Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Blaðsíða 4
4 Fréttir Vikublað 26.–28. janúar 2016 Dúntökudeilan fer fyrir Hæstarétt n Kirkjuráð samþykkti að áfrýja dúntökumálinu n Neitar að sleppa hlunnindum af æðarvarpi É g er ákaflega sár yfir þessu og það er sorglegt ef það eina sem fjölskylda mín, sem er erlend, mun vita um íslenska kirkju, er að hún lögsæki sóknarbörn sín til að reyna að hafa af þeim eign- ir þeirra,“ segir landeigandinn Kári H. Jónsson, en Kirkjuráð hefur samþykkt að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Vesturlands í dúntökumálinu svokall- aða til Hæstaréttar eftir að hafa tapað því í lok október. DV greindi frá niðurstöðunni í byrjun nóvember þegar ljóst var Kári hefði unnið fullnaðarsigur í deilu sinni við Kirkjumálasjóð Þjóðkirkj- unnar sem stefndi Kára vegna ára- langra deilna um dúntökuhlunnindi af æðarvarpi á jörð Kára á Snæfells- nesi. Kári var sýknaður af kröfum Þjóðkirkjunnar sem var gert að greiða honum 1,2 milljónir í málskostnað. Kári sagði í samtali við DV þá að hann vonaðist til að Biskupsstofa sætti sig við þessi málalok. Nú er ljóst að svo verður ekki og kirkjan ætlar með dún- tökudeiluna alla leið í Hæstarétt. Fyrirspurn DV til Biskupsstofu, um hvort kirkjan ætlaði að áfrýja dómn- um, sem send var við vinnslu fréttar- innar af niðurstöðu dómsins í byrjun nóvember var aldrei svarað en sam- kvæmt fundargerð kirkjuráðsfundar frá 14. desember síðastliðnum, liggur ákvörðun nú fyrir. Þar kemur fram að Kirkjuráð sam- þykki að áfrýja umræddu máli gegn Kára, máli númer E-69/2014 í Héraðs- dómi Vesturlands, til Hæstaréttar. Kári kveðst hafa fengið að vita af ákvörðun- inni í ársbyrjun. „Mér finnst þetta bara alveg ótrú- legt því ég hef verið í sambandi við hæstaréttarlögmenn, sem fannst þetta algjörlega tapað mál af þeirra hálfu eins og það var í héraði.“ Kirkjumálasjóður stefndi Kára þar sem Þjóðkirkjan taldi sig eiga heimt- ingu á dúntökuhlunnindum af æðar- varpi á grundvelli ítaks í hólma á jörð Kára á Snæfellsnesi. Kirkjan vildi fá viðurkennt að hún ætti rétt á tekjum af um fjórum kílóum af dúni þar á ári. Kári hefur lýst því í viðtölum við DV að málið hafi valdið honum óþægindum, þar sem hann hefur meðal annars verið þjófkenndur. Áralöng deila Forsaga málsins er að Kári, sem eignaðist jörðina Haga árið 2007, kærði sóknarprestinn á Staðastað árið 2010 fyrir dúntöku í leyfisleysi í Gamlahólma í Hagavatni sem til heyrir jörð Kára. Í gegnum aldirnar hefur Þjóðkirkjan eignast ítök í jörðum um allt land, en ítök ganga út á að kirkjan hafi nýtingarrétt af tilteknum auðlind- um eða hlunnindum í landi annarra. Árið 1952 setti Alþingi hins vegar lög um að kirkjan og aðrir þeir sem teldu sig eiga ítök í jörðum sem eru í eigu annarra yrðu að lýsa þeim ítök- um formlega. Þau áttu þó ekki að taka gildi fyrr en sýslumaður væri búinn að þinglýsa þeim. Á þeim tíma lýsti biskup Íslands ítaki í Gamlahólma í Hagavatni þó að ekki hafi verið kveðið sérstaklega á um dúntöku í hólman- um. Hins vegar kom fram í svari sýslu- manns í Snæfells- og Hnappadals- sýslu til biskups að frekari gögn um ítakið vantaði og því var ekki hægt að þinglýsa ítakinu á þeim tíma. Kári fékk síðar staðfest hjá sýslumanni að kröfum kirkjunnar um nýtingarrétt í hólmanum hafi aldrei verið þinglýst á sínum tíma. Réttur kirkjunnar til að tína dún þar hafi því fallið niður árið 1953. Vildu ekki sleppa aukatekjum Kirkjan vildi því láta reyna á þetta fyrir dómi þó að viðurkennt hafi verið í stefnunni að ekki lægi ljóst fyrir „hvernig fór með skráningu þeirra ítaka sem lýst var og hugsan lega hefur sú skráning ekki verið framkvæmd með þeim hætti sem lög buðu.