Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Blaðsíða 21
Vikublað 26.–28. janúar 2016 Kynningarblað - Snyrtistofur 3 Fjölbreyttar vörur og úr- val meðferða hjá Deluxe S nyrti- og dekurstofan Deluxe býður upp á viður- kenndar læknisfræði- legar húðvörur í Green Peel meðferðum sem eru mjög vinsælar hjá stofunni en í þeim efnum má einna helst nefna jurtaandlitsböðin. Vörurnar eru hannaðar af þýskum húðlækni og eru flokkaðar sem hágæða vörur. Vinkonurnar Gyða Agnarsdóttir og Sólrún Edda Pétursdóttir eru eigendur Deluxe og stofnuðu fyrir- tækið í nóvember árið 2013. „Okk- ar aðalmarkmið eru ánægðir við- skiptavinir og að geta veitt þeim slökun og vellíðan. Við viljum ávallt veita okkar viðskiptavinum faglega ráðgjöf og góða þjónustu,“ segir Gyða. Young blood förðunar vörurnar og Moroccanoil „Við bjóðum meðal annars upp á Young Blood förðunarvörurnar sem eru afar vinsælar og eru 100% náttúrulegar,“ segir Gyða. „Um er að ræða steinefnavörur sem eru einnig vegan,“ segir hún. „Auk þess erum við með líkamsvörurn- ar frá Moroccanoil sem eru nýjung há okkur. Undirstaðan í þeim vör- um er hrein argan-olía. Þetta eru mjög hreinar og náttúrlegar vörur. Um er að ræða húðvörur fyrir lík- amann, á borð við skrúbb, olíur, handolíur og sápa,“ segir Gyða. Bjóða upp á Sleek brow meðferð „Valgerður Ósk snyrtifræðingur var að hefja störf hjá okkur en hún sérhæfir sig í Sleek brow meðferð sem snýst um að bæta hárum á augabrúnir og þar með þykkja þær,“ segir Gyða. „Jafnframt fram- kvæmum við augnháralengingar og bjóðum upp á alla almenna snyrtingu. Við erum með mjög fjölbreyttar vörur og mikið úrval meðferða,“ segir Gyða. Eru með einstakt BB krem „Við seljum fyrsta BB kremið (blemish balm) sem þróað var í heiminum, fyrir rúmum 50 árum. Virkni þessa krems er ótrúleg og má bera það meðal annars á bruna, kláða, strax eftir vax, á bólur: er sótthreinsandi og græðandi. Virkni þess, dregur úr bólgu í húð, róar húðina, örvar endurnýjun húðar og dregur úr kláða eftir dýrabit. Það var þróað af húðsjúkdóma fræðingum og hylur mjög vel háræðaslit, stór- ar húðholur, roða og litabreytingar. Það hentar öllum húðtegundum og er mjög gott á bólur, þar sem það er sótthreinsandi. Það þurrkar ekki húðina og því mögulegt að setja það yfir allt andlitið eða nota sem hyljara. Það er mjög gott til að meðhöndla brunasár og önnur sár. Einnig er gott að nota það eftir laz- ermeðferðir,“ segir Gyða. Heitsteinanudd innifalið í meðferðum „Allir sem koma hingað inn í snyrtingu eða dekur fá heitsteinanudd með flestum meðferðum. Þá er viðskipta- vinum gefið nudd með heitum stein- um til að auka slökun og vellíðan. Ávallt fylgir dekur með,“ segir Gyða. Snyrti- og dekurstofan er staðsett í Glæsibæ og er opin alla virka daga frá kl. 10.00 til 18.00 nema fimmtudaga, þá er opið frá kl. 10.00 til 20.00 og svo laugardaga frá kl. 10.00 til 14.00. n M Y n d ir Þ o r M a r V ig n ir g u n n a r SS o n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.