Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Síða 16
16 Fréttir Erlent Helgarblað 15.–18. janúar 2016 Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is Mono Laserprentari: 24.900 kr. 1.600 síðna hylki: 6.590 kr. Sérfræðingar í prenthylkjum Hneykslismál skekja breska Sports Direct n Markaðsvirði íþróttavörukeðjunnar hefur fallið um 200 milljarða króna frá áramótum M arkaðsvirði bresku íþrótta­ vörukeðjunnar Sports Direct hefur hrunið um jafnvirði rétt tæplega 200 milljarða króna frá ára­ mótum í kjölfar hrinu hneykslismála. Fyrirtækið sendi frá sér afkomuvið­ vörun í síðustu viku og hlutabréf þess hafa fallið í verði um 26% það sem af er ári. Eigandi Sports Direct á Íslandi vildi ekki tjá sig um tíðindin frá Bret­ landi þegar DV náði tali af honum. Minni hagnaður Samkvæmt afkomuviðvöruninni er gert ráð fyrir að hagnaður fyrirtæk­ isins á yfirstandandi fjárhagsári, sem nær frá 1. apríl 2015 til 31. mars 2016, verði 40 milljónum punda, jafn­ virði 7,6 milljarða króna, minni en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Ástæðan sé minni sala í verslunum í dýrari versl­ unargötum og hið góða veður sem gekk yfir Bretland í jólamánuðin­ um. Fyrri spár fyrirtækisins höfðu gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 420 milljónir punda eða 79 milljarða króna. Afkomuviðvörunin kom í kjölfarið á afhjúpun breska fjölmiðilsins The Guardian á launakjörum hlutastarfs­ manna íþróttavörukeðjunnar. Sam­ kvæmt henni er tímakaup þúsunda þeirra undir lágmarkslaunum sem nema 6,7 pundum á klukkustund eða 1.267 krónum. Lánaði tengdasyninum Til að bæta gráu ofan á svart hafa breskir fjölmiðlar síðustu daga greint frá ásökunum um að Mike Ashley, stofnandi smásölurisans og eigandi enska knattspyrnufélagsins Newcastle United, hafi ráðið kærasta dóttur sinnar í yfirmannsstöðu hjá fyrirtækinu. Eigandinn umdeildi hafi einnig lánað tengdasyninum tilvon­ andi 10,7 milljónir punda eða tæpa tvo milljarða króna. Í nýlegri umfjöllun breska við­ skiptamiðilsins Business Insider segir að hinn 26 ára gamli kærasti, Michael Murray, hafi verið fenginn til að stýra 250 milljóna punda fast­ eignasjóði og vinna að markaðssetn­ ingu á nýrri íþróttavörulínu Sports Direct. Murray, sem hefur enga reynslu af fjárfestingum í fasteign­ um, vann þar til í fyrrasumar við að skipuleggja tónleikahátíð í Bretlandi og stýra þarlendum næturklúbbi. Jákvæð afkoma Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri og eigandi Sports Direct í Lindum í Kópavogi, vildi, sem fyrr segir, ekki tjá sig um nýjustu fréttir af bresku íþróttavörukeðjunni. Verslun Sigurðar var rekin með 21 milljónar króna hagnaði á síð­ asta fjárhagsári hennar sem náði yfir tímabilið 1. maí 2014 til 30. apr­ íl 2015. Samkvæmt nýjasta ársreikn­ ingi rekstrarfélags hennar, NDS ehf., námu eignir félagsins 289 milljónum í lok tímabilsins en skuldirnar 265 milljónum. Eignarhald verslunar­ innar er skráð á félag í Lúxemborg, Rhapsody Investments S.A. Sigurð­ ur sagði í viðtali við Viðskiptablaðið í mars 2014 að ástæðan fyrir því væri sú að stjórn Sports Direct í Bretlandi hefði ekki viljað setja fjármagn inn í íslenskt félag. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Stofnaði verslunarrisa Mike Ashley hefur lengi verið tíður gestur á síðum bresku dagblaðanna. Sports Direct Breska íþróttavörukeðjan var stofnuð árið 1982 og rekur í dag yfir 500 verslanir um allan heim. Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson Opnaði Sports Direct á Íslandi sumarið 2012. Má nota pastasigtið Segist vera hluti af spagettíkirkjunni R ússneskur maður fær að vera með pastasigti á höfð­ inu á ökuskírteininu sínu. Þetta er niðurstaða dóm­ stóls þar í landi, en maðurinn er hluti af spagettíkirkjunni svoköll­ uðu. Talað er um að þeir sem eru hluti af Kirkju fljúgandi spagettí­ skrímslisins (e. Church of the flying spaghetti monster), séu „Pastafarians“. Kirkjan gerir grín að trúarbrögðum og trúboði og sagði maðurinn, Andrei Filin, að sigtið væri trúartákn sem hon­ um væri mikilvægt. Hann fær fyrir vikið að vera með sigtið á höfðinu á myndinni. Þeir sem vilja til­ heyra kirkjunni þurfa ekki að taka þátt í nokkrum hátíðum, athöfn­ um eða greiða gjald. Fljúgandi pastaskrímslið er helgitákn safn­ aðarins, það ku vera ósigrandi, al­ máttugt og lítur út eins og spagettí og tvær kjötbollur. n Húfa og sigti Maðurinn á sér- hannaða húfu, sem er alveg eins og sigtið hans góða. MynD BBC

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.