Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2016, Blaðsíða 9
Fréttir 9Vikublað 2.–4. febrúar 2016
þurfi í hausinn á garðinum en notað
var í þann sem þegar er til staðar. Þá
er einnig ljóst að byggja þarf þann
garð upp að nýju þar sem ágengt
brimið er á góðri leið með að mola
hann enn frekar.
Eins og staðan er nú, er best fyrir
Víkurbúa að krossa fingur og vona
að ekki komi til ofsaveðurs af suð-
vestri. Síðasta víglínan er orðin þunn
og það má lítið út af bregða svo sjór
brjóti sér ekki leið inn í austasta
hluta þorpsins, þar sem landið er
nokkru lægra þegar kemur inn fyrir
sjávarvörnina. Ásgeir er vongóður
um að undirbúningur geti hafist í vor
eða sumar. „Ef farið verður í fram-
kvæmdir í ár verða menn einfaldlega
að ganga frá fjármögnun á aukafjár-
lögum.“ n
Fyrir tæpum þremur mánuðum Þá leit ströndin svona út. Bein lína og gróið land var nokkuð á milli sandfjörunnar og austasta hluta þorpsins þar sem nokkur iðnfyrirtæki eru til húsa og meðal annars Vegagerðin er með aðstöðu. Mynd Þórir n. Kjartansson
Brimið vann þessa lotu Sandfangarinn hefur gert gagn en brimbrjóturinn eða hausinn
er nánast horfinn. Brimið hefur molað hann mélinu smærra. Mynd Þórir n. Kjartansson
M
aður sem grunaður er
um íkveikju að Ljósalandi
(Skriðulandi) í Dalabyggð
hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 4. febrúar næst-
komandi.
Lögreglunni á Vesturlandi var
tilkynnt laust fyrir klukkan fimm í
gæmorgun um að ölvaður maður
gengi berserksgang við Hótel Ljósa-
land í Dalabyggð. Lögreglan fór á
vettvang en hálftíma síðar var til-
kynnt um að kviknað væri í hótel-
byggingunni.
Í tilkynningu lögreglu kemur
fram að slökkviliðin í Dalabyggð,
Strandabyggð og Reykhólahreppi
hafi verið kölluð út og var einn mað-
ur handtekinn á vettvangi grunaður
um að hafa kveikt í byggingunni.
Hann er í haldi lögreglunnar.
Engir gestir voru á hótelinu
þegar kviknaði í byggingunni og
enginn slasaðist. n
Hóteleigandi í gæsluvarðhald
Grunaður um að hafa kveikt í eigin hóteli
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
GRENSÁSVEGI 12 · REYKJAVÍK · 553 3050 · WWW.RIN.IS GRENSÁSVEGI 12 · REYKJAVÍK · 553 3050 · WWW.RIN.IS