“ Fram kom í stefnunni á sínum tíma að Kirkjumálasjóður hafði þann vara á að ef ekki yrði fallist á að ítakið hafi verið skráð lögum samkvæmt þá yrði byggt á því að hefð hefði myndast fyr- ir ítakinu enda prestar haldið dúntöku áfram óslitið frá 1954. Með öðrum orðum þá hafi sóknarprestar á Staða- stað getað tínt æðardún í hólmanum, selt hann sjálfir og stungið ágóðanum í eigin vasa. Í DV í apríl 2014 kom fram að þannig hafi þetta gengið ágreinings- laust um áratugaskeið eða þar til Kári eignaðist jörðina Haga árið 2007. Þá fór hann að vinna í því að fá hlunn- indi vegna æðarvarps skráð á jörð sína. Svo fór að Þjóðskrá Íslands féllst fyrir nokkrum árum á beiðni hans um að skrá fjögur kíló dúntöku- hlunninda á ári á jörðina Haga. Þess- um aukatekjum, sem Kári sagði þá að gætu numið í mesta lagi 400 þúsund krónum á ári, átti Þjóðkirkjan erfitt með að sleppa takinu á. Gagnrýndi hörkuna Kára, sem er 76 ára og búsettur í Lúx- emborg, þótti með ólíkindum hversu hart kirkjan hefði gengið fram til að vinna aftur ítak sem fallið væri úr gildi og hefði verið fært yfir á jörð hans: „Og nota til þess öll tiltæk brögð eins og bregða fyrir sig hefðarlögum.“ Þrátt fyrir að Kári fullyrði að hann hafi rétt fram sáttarhönd í málinu, varð niður- staðan sú að kirkjan ákvað að stefna honum og krefjast þess að viður- kennt yrði með dómi að öll hlunn- indi af æðarvarpi í Gamlahólma í Hagavatni tilheyrðu kirkjujörðinni og prestsetrinu að Staðastað, Snæfells- bæ, og að öðrum en þeim sem eigandi Staðastaðar heimilar að nýta þessi hlunnindi sé óheimilt að nýta þau. Einnig var farið fram á að Kári greiddi allan málskostnað. Ítakið fallið úr gildi fyrir 61 ári Í niðurstöðu héraðsdóms, sem kvað upp dóm í málinu þann 28. október síðastliðinn, var staðfest að hið um- deilda ítak kirkjunnar til dúntöku hafi, líkt og Kári vildi meina, fallið úr gildi vegna áðurnefndrar vanlýsingar á sjötta áratug síðustu aldar – hafi það á annað borð þá verið til staðar, eins og segir í dómnum. Dómurinn tók því næst afstöðu til varakröfu Kirkjumálasjóðs sem var að ef ítak kirkjunnar hefði fallið niður vegna handvammar biskups árið 1953, hefði engu að síður myndast fyrir því hefð. „Enda hafi sitjandi prestar á Staða- stað haldið áfram óslitið að nýta hlunnindi af æðarvarpi í Gamlahólma á sama hátt og fyrr.“ Í niðurstöðu dómsins sagði, þrátt fyrir að gögn sem Kirkjumálasjóður lagði fram fyrir dómi, að engin gögn liggi fyrir í mál- inu, eins og skattframtöl eða önn- ur rekstrargögn „sem renna styrkari stoðum undir eða sýna fram á að dún- tekja í hólmanum hafi verið stunduð óslitið og samfleytt frá Staðastað eftir 8. júlí 1954, þannig að til hefðar gæti hafa stofnast.“ Því verði ekki séð að Kirkjumála- sjóður hafi í nokkru sýnt fram á að hann hafi öðlast öll hlunnindi af æðarvarpi í umræddum hólma sem ítak á grundvelli hefðar „og skiptir þá ekki máli hvort um sé að ræða sýnilegt eða ósýnilegt ítak.“ Var Kári því sýknaður af dóm- kröfum Kirkjumálasjóðs og vann hann fullnaðarsigur í málinu og Kirkjumálasjóði Þjóðkirkjunnar gert að greiða honum 1,2 milljónir í málskostnað, sem fyrr segir. n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Kirkjan gefst ekki upp Nú er ljóst að níu ára deilan um dúnhlunnindin er á leið fyrir Hæstarétt. Kári H. Jónsson hefur barist við kirkjuna um árabil og hafði vonað að málinu væri lokið með dómi héraðsdóms í lok október í fyrra. Kirkjuráð hafði aðrar hugmyndir. Í S L E N S K H Ö N N U N O G S M Í Ð I LAUGAVEGI 61 KRINGLUNNI SMÁRALIND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.