Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2016, Qupperneq 21
Vikublað 26.–28. janúar 2016 Kynningarblað - Snyrtistofur 3
Fjölbreyttar vörur og úr-
val meðferða hjá Deluxe
S
nyrti- og dekurstofan
Deluxe býður upp á viður-
kenndar læknisfræði-
legar húðvörur í Green
Peel meðferðum sem eru
mjög vinsælar hjá stofunni en í
þeim efnum má einna helst nefna
jurtaandlitsböðin. Vörurnar eru
hannaðar af þýskum húðlækni og
eru flokkaðar sem hágæða vörur.
Vinkonurnar Gyða Agnarsdóttir
og Sólrún Edda Pétursdóttir eru
eigendur Deluxe og stofnuðu fyrir-
tækið í nóvember árið 2013. „Okk-
ar aðalmarkmið eru ánægðir við-
skiptavinir og að geta veitt þeim
slökun og vellíðan. Við viljum
ávallt veita okkar viðskiptavinum
faglega ráðgjöf og góða þjónustu,“
segir Gyða.
Young blood förðunar vörurnar
og Moroccanoil
„Við bjóðum meðal annars upp
á Young Blood förðunarvörurnar
sem eru afar vinsælar og eru 100%
náttúrulegar,“ segir Gyða. „Um er
að ræða steinefnavörur sem eru
einnig vegan,“ segir hún. „Auk
þess erum við með líkamsvörurn-
ar frá Moroccanoil sem eru nýjung
há okkur. Undirstaðan í þeim vör-
um er hrein argan-olía. Þetta eru
mjög hreinar og náttúrlegar vörur.
Um er að ræða húðvörur fyrir lík-
amann, á borð við skrúbb, olíur,
handolíur og sápa,“ segir Gyða.
Bjóða upp á Sleek brow
meðferð
„Valgerður Ósk snyrtifræðingur
var að hefja störf hjá okkur en hún
sérhæfir sig í Sleek brow meðferð
sem snýst um að bæta hárum á
augabrúnir og þar með þykkja
þær,“ segir Gyða. „Jafnframt fram-
kvæmum við augnháralengingar
og bjóðum upp á alla almenna
snyrtingu. Við erum með mjög
fjölbreyttar vörur og mikið úrval
meðferða,“ segir Gyða.
Eru með einstakt BB krem
„Við seljum fyrsta BB kremið
(blemish balm) sem þróað var í
heiminum, fyrir rúmum 50 árum.
Virkni þessa krems er ótrúleg og
má bera það meðal annars á bruna,
kláða, strax eftir vax, á bólur: er
sótthreinsandi og græðandi. Virkni
þess, dregur úr bólgu í húð, róar
húðina, örvar endurnýjun húðar og
dregur úr kláða eftir dýrabit. Það var
þróað af húðsjúkdóma fræðingum
og hylur mjög vel háræðaslit, stór-
ar húðholur, roða og litabreytingar.
Það hentar öllum húðtegundum
og er mjög gott á bólur, þar sem
það er sótthreinsandi. Það þurrkar
ekki húðina og því mögulegt að
setja það yfir allt andlitið eða nota
sem hyljara. Það er mjög gott til að
meðhöndla brunasár og önnur sár.
Einnig er gott að nota það eftir laz-
ermeðferðir,“ segir Gyða.
Heitsteinanudd innifalið
í meðferðum
„Allir sem koma hingað inn í snyrtingu
eða dekur fá heitsteinanudd með
flestum meðferðum. Þá er viðskipta-
vinum gefið nudd með heitum stein-
um til að auka slökun og vellíðan.
Ávallt fylgir dekur með,“ segir Gyða.
Snyrti- og dekurstofan er staðsett í
Glæsibæ og er opin alla virka daga frá
kl. 10.00 til 18.00 nema fimmtudaga,
þá er opið frá kl. 10.00 til 20.00 og svo
laugardaga frá kl. 10.00 til 14.00. n
M
Y
n
d
ir
Þ
o
r
M
a
r
V
ig
n
ir
g
u
n
n
a
r
SS
o
n