Fréttablaðið - 30.03.2017, Page 74

Fréttablaðið - 30.03.2017, Page 74
KviKmyndir Beauty and the Beast HHHHH Leikstjóri: Bill Condon Framleiðendur: David Hoberman, Todd Lieberman Handrit: Stephen Chbosky, Evan Spiliotopoulos Aðalhlutverk: Emma Watson, Dan Stevens, Luke Evans, Josh Gad Flestir sem ekki hafa búið undir grjóti í áraraðir kunna söguna um Fríðu og dýrið. Nú, þökk sé Disney, eru heilu kynslóðirnar sem þekkja ævintýrið í vissu formi þar sem ákveðinn lagalisti, tiltekin umgjörð og formúla fylgir með sterkustu minningum þessarar sögu. Teiknimyndin Beauty and the Beast frá 1991 er ekki bara eitthvert barn síns tíma sem ákveðnum hópum er annt um, heldur er hún venjulega talin á meðal vandaðri verka fyrirtækisins og þar að auki fyrsta teiknimyndin í sögunni til þess að hljóta Óskarstilnefningu í flokki bestu myndar. Ef varan er ekki biluð er lítil ástæða til þess að laga hana. Seinustu árin hefur Disney- teymið hins vegar skellt í hágír með átakið að tína úr gamla sarp- inum og flytja gömlu teiknimynd- irnar í leikið form og mun slíkum myndum aðeins fara fjölgandi á næstu árum – því nýir hlutir eru víst ákaflega ofmetnir hjá kvikmynda- verum. Minna snýst þetta orðið um að gera eitthvað nýtt við gamalt og meira að setja nýjan verðmiða á nostalgíuna. Beauty and the Beast er nánast í sérflokki þarna, þar sem hún er byggð á sígildu teiknimyndinni en er gefið glænýtt líf, með sömu lögum, sama stíl, sömu samræðum og gengur hún nánast alfarið út á það að minna áhorf- endur á allt sem þeir elskuðu við uppruna- legu mynd- ina. Vissulega eru einhverjar viðbætur en á sköpunar- stigi má segja að flest það jákvæða við þessa „aðlög- un“ skrifist á hina útgáf- una. L ö g i n gömlu eru enn frábær en í hand- riti þess- arar end- u r g e r ð a r er komið fram við helstu þætti frá- sagnarinnar eins og efni sem þarf að haka við af tékklista frekar en að það haldi sér á floti á eigin sjarma. Sumar viðbæturnar – eins og glænýr formáli, ný söngnúmer og auka baksögur – virka meira eins og uppfyllingar heldur en kaflar sem styrkja eða dýpka söguna. Það er sama hversu miklum p e n i n g u m e r k a s t a ð í umgjörðina, ef Fríða sjálf getur ekki sungið eða straumarnir á milli aðalleikar- anna tveggja eru takmarkaðir er erfitt að komast hjá þeim kjána- hrolli sem getur myndast fyrir vikið. Það skiptir engu hvaða lógík áhorfandinn þarf að taka í sátt, ef aðal sögunnar gengur ekki upp, þá stendur bara tómt skraut eftir, nema nú með tilheyrandi lögum sem auð- velt er að fá á heilann. Leikaravalið er ekki af verri end- anum en ekki veit ég hver fékk þá ranghugmynd að Emma Watson myndi smellpassa í hlutverk Belle. Hún reynir sitt besta til að lifa sig inn í í hlutverkið af miklum eld- móði en flutningur hennar verður oftar en ekki stirður og ósannfærandi. Aldrei tók ég hana í sátt í rullunni og enn síður þegar hún reynir að þenja sig upp á háu nóturnar í þeim lögum sem hún fær. D a n S t e - vens er ann- ars stórfínn s e m m a r g - laga dýrið og reynir eins og hann getur að hleypa til- finningum í gegnum held- ur truflandi, stafrænt gervi s e m m u n á b yg g i l e g a ekki eldast vel. Luke Evans og Josh Gad eru líf- legir og fyndnir sem taumlausa egógerpið Gaston og aðstoðar- maður hans, LeFou. Það liggur við að sé meira um strauma hjá Gaston og LeFou heldur en hjá Belle og dýr- inu. Evans er allavega meistaralega sjálfumglaður á réttan hátt og með fínustu rödd, þó svo að lofsöngur- inn um illmennið passi ekki alveg við leikarann þegar notaðir eru sömu textar. Í teiknimyndinni var Gaston byggður eins og fjall, en það er sama hversu flottu formi Evans er í, hann nær ekki alveg að koma til skila tröllvaxna kraftamenn- inu sem hann á að vera. Annars er lítið út á raddhlutverkin að setja. Emma Thompson og Ian McKellen eru kærkomin í hópinn en Ewan McGregor er úti á túni með hreim franskrar staðalmyndar. Mögulega gengur þessi endur- vinnsla best upp hjá öllum sem eiga sér enga tengingu við teikni- myndina og enn betur ætti hún að virka á þá sjö einstaklinga sem hafa aldrei séð hana. Afraksturinn er eins konar blanda af áhrifalausu glysi og meinlausri afþreyingu sem erfitt er að láta sér leiðast yfir sökum skraut- sins. En „meira“ er ekki alltaf ávísun á betra og það er því miður fátt sem tekst að afreka á tveimur tímum í þessari mynd sem ekki var gert þre- falt betur efnislega á tæpum níutíu mínútum í upprunalegu myndinni. Tómas Valgeirsson niðurstaða: Umgjörðin og tónlistin kemur prýðilega út en Watson er kolvitlaus manneskja í aðalhlutverkið og heildin hverfur langt inn í skugga fyrirmyndar sinnar. Gullfalleg að utan en nánast laus við töfra að innan Dan Stevens þykir standa sig vel í krefjandi hlutverki sem Beast. Emma Watson fer með hlut- verk Belle í Beauty and the Beast. NORDIC­ PHOTOS/AFP • Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf. • Hágæða álprófílkerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga idex.is - sími 412 1700 framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi - þegar gæðin skipta máli idex.is - sím 412 1700 framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi - merkt framleiðsla • Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf. • Hágæða álprófílkerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga Álgluggar - þegar gæðin skipta máli www.schueco.is Álgluggar og hurðir Skemmtanir Árshátíðir Grímuböll Dimmisjón ofl. & ofl. Ykkar skemmtun.... ....okkar fókus AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR SKODA • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is 3 0 . m a r s 2 0 1 7 F i m m t u d a G u r46 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð Bíó 3 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :5 7 F B 0 8 8 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 2 -8 C A 8 1 C 9 2 -8 B 6 C 1 C 9 2 -8 A 3 0 1 C 9 2 -8 8 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 8 s _ 2 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.