Fréttablaðið - 30.03.2017, Blaðsíða 74
KviKmyndir
Beauty and the Beast
HHHHH
Leikstjóri: Bill Condon
Framleiðendur: David Hoberman,
Todd Lieberman
Handrit: Stephen Chbosky, Evan
Spiliotopoulos
Aðalhlutverk: Emma Watson, Dan
Stevens, Luke Evans, Josh Gad
Flestir sem ekki hafa búið undir
grjóti í áraraðir kunna söguna um
Fríðu og dýrið. Nú, þökk sé Disney,
eru heilu kynslóðirnar sem þekkja
ævintýrið í vissu formi þar sem
ákveðinn lagalisti, tiltekin umgjörð
og formúla fylgir með sterkustu
minningum þessarar sögu.
Teiknimyndin Beauty and the
Beast frá 1991 er ekki bara eitthvert
barn síns tíma sem ákveðnum
hópum er annt um, heldur er hún
venjulega talin á meðal vandaðri
verka fyrirtækisins og þar að auki
fyrsta teiknimyndin í sögunni til
þess að hljóta Óskarstilnefningu
í flokki bestu myndar. Ef varan er
ekki biluð er lítil ástæða til þess að
laga hana.
Seinustu árin hefur Disney-
teymið hins vegar skellt í hágír
með átakið að tína úr gamla sarp-
inum og flytja gömlu teiknimynd-
irnar í leikið form og mun slíkum
myndum aðeins fara fjölgandi á
næstu árum – því nýir hlutir eru víst
ákaflega ofmetnir hjá kvikmynda-
verum. Minna snýst þetta
orðið um að gera eitthvað
nýtt við gamalt og meira
að setja nýjan verðmiða á
nostalgíuna.
Beauty and the Beast er
nánast í sérflokki þarna,
þar sem hún er byggð á
sígildu teiknimyndinni
en er gefið glænýtt líf, með
sömu lögum, sama stíl, sömu
samræðum og gengur hún
nánast alfarið út á það
að minna áhorf-
endur á allt sem
þeir elskuðu
við uppruna-
legu mynd-
ina. Vissulega
eru einhverjar
viðbætur en
á sköpunar-
stigi má segja
að flest það
jákvæða við
þessa „aðlög-
un“ skrifist á
hina útgáf-
una.
L ö g i n
gömlu eru
enn frábær
en í hand-
riti þess-
arar end-
u r g e r ð a r
er komið fram við
helstu þætti frá-
sagnarinnar eins
og efni sem þarf
að haka við af
tékklista frekar
en að það haldi
sér á floti á eigin
sjarma. Sumar
viðbæturnar – eins
og glænýr formáli,
ný söngnúmer og
auka baksögur –
virka meira eins
og uppfyllingar
heldur en kaflar
sem styrkja eða
dýpka söguna.
Það er sama
hversu miklum
p e n i n g u m
e r k a s t a ð í
umgjörðina, ef
Fríða sjálf getur
ekki sungið eða
straumarnir á
milli aðalleikar-
anna tveggja eru
takmarkaðir er
erfitt að komast
hjá þeim kjána-
hrolli sem getur myndast fyrir vikið.
Það skiptir engu hvaða lógík
áhorfandinn þarf að taka í sátt, ef
aðal sögunnar gengur ekki upp, þá
stendur bara tómt skraut eftir, nema
nú með tilheyrandi lögum sem auð-
velt er að fá á heilann.
Leikaravalið er ekki af verri end-
anum en ekki veit ég hver fékk
þá ranghugmynd að Emma
Watson myndi smellpassa í
hlutverk Belle. Hún reynir
sitt besta til að lifa sig inn í
í hlutverkið af miklum eld-
móði en flutningur hennar
verður oftar en ekki stirður
og ósannfærandi. Aldrei
tók ég hana í sátt í rullunni
og enn síður þegar hún
reynir að þenja sig upp á
háu nóturnar í þeim lögum
sem hún fær.
D a n S t e -
vens er ann-
ars stórfínn
s e m m a r g -
laga dýrið og
reynir eins
og hann getur
að hleypa til-
finningum í
gegnum held-
ur truflandi,
stafrænt gervi
s e m m u n
á b yg g i l e g a
ekki eldast
vel.
Luke Evans og Josh Gad eru líf-
legir og fyndnir sem taumlausa
egógerpið Gaston og aðstoðar-
maður hans, LeFou. Það liggur við
að sé meira um strauma hjá Gaston
og LeFou heldur en hjá Belle og dýr-
inu. Evans er allavega meistaralega
sjálfumglaður á réttan hátt og með
fínustu rödd, þó svo að lofsöngur-
inn um illmennið passi ekki alveg
við leikarann þegar notaðir eru
sömu textar. Í teiknimyndinni var
Gaston byggður eins og fjall, en það
er sama hversu flottu formi Evans
er í, hann nær ekki alveg að koma
til skila tröllvaxna kraftamenn-
inu sem hann á að vera. Annars er
lítið út á raddhlutverkin að setja.
Emma Thompson og Ian McKellen
eru kærkomin í hópinn en Ewan
McGregor er úti á túni með hreim
franskrar staðalmyndar.
Mögulega gengur þessi endur-
vinnsla best upp hjá öllum sem
eiga sér enga tengingu við teikni-
myndina og enn betur ætti hún að
virka á þá sjö einstaklinga sem hafa
aldrei séð hana. Afraksturinn er eins
konar blanda af áhrifalausu glysi og
meinlausri afþreyingu sem erfitt er
að láta sér leiðast yfir sökum skraut-
sins. En „meira“ er ekki alltaf ávísun
á betra og það er því miður fátt sem
tekst að afreka á tveimur tímum í
þessari mynd sem ekki var gert þre-
falt betur efnislega á tæpum níutíu
mínútum í upprunalegu myndinni.
Tómas Valgeirsson
niðurstaða: Umgjörðin og
tónlistin kemur prýðilega út en
Watson er kolvitlaus manneskja í
aðalhlutverkið og heildin hverfur
langt inn í skugga fyrirmyndar
sinnar.
Gullfalleg að utan en nánast
laus við töfra að innan
Dan Stevens þykir standa sig vel í krefjandi hlutverki sem Beast.
Emma Watson
fer með hlut-
verk Belle í
Beauty and the
Beast. NORDIC
PHOTOS/AFP
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga
idex.is - sími 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi
- þegar gæðin skipta máli
idex.is - sím 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili
Schüco á Íslandi
- merkt framleiðsla
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex
álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi
tegundum bygginga
Álgluggar
- þegar gæðin skipta máli
www.schueco.is
Álgluggar og hurðir
Skemmtanir
Árshátíðir
Grímuböll
Dimmisjón
ofl. & ofl.
Ykkar skemmtun....
....okkar fókus
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
3 0 . m a r s 2 0 1 7 F i m m t u d a G u r46 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
Bíó
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
2
-8
C
A
8
1
C
9
2
-8
B
6
C
1
C
9
2
-8
A
3
0
1
C
9
2
-8
8
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K