Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2016, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2016, Page 4
4 Fréttir Vikublað 2.–4. febrúar 2016 Nýjar vörur Streyma iNN Sjáðu úrvalið á tiskuhus.is Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur Sími: 571-5464 Stærðir 38-54 Rangt reikn- ingsnúmer Fyrir mistök birtist rangt reikn- ingsnúmer á styrktarreikningi fyrir hina albönsku Dega-fjöl- skyldu í helgarblaði DV. Beðist er velvirðingar á þeim mistökum. Réttar upplýsingar eru: Bankaupplýsingar: 111-05- 262415 Kennitala: 180964-5929. Vill ekki starfsréttindi Lögfræðingurinn Atli Helgason hefur dregið til baka beiðni sína um að fá lögmannsréttindi sín á ný. Málflutningur átti að fara fram í máli Atla í Héraðsdómi Reykja- víkur á mánudag, en var látinn niður falla eftir að eftirfarandi bókun varð lögð fram í réttar- haldinu: „Sóknaraðili, Atli Helgason, telur að starfsréttindi hans sem lögmaður sé minna virði en þær þjáningar aðstandenda sem um- fjöllun um málið hefur endur- vakið. Því hefur Atli afráðið að afturkalla, að svo stöddu, ósk sína um niðurfellingu réttindasvipt- ingar.“ Eins og kunnugt er var Atli dæmdur fyrir morðið á Einari Erni Birgissyni, árið 2000. Atli var sviptur málflutnings- réttindum þegar hann var dæmd- ur fyrir morðið. Innanríkis- ráðuneytið varð við beiðni Atla fyrir áramót um uppreista æru. Lögmannafélag Íslands lagðist gegn kröfu Atla um málflutnings- réttindi sem og ríkissaksóknari. Tengslin við Hagvang stöðvuðu ekki VR n Framkvæmdastjóri VR leiðbeindi yfirmanni eiginkonunnar n „Óheppilegt“ Ó lafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, fékk ráðningarfyrirtækið Hagvang til að leggja mat á umsækjendur um sæti stéttarfélagsins í stjórn Líf- eyrissjóðs verzlunarmanna (LV). Eig- inkona Stefáns Sveinbjörnssonar, framkvæmdastjóra VR, starfar sem forstöðumaður hjá Hagvangi en hann sá um öll samskipti stéttar- félagsins við ráðningarfyrirtækið. Heimildir DV herma að kostnaður VR vegna matsins hlaupi á milljón- um króna og að engin skrifleg beiðni um að Hagvangur tæki verkið að sér hafi verið send á fyrirtækið. Stjórnar- maður í VR segir „mjög óheppilegt“ að ráðningarfyrirtækið hafi séð um framkvæmd þess. „Það hafði enginn hugmynd um tengslin fyrr en eftir á. Auðvitað er þetta mjög óheppileg tenging en mín reynsla er sú, miðað við pólitík- ina sem er stunduð innan verkalýðs- hreyfingarinnar, að flest allir faglegir ferlar í kringum svona skipanir séu aðeins faglegir á yfirborðinu,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnar- maður í VR og umsækjandi um sæti í stjórn LV. Funduðu tvisvar Alls sóttu 40 um sæti í stjórn LV, næststærsta lífeyrissjóðs landsins, fyrir hönd VR þegar stéttarfélagið auglýsti eftir fólki síðastliðið haust. VR tilnefnir fjóra í stjórn sjóðsins og við fyrri stjórnarkjör LV sá stjórn stéttarfélagsins um að velja eftir til- lögum formanns þess. Í svari lög- manns VR við fyrirspurn DV, sem var upphaflega send Ólafíu rétt fyrir há- degi í gær, mánudag, segir að Stefán Sveinbjörnsson hafi ekki komið að ákvörðuninni um að kaupa þjónustu Hagvangs. Gögn sem DV hefur undir höndum sýna aftur á móti að Stefán sá alfarið um samskipti VR við ráðn- ingarfyrirtækið og sendi starfsmanni þess meðal annars upplýsingar um hvað fælist í starfi stjórnarmanna í lífeyrissjóðum. Fundaði Stefán tví- vegis með starfsmanni ráðningar- fyrirtækisins og yfirmanni eiginkonu sinnar. Eiginkona Stefáns er Geirlaug Jóhannsdóttir og stýrir hún skrifstofu Hagvangs í Borgarnesi. Hagvangur valdi á endanum sext- án umsækjendur sem voru síðan lagðir fyrir stjórn VR. Hún valdi í kjölfarið tvo fulltrúa en rúmlega 100 meðlimir trúnaðarráðs VR kusu hina tvo úr hópi þeirra 14 sem eftir voru. „Það var áður ákveðið að ef það kæmu inn fleiri umsækjendur en 16 væri fenginn óháður aðili til að velja þá úr sextán