núna þegar
það eru ekki nema rúmlega 100
dagar í Evrópumótið,“ sagði Freyr
á fréttamannafundi í gær frekar
svekktur með stöðuna á liðinu.
Freyr gat stillt upp nánast sama
liði alla undankeppnina þar sem
stelpurnar unnu alla leiki nema
Bíður eftir öllum lykilmönnum
Íslenska kvennalandsliðið glímir við þó nokkur meiðslavandræði þegar ríflega 100 dagar eru í Evrópu-
mótið. Freyr Alexandersson er ekki að drífa sig að velja EM-hópinn þar sem hann vill lykilmennina inn.
einn en nú þegar styttist í mótið
þarf hann að tækla þessi meiðsla-
vandræði.
„Það hafa aðrir leikmenn komið
inn og fengið tækifæri. Ég hef fengið
mörg jákvæð svör og er í heildina
sáttur við undirbúninginn til þessa
fyrir utan þessi meiðsli,“ sagði Freyr.
Hann sagði að Dagný Brynjars-
dóttir væri frá fram í apríl og gæti
ekki spilað þessa stundina en lengra
væri í Hólmfríði og Söndru Maríu.
Harpa ekki hætt
Íslenska liðið hefur verið án Hörpu
Þorsteinsdóttur, aðalframherja þess,
frá því undankeppni EM 2017 lauk.
Hún var markahæst í undankeppn-
inni með tíu mörk og algjör lykil-
maður í sóknarleiknum. Frá því að
hún meiddist eru stelpurnar búnar
að spila sjö leiki án þess að fram-
herji sem byrjar leikinn skori mark.
„Já, þetta er rétt hjá þér,“ sagði
Freyr þegar þessi tölfræði var borin
undir hann á fundinum í gær. „Ég
get alveg viðurkennt það að ég hef
ekki verið ánægður með öll þau
svör sem ég hef fengið frá þeim leik-
mönnum sem hafa fengið tækifærið
í fjarveru Hörpu en ég er ekki búinn
að gefast upp á þeim.“
Harpa tók sér frí vegna barns-
burðar en hennar annað barn kom
í heiminn fyrir tveimur vikum.
„Ég fundaði með Hörpu fyrir
viku. Það var í fyrsta sinn sem við
ræddum málin eftir barnsburðinn.
Ég þurfti fyrst og fremst að fá svar
við því hvort hún ætlar að halda
áfram í fótbolta og svarið við því
var jákvætt. Tíminn leiðir svo í ljós
hvort hún verði komin í nægilega
gott stand til að spila fyrir lands-
liðið,“ sagði Freyr.
bíður eftir þeim bestu
Mark Sampson, kollegi Freys hjá
enska landsliðinu, tilkynnir loka-
hópinn fyrir EM á mánudaginn en
það ætlar Freyr svo sannarlega ekki
að gera alveg strax. Hann veit hver
sterkasti hópur hans er en getur
ekki tekið ákvörðun vegna meiðsl-
anna.
„Ég mun bíða eftir lykilmönnum
eins lengi og ég get. Það er alveg
ljóst að ég þarf að bíða. Það vita allir
hvaða leikmenn þetta eru og þetta
eru leikmenn sem skipta máli,“
sagði Freyr en benti á stöðu karla-
landsliðsins á EM í fyrra.
„Við skulum ekki gleyma því að
Aron Einar og Kolbeinn komu haltr-
andi inn á EM en þeir skiluðu góðri
frammistöðu. Ég lærði af undirbún-
ingi karlaliðsins að tilkynna hópinn
ekki of fljótt. Ég mun bíða eins lengi
og ég get með lokahópinn til að sjá
hvort okkar sterkustu póstar komi
til baka.“ tomas@365.is
Ég er sáttur við
undirbúninginn
fyrir utan þessi meiðsli.
Freyr Alexandersson,
landsliðsþjálfari
L-Mesitran
Náttúruleg
sáragræðsla
með hunangi
Vörurnar fást í Lyf og heilsu, Lyfjaveri, Apótekaranum, Hraunbergsapóteki,
Lyfsalanum Glæsibæ,Akureyrarapóteki, Apóteki Mos og Apóteki Ólafsvíkur.
