Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2016, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2016, Síða 23
Menning 19Vikublað 2.–4. febrúar 2016 W oody Allen virðist að mestu hafa sagt skilið við Evrópu, en þegar hann færði sögu- svið myndanna þangað fyrir áratug eða svo gekk ferill hans í endurnýjun lífdaga. Það er helst að hann bregði sér til Frakklands inni á milli, og þá ekki til samtímans heldur aftur til 3. áratugarins, sem hann virðist hafa mikið dálæti á. Hér er spíritisminn tekinn fyrir, sem var mjög í tísku á þessum tíma, á Íslandi sem annars staðar. Efnafólk borgaði fúlgur fjár fyrir að komast í samband við framliðna ættingja, en fagmenn í sjónblekkingum á borð við Harry Houdini kepptust við að fletta ofan af svikahröppum sem efn- uðust á trúgirni fólks. Colin Firth er hér í hlutverki Houdini fígúrunnar, en Emma Stone, sem virðist í uppá- haldi hjá Allen þessa dagana, leikur sjáandann. Þetta er hið ágætasta sögusvið fyrir Woody Allen-mynd, og um tíma verður úr nokkurs konar Sherlock Holmes-saga þar sem yfirnáttúr u- legar skýringar takast á við verald- legar. Annað er afar kunnuglegt, ung kona er trúlofuð myndarlegum ung- um manni en kemst brátt að því að hamingjan er fólgin í sér eldri og reyndari karlmönnum. Vísað er í heimspeki og listir á stangli án þess að hugmyndir séu krufðar til mergjar og óttinn við dauðann er allsráðandi eins og oftast hjá persónum Allens. Allen er trúr sjálfum sér í hinni kaldranalegu heimsmynd og er það vel, en síðasti þriðjungurinn, þar sem ástarsagan er í fyrirrúmi, hefur oft ver- ið betur gerður. Eftir stendur dæmi- gerð Woody Allen-mynd, skemmtileg að vanda en manni finnst maður hafa séð flest hér áður. n Ágætur Allen Sjáandinn og efasemdamaðurinn Colin Firth leikur mann sem ætlar að fletta ofan af blekkingum miðils, sem er leikinn af Emmu Stone. Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir Magic in the Moonlight Handrit og leikstjórn: Woody Allen Aðalhlutverk: Colin Firth og Emma Stone H vað gerðist á Íslandi í fyrri heimsstyrjöld? Vissulega má hún sín lítils miðað við alla hillumetrana sem hafa verið skrifaðir um þá seinni, og þó breytti hún öllu. Í byrjun árs 1914 var Ísland fátæk hjálenda í Danaveldi með takmarkað lýðræði, en undir lok árs 1918 var það frjálst og fullvalda ríki þar sem almúgafólk og meira að segja konur (þó einungis yfir fertugu) höfðu kosningarétt, sem átti sitt eigið skipa- félag og stóð í viðskiptum við jafnt Bretaveldi sem Bandaríkin. Sagnfræðingar rembast nú við að tengja Íslandssöguna við umheim- inn í stað þess að líta á hana sem aðskilið fyrirbæri. Þegar siðmenn- ingin fór fjandans til, eftir Gunnar Þór Bjarnason, er ágætis eins bindis verk um stríðið sjálft, en verðmætin fel- ast þó fyrst og fremst í íslenska vinkl- inum sem varla hafa verið gerð jafn góð skil. Við lærum að Evrópa var köll- uð Norður álfa í blöðum þá og það er heillandi að lesa um heimsborgina Reykjavík eins og hún var fyrir heims- stríð og áfengis- bann, með túrisma og verslunar- magasín á mörgum hæðum. Og einmitt vegna þess hve lítið gerðist hér miðað við hvað síðar varð er hægt að teygja þræðina alla leið, svo sem með sögu kaup- mannsins Braun sem rak hér verslun og fór síðan í þýska herinn en sneri aftur til Íslands að stríði loknu. Ekki er síður áhugavert að fá sögu Vestur- Íslendinga af vígvöllum fyrri heims- styrjaldarinnar sem stundum er rak- in í smáatriðum, enda höfðu ekki jafn margir Íslendingar verið undir vopn- um síðan á Sturlungaöld. Vafalaust gera vefir á borð við timarit.is mönnum auðveldara fyrir að leita í gömlum blöðum, enda eru blaðagreinar farnar að verða meira áberandi í fræðibókum og er það vel. Nóg vinna er samt að vinsa úr og skrifa samfelldan og skemmtilegan texta, en það hefur Gunnar einmitt gert. Hann tekur bókmenntirnar einnig fyrir, líklega er þekktustu lýsingu á stríðinu hérlendis að finna hjá Halldóri Laxness en tekið er fram að sú sé ekki alls kostar rétt. Athygli vekur að Halldór orti á sín- um tíma lofkvæði um Vilhjálm keisara, en að nasismanum undan- skildum virðist engin hugmynda- stefna á 20. öld hafa verið svo slæm að Laxness aðhylltist hana ekki ein- hvern tímann. Útlit og frágangur eru til fyrir- myndar, ekki síst vegleg heimilda- skrá sem gerir bókina handhæga jafnt sem áhugaverða. Gunnar rekur einnig nýlegar kenningar erlendra fræðimanna á borð við Niall Ferguson og Christopher Clark, sem eru flestir á því að stríðið hafi ekki aðeins verið ónauðsynlegt heldur algert óhapp. Þeim mun heldur er það víti til varnaðar. n „Útlit og frágangur eru til fyrirmynd- ar, ekki síst vegleg heim- ildaskrá sem gerir bók- ina handhæga jafnt sem áhugaverða. Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Bækur Þegar siðmenningin fór fjandans til: Íslendingar og stríðið mikla Höfundur: Gunnar Þór Bjarnason Útgefandi: Mál og menning 371 bls. Til þess eru vítin að varast þau Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík / Hús Blindrafélagsins / Sími 552-2002 Sama veRð í 8 áR! Linsur fyrir öll tækifæri 2500 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.