manna hópi. Ég veit ekki til þess að það sé komin fyrirspurn um kostnað VR við þetta ferli en ég geri fastlega ráð fyrir að það verði gert,“ segir Ragnar. Öllum skipt út Enginn fjögurra fulltrúa VR í stjórn LV náði kjöri í trúnaðarráði stéttar- félagsins eftir að stjórn VR hafði valið tvo aðra umsækjendur. Þeir fulltrúar VR sem koma til með að sitja í stjórn lífeyrissjóðsins fyrir kjörtímabilið 2016 til 2019 hafa því aldrei áður setið í henni. DV greindi á föstudag frá lög- fræðiáliti sem Ásta Rut Jónasdóttir, formaður LV og fulltrúi í stjórn hans fyrir hönd VR, lét gera en í því kemur fram að umsækjendur sem sátu sjálf- ir í trúnaðarráðinu hafi ekki fengið að taka þátt í kosningunni á helmingi fulltrúa VR. Fór hún fram á að kosn- ingin yrði ógilt og endurtekin. Stjórn stéttarfélagsins hafnaði því á fundi sínum, á sunnudag, sem stóð yfir í rúma tvo klukkutíma. Ásta Rut, Birgir Már Guðmunds- son og Fríður Birna Stefánsdóttir, þrír af fjórum fulltrúum VR, fengu því ekki að greiða atkvæði í kosningu trúnaðarráðsins sem fór fram þriðju- dagskvöldið fyrir viku. Einungis munaði einu atkvæði á Ástu og Auði Árnadóttur, sem náði kjöri í aðal- stjórn LV. Áréttaði Ásta í yfirlýsingu fyrir helgi að ekki væri hægt að taka kosningarétt af fólki nema með skýr- um lagaheimildum. Fjórði fulltrúinn sem hættir í stjórn LV á næstu dögum, Páll Örn Líndal, komst ekki í gegnum hæfnismat Hagvangs þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið (FME) hefði áður metið hann hæfan til stjórnarsetu. „Ég er að byrja áttunda ár mitt í stjórn VR og maður er búinn að sjá ýmislegt og hrossakaupin í kringum stjórnarsetu í lífeyrissjóðinum hafa verið alveg ótrúleg, vægast sagt. Það er svolítið merkilegt þetta upphlaup þessara stjórnarmanna sem koma fram núna og urðu undir í atkvæða- greiðslu sem var í sjálfu sér mun lýð- ræðislegri en hún hefur nokkurn tímann verið. Þó að pólitíkin sé alltaf jafn sterk í skipun þessara sæta þá er grátbroslegt að sjá þetta fólk vera með upphlaup núna miðað við hvað það hefur á samviskunni. Þetta er það skásta sem ég hef séð hjá VR varðandi val hjá stjórnarmönnum,“ segir Ragnar. n Mikil uppstokkun Fjórir fulltrúar eru tilnefndir í stjórn LV af samtökum atvinnurekenda. Úlfar Steindórsson, forstjóri og eigandi Toyota á Íslandi, mun koma nýr inn stjórn Lífeyr- issjóðs verzlunarmanna fyrir kjörtímabilið 2016 til 2019. Auk Úlfars þá er Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs N1, tilnefnd af Félagi atvinnurekenda og Benedikt K. Kristjáns- son, sölu- og þjónustufulltrúi, tilnefndur af Kaupmannasamtökum Íslands, sam- kvæmt heimildum DV. Áður hefur verið greint frá því að Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins (SI), muni taka sæti í stjórn lífeyrissjóðs sem fulltrúi þeirra í stað Helga Magnússonar. Benedikt er sá eini sem hefur áður setið í stjórn LV. Mikil uppstokkun verður því á stjórn sjóðsins fyrir næsta þriggja ára kjörtímabil en fyrir liggur að enginn af fulltrúum VR, sem eru einnig fjórir talsins, hafa áður átt sæti í stjórn LV. Fulltrúar VR í stjórninni, eins og sagt var frá í DV í síðustu viku, verða þau Auður Árnadóttir, fjármálastjóri hjá Hörpu, Ólafur Reimar Gunnarsson, stjórnarmaður í VR, Magnús Ragnar Guðmundsson, sem starfar hjá Össuri, og Ína Björk Hannesdóttir, rekstrarstjóri hjá ReMake. Framkvæmdastjóri VR Stefán Svein- björnsson vísaði eins og Ólafía á lögmann VR þegar DV náði tali af honum. Mynd VR Stjórnarmaður VR Ragnar Þór Ingólfsson segir óheppilegt að VR hafi leitað til Hag- vangs. Hann sótti sjálfur um sæti í stjórn LV. Formaðurinn Ólafía B. Rafnsdóttir vildi ekki veita DV viðtal þegar eftir því var leitað. VR er stærsta stéttarfélag landsins með um 30.000 félagsmenn. Mynd SigtRygguR ARi Haraldur guðmundsson Hörður Ægisson haraldur@dv.is/ hordur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.