Fréttablaðið - 30.03.2017, Síða 84
Drýgja tekjurnar með sölu varnings
Svo virðist sem að til að vera fullgildur meðlimur í íslenskum rappheimi þurfi að leggja nánast jafn mikla vinnu í fram-
leiðslu á ýmiss konar varningi og lögð er í tónlistina. Ástæðan er mikill samdráttur í plötusölu m.a. vegna internetsins.
Rapparinn GKR vakti
athygli þegar hann
gaf út sína fyrstu
plötu en hann seldi
hana á USB-lykli
pökkuðum í lítinn
morgunkornskassa,
en það er vísun í
hans vinsælasta lag,
Morgunmatur. Einnig
hefur hann verið að
selja ansi vinsælar
hettupeysur.
Emmsjé Gauti hefur verið einna öflugastur við sölu á
varningi. Hann heldur úti vefverslun þar sem er nánast
hægt að sinna öllum innkaupum heimilisins. Hann hefur
líka framleitt fatnað í samstarfi við 66°Norður, búið til
tölvuleik til að kynna plötuútgáfu sína og selt aksjónkall
með skírskotun í He-Man.
Sturla Atlas og
101 boys hóp-
urinn hafa verið
mjög frumlegir
í sinni nálgun og
markaðssetningu.
Strákarnir hafa
markaðssett mikið af fatnaði, farið í
samstarf við 66°Norður og fyrst og
fremst notað frumlegar leiðir í að
markaðssetja sig þar sem þeir hafa
meðal annars gert sérstakan ilm
og hannað konsept af Sturla Aqua
vatni.
Stelpurnar í Cyber hafa líkt
og kollegar þeirra í Sturlu
Atlas ávallt verið með öflugt
„lúkk“ í kringum sig þar sem
allt sem þær senda frá sér
fellur inn í fagurfræðina.
Henni má kannski lýsa sem
„aldamóta-gothi með dassi
af normcore“ en kannski
ekki. Þær hafa sent frá sér
boli sem skera sig svolítið
úr stílhreinni hönnun hinna
rapparanna.
Síðan Napster var aðalmálið í kringum aldamótin hefur plötusala farið dvínandi og tónlistarmenn hafa þurft að finna sér aðrar leiðir til að afla
sér tekna. Tónleikahald, tónlistar
veitur og sala á hverslags varningi
hefur því orðið sífellt stærri hluti
af framleiðslu tónlistarmanna og
halda sumir þeirra beinlínis úti fata
búðum á netinu. Hér á landi hefur
þetta verið sérstaklega áberandi í
rappheiminum.
Stefán þór
Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
Morgunkorn og hettupeysur
Með fatnað handa allri fjölskyldunni í vefversluninni
Tónlist og hönnun
í sömu sæng Aldamóta-goth
„Hátíðin hefur stækkað svakalega
síðustu ár – í raun og veru hefur
hún stækkað svo mikið að hún
hefur sprengt utan af sér Sjallann
þannig að við ákváðum að hringja
í gamlan vin okkar, hann Hauk á
Græna hattinum. Hann var einmitt
partur af hátíðinni lengi vel, þann
ig að við ákváðum að kveikja upp
í gömlu ástarsambandi við Græna
hattinn. Þannig getum við líka
boðið upp á fjölbreyttari dagskrá
fyrir alla,“ segir Gauti Þeyr Másson
eða Emmsjé Gauti eins og hann er
nú oftast kallaður, einn af aðstand
endum hátíðarinnar AK Extreme.
Hátíðin verður í ár eins og fyrr
pökkuð af vetraríþróttum og tón
list og aðalatriðið að sjálfsögðu á
sínum stað en það er hið ótrúlega
hræðandi gámastökk og herlegheit
in verða sýnd í beinni útsendingu á
Stöð 2 Sport.
„„Big jumpið“ verður á sínum
stað á laugardeginum en ásamt því
verður „downhill race“ í Hlíðarfjalli
og á föstudeginum verður svokölluð
jibbkeppni. Við erum alveg með 15
artista að spila hjá okkur í ár og við
búumst við sömu geðveikinni og
alltaf. Þeir sem hafa komið áður vita
við hverju er að búast. Sjáumst fyrir
norðan,“ segir Gauti en hann ásamt
Aroni Can, Úlfur Úlfur, Alexander
Jarli, Hildi, Cyber og mörgum fleiri
munu halda uppi fjörinu 6.9. apríl.
Miðar fást á midi.is.
Akureyri verður öfgakennd í apríl
Það eru miklir ofurhugar sem
þora að stökkva yfir þessa
gáma þarna fyrir norðan.
Mynd/EMAGnuSSon
GAuti hefur meðAl
AnnArs selt bArnA-
föt oG póstkort. hAnn
reynDi einniG Að seljA
snekkjuferð einu sinni.
Gkr er líkleGA eini
íslenski rAppArinn
sem hefur selt plötu í
versluninni kjötborG.
3 0 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r56 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð
3
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
2
-A
F
3
8
1
C
9
2
-A
D
F
C
1
C
9
2
-A
C
C
0
1
C
9
2
-A
B
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
2
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K