Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2016, Blaðsíða 22
Helgarblað 15.–18. janúar 201622 Fólk Viðtal S vona áföll eyðileggja allt. Það er ekki bara einstak­ lingurinn sem deyr sem hverfur heldur fer öll fjöl­ skyldan í klessu og ég tala ekki um þegar um svona ofbeldis­ glæp er að ræða. Þetta eyðilagði okkar fjölskyldu. Eitt líf tengist mörgum öðrum lífum, fjölskyldu­ hópum og vinum. Þetta hefur svo víðtæk áhrif,“ segir Ragnheiður M. Kristjónsdóttir, markaðsfull­ trúi og fyrrverandi ritstjóri, en litla systir Ragnheiðar, Áslaug Perla Kristjónsdóttir, var myrt á hrottafenginn hátt föstudags­ kvöldið 26. maí árið 2000 þegar henni var kastað fram af svölum á tíundu hæð í blokk í Engihjalla í Kópavogi. Sjö árum yngri Áslaug Perla hefði orðið 37 ára þann 4. janúar hefði hún lifað. Það eru því 16 ár síðan hún lést. „Ég sakna svo þess sem hefði getað orðið og hugsa oft hvernig hún myndi líta út í dag, hvað við værum að bralla, hvort hún ætti börn og hvað hún starf­ aði við. Áslaug Perla var sjö árum yngri en ég, sem var svolítið mikið þá en hefði ekki verið neitt í dag. Ég passaði hana mikið og sótti hana á leikskólann en fór svo að vera með stæla við hana þegar ég varð ung­ lingur. Við áttum samt okkar stund­ ir og elskuðum að horfa saman á Santa Barbara og seinna urðu Fóst­ bræður okkar þættir. Við vorum alltaf að verða betri vinkonur.“ Syninum að þakka Ragnheiður var einstæð móðir þegar Áslaug Perla lést. „Sonur minn var tæplega þriggja ára og var í pössun hjá mömmu þegar hún fékk fréttirnar. Grey karlinn. Þetta hefur örugglega verið hrikalegt áfall. Mamma brjálaðist algjörlega. Sonur minn hefur aldrei rætt þetta og ég veit svo sem ekki hvað börn muna og ég hugsa að hann hafi lok­ að á þessa minningu. Hins vegar getur enginn sagt mér að þetta hafi ekki haft áhrif á hann; þegar ein­ hver svona náinn bregst svona við. Það er honum að þakka að mér tókst að halda áfram. Ég varð að sinna honum, halda áfram í háskól­ anum, borga af íbúðinni og gera það sem þurfti að gera. Fyrst á eftir var maður í einhverri leiðslu. Það tekst ekki öllum að komast í gegn­ um svona og mömmu reyndist það ofviða að missa barnið sitt. Mér tókst að skríða í gang en mamma hefði þurft á hjálp að halda til að halda áfram en hún fékk ekki mikla hjálp.“ Hugurinn fór ekki þangað Aðspurð um daginn örlagaríka segir hún fyrstu viðbrögð allra hafa verið að gera ráð fyrir að um slys hefði verið að ræða. „Pabbi hringdi í mig og sagði mér að koma. Ég yrði að koma strax. Ég átti ekki bíl en tók leigubíl. Pabbi var það alvarleg­ ur í símanum að ég vissi að það var eitthvað að en kom ekkert svona til hugar. Hugurinn fór ekki þangað. Ég bað leigubílstjórann að bíða því Mun ekki fyrirgefa Ragnheiður M. Kristjónsdóttir Ragnheiður hefur ekki fyrirgefið morðingjanum og býst ekki við að gera það. Mynd ÞoRMaR VigniR gunnaRSSon Áslaug Perla Ragnheiður vill að fólk minnist hennar sem stúlku sem átti alla framtíðina fyrir sér. Mynd úR einKaSafni Áslaug Perla Kristjónsdóttir lést árið 2000 þegar henni var hrint niður af svölum blokkar í Engihjalla. Systir hennar, Ragnheiður M. Kristjóns dóttir, segir fjölskylduna ekki hafa jafnað sig eftir missinn. Indíana Ása Hreinsdóttir ræddi við Ragnheiði um Áslaugu Perlu, daginn örlagaríka, fyrirgefninguna, ástina, sorgina og söknuðinn eftir því sem hefði getað orðið. indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.