Nánari upplýsingar
fást á www.wh.is.
Keflavík - Skallagrím. 68-70
Stigahæstar: Emelía Ósk Gunnarsdóttir
19, Thelma Dís Ágústsdóttir 13, Birna Val-
gerður Benónýsdóttir 11, Ariana Moorer
8/6 frák./9 stoðs., Erna Hákonardóttir 6 -
Tavelyn Tillman 33, Sigrún Sjöfn Ámunda-
dóttir 12/11 frák., Kristrún Sigurjónsdóttir
9, Ragnheiður Benónísdóttir 8/10 frák.
1-0 fyrir Skallagrími. næsti leikur er í
Borgarnesi á sunnudaginn.
Domino’s-deild kvenna
Undanúrslit leikur 1
Nýjast
SArA BJörK SiTur Enn EiTT
árið EFTir MEð SárT Ennið
Í fimmta sinn á sex árum varð Sara
Björk Gunnarsdóttir að sætta sig
við að detta út úr átta liða úrslitum
Meistaradeildarinnar, nú með
félögum sínum í þýska liðinu
Wolfsburg. Wolfsburg vann 1-0
sigur á Evrópumeisturum Lyon í
Frakklandi í gær en það
dugði ekki því franska
liðið vann fyrri leikinn
2-0 í Þýskalandi.
Wolfsburg hafði
komist í undan-
úrslitin fjögur
ár í röð en
Sara Björk
komst
aldrei í
undan-
úrslitin
með
sænska
liðinu
rosen-
gård.
Haukar - FH 28-30
Markahæstir: Ivan Ivokovic 10, Hákon Daði
Styrmisson 4, Daníel Þór Ingason 4, Jón
Þorbjörn Jóhannsson 3, Tjörvi Þorgeirsson
3, Guðmundur Árni Ólafsson 2/1 - Ásbjörn
Friðriksson 9/1, Ágúst Birgisson 6, Einar
Rafn Eiðsson 6/2.
ÍbV - akureyri 22-22
Markahæstir: Theodór Sigurbjörnsson 7/2,
Sigurbergur Sveinsson 5, Róbert Aron Hos-
tert 4 - Andri Snær Stefánsson 6/2, Kristján
Orri Jóhannsson 4, Mindaugas Dumcius 4,
Brynjar Hólm Grétarsson 4.
Fram - afturelding 32-32
Markahæstir: Arnar Birkir Hálfdánsson
11, Þorgeir Bjarki Davíðsson 9, Þorsteinn
Gauti Hjálmarsson 6 - Ernir Hrafn Arnarson
8, Þrándur Gíslason 6, Elvar Ásgeirsson 4,
Guðni Már Kristinsson 4.
Selfoss - Valur 29-28
Markahæstir: Teitur Örn Einarsson 8, Her-
geir Grímsson 8, Elvar Örn Jónsson 6, Guðni
Ingvarsson 4 - Sveinn Aron Sveinsson 7, Atli
Karl Bachmann 7, Alexander Örn Júlíuss. 5.
Grótta - Stjarnan 31-31
Markahæstir: Þráinn Orri Jónsson 8, Elvar
Friðriksson 6, Finnur Ingi Stefánsson 5, Júlí-
us Þórir Stefánsson 5 - Ólafur Gústafsson 6,
Starri Friðriksson 5, Ari Magnús Þorgeirsson
5, Garðar Benedikt Sigurjónsson 5.
efri
FH 35
ÍBV 34
Haukar 33
Afturelding 30
Selfoss 24
neðri
Valur 23
Grótta 22
Fram 21
Stjarnan 20
Akureyri 18
Nýjast
Olís-deild karla
16.00 ana inspiration Golfstöðin
17.50 Valur - Ía Sport 2
19.00 Kr - Keflavík Sport
20.00 Shell Houston Open Golfst.
01.00 ana inspiration Golfstöðin
19.15 Kr - Keflavík DHL-höllin
19.30 Valur - Hamar Valshöllin
Í dag
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
2
-A
A
4
8
1
C
9
2
-A
9
0
C
1
C
9
2
-A
7
D
0
1
C
9
2
-A
6
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K