Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2016, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 2.–4. febrúar 20164 Þvottahús og efnalaugar - Kynningarblað Persónuleg þjónusta hjá Þvottahúsinu Fatahreinsun Þ vottahúsið Fatahreinsun er persónulegt fjölskyldufyrir­ tæki, sem er staðsett að Hraunbrún 40 í Hafnar­ firði. Eigendur fyrirtækisins eru hjónin Haukur Þorgeir Sveins­ son og Phiyada. Þar sem eigendur búa í sama húsnæði og reksturinn fer fram, er mögulegt fyrir viðskipta­ vini að nálgast fötin sín utan venju­ legs opnunartíma ef um neyðartil­ felli er að ræða án aukagjalds. „Við leggjum mikið upp úr persónulegri þjónustu fyrir okkar viðskiptavini,“ segir Haukur. „Við erum í rauninni með þvottahús og fatahreinsun. Vinsæl í dúkum, en annars sjáum við um bæði þvott og fatahreinsun, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki,“ segir hann. Sérhæfð í skyrtuþvotti „Við leggjum mikla vinnu og gæði í skyrtuþvottinn hjá okkur,“ segir Haukur. „Við byrjum á að þurr­ hreinsa þær áður en við þvoum þær, sem verður til þess að fitublettir fara algjörlega úr. Með þessu verða skyrturnar hreinni,en oft er fiturönd í skyrtukraganum, sem fer ekki úr við venjulegan þvott. Þurrhreinsunin sér hins vegar alveg um að ná þessu úr,“ segir hann. „Það er því óhætt að segja að við gerum meira en gert er annars staðar,“ bætir Haukur við. Áhersla á gæði „Við leggjum mikla áherslu á gæði,“ segir Haukur og segir hann það helstu ástæðu þess að þau séu með tryggan kúnnahóp. „Við þjónustum bæði einstaklinga sem og fyrirtæki,“ segir hann en dæmi um slíka við­ skiptavini er Sælgætisverksmiðjan Góa, Fjarðarkaup, Apótek Hafnar­ fjarðar og Garðabæjar, Aðalskoðun, mötuneytið hjá Seðlabankanum og ýmis gistiheimili. „Það fáum jafn­ framt til okkar mikið af dúkum og vinnufatnaði frá ýmsum fyrirtækjum sem við sjáum um hreinsun fyrir,“ bætir hann við. Tilboð í febrúar „Við bjóðum viðskiptavinum okkar núna í febrúar upp á að koma með þrjár flíkur í hreinsun en greiða að­ eins fyrir tvær,“ segir Haukur. „Verð á hreinsun á jakkafötum á 3.200 krón­ ur en mögulegt er að koma með stakan jakkafatajakka eða stakar jakkafatabuxur og greiða þá 1.600 krónur fyrir stykkið,“ segir hann. Að auki bætist þessi febrúarafsláttur við: að viðskiptavinur greiðir nú aðeins 3.200 krónur fyrir þrenn­ ar buxur eða þrjá jakka í stað 4.800 krónur og fær því 33,3% afslátt. Gengur einnig undir nafninu Haukur pressari Fyrirtækið var stofnað árið 1962 en Haukur og Phiyada eru búin að vera eigendur síðustu átta ár. Haukur segir frá því hvernig hann sjálfur hefur oft á tíðum verið kallaður Haukur pressari sem spratt upp út frá hinum þekkta Hauki pressara úr Reykjavík og síðar Vífilsstöðum. Sá var einna helst þekktur fyrir að pressa fyrir hina ýmsu góðborgara og þekkja margar kynslóðir til hans. Til eru margar eftirminnilegar sögur af karlinum. Ein sagan segir að hann hafi verið hrifinn af ungri starfs­ stúlku á Vífilsstöðum og gert hosur sínar grænar fyrir henni. Eitt sinn hitti hún Hauk í miðbæ Reykjavíkur og heilsaði honum innilega. Hann brást frekar snubbótt við. „ Fröken mín,“ hvíslaði hann að henni. „Gættu að því, að þú ert starfsstúlka á Vífilsstöðum en ég er frægur mað­ ur. Fólk gæti haldið að ég væri sjúk­ lingur á Vífilsstöðum!“ sagði hann. „Það er gaman að segja frá því að við erum með styttu af Hauki pressara Guðmundssyni úti í garði hjá okkur þar sem kalrlinn heldur á straubolt­ anum sínum og straupúltinu og er hann svolítið andlit fyrirtækisins,“ segir Haukur. Þvottahúsið er stað­ sett á milli Víðistaðakirkju og Víði­ staðaskóla í Hafnarfirði að Hraun­ brún 40. Opnunartími er alla virka daga frá kl. 08.00 til 17.00 og föstu­ daga til 18.00. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.