Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Blaðsíða 37
Helgarblað 19.–22. febrúar 2016 Menning 33 sama tíma. „Fram að dögum Ríkisútvarps- ins fór skoðanamótun á Íslandi um- fram allt fram í kirkjunum. Fólk sótti guðsþjónustur reglulega og þar hittu- st menn. Þeir fáu sem fóru ekki fréttu svo hvað hafði verið rætt þar. Megin- fjölmiðillinn var guðsorð vegna þess að það var notað til að halda fólki í skefjum og móta vitund samfélags- ins,“ segir Þorbjörn. Á fyrstu áratugum 20. aldarinnar var útvarpið fundið upp og var fyrsta útvarpsstöðin á Íslandi stofnuð 1926. Það einkaframtak gekk ekki upp og Ríkisútvarpið var stofnað fjórum árum síðar. „Á fjórða áratugnum var útvarpið hægt og sígandi að ná til allrar þjóðar- innar. Strax í upphafi var keyptur al- veg feikilega öflugur langlínusend- ir og settur upp á Vatnsenda. Það leiddi til þess að útvarpið náði um allt land. Nokkurn veginn hvar sem var á landinu gat fólk því keypt sér útvarps- tæki og byrjað að hlusta.“ Útvarpið mótar vitund þjóðar- innar Áhrifin af þessu og smám saman fór þjóðin öll að skipuleggja dag- legt amstur sitt að einhverju leyti í kringum útvarpsdagskrána. „Á þess- um tíma verður Ríkisútvarpið að al- veg feikilega mikilvægum þætti í dag- legu lífi fólks. Þarna fáum við bæði almennar fréttir og veðurfréttir, sem voru óskaplega mikilvægar,“ seg- ir hann. „Síðan var það menningar- efnið. Menntamenn komu í útvarpið og fluttu erindi sem öll þjóðin hlust- aði á. Ríkisútvarpið átti því án efa mjög mikinn þátt í því að móta vitund þjóðarinnar og efla samkennd hennar fram yfir miðja 20. öldina.“ Allir Íslendingar heyrðu sömu raddirnar tala um sömu málefni og má því leiða líkur að því að Ríkisút- varpið hafi gert þjóðina um margt einsleitari en áður og stækkað sam- eiginlegan reynsluheim einstaklinga á eyjunni. Framan af öldinni fór frétta- mennska fyrst og fremst fram í gegn- um flokksbundin dagblöð og því mikilvægt að fá sameiginlegan um- ræðuvettvang. Fréttastofa Ríkisút- varpsins leyfði sér þó ekki að snerta á pólitískum hitamálum lengi framan af og flokksblöðin voru því enn mikil- væg. „Morgunblaðið var ríkjandi í ís- lenskum fjölmiðlaheimi og mótaði pólitíska umræðu löngu eftir að Rík- isútvarpið kom til sögunnar. Skoð- anamótun fór því fram á forsendum Morgunblaðsins og allar pólitískar rök- ræður fóru fram í blöðunum. Stjórn- málamenn sáu til þess að Ríkisútvarpið gat ekkert beitt sér í pólitískri umræðu. Þeir máttu flytja fréttir á meðan það truflaði engan, en að fara að tala um pólitísk álitamál, eða hafa frumkvæði að því að leiða saman menn í ágrein- ingi, það gekk ekki.“ Sjónvarpið kemur fram Eftir seinni heimsstyrjöld fór sjón- varpseign og notkun að verða nokk- uð útbreidd á Vesturlöndum. Árið 1955 fór fjölmiðill bandaríska her- liðsins í Keflavík að senda út sjónvarps- útsendingar sem náðist í nágrenni við svæðið. 1966 var síðan stofnuð fyrsta íslenska sjónvarpsstöðin, Ríkissjón- varpið. Þorbjörn segir áhrifin af sjónvarp- inu hafa verið margvísleg. Til dæmis hafi allt efni í útvarpinu verið á íslensku en þar sem framleiðslan á sjónvarps- efni var dýrari var mikið erlent efni á boðstólum. Þar með skall flóðbylgja erlendra menningaráhrifa á þjóðinni í einu vetfangi. Hann segir óvænta hliðarafleiðingu af þessu hafa verið aukin ensku- kunnátta og aukið læsi. Vegna pen- ingaleysis gat útvarpið ekki raddað efni, en í staðinn var það textað. „Þetta var neyðarlausn en sem leiddi til þess að sjónvarpið ýtti undir læsi. Börn voru að lesa tugi blaðsíðna á kvöldi þótt þau læsu ekki bók. Jafnframt efldi þetta enskukunnáttu,“ segir Þorbjörn. „Það er svolítið merkileg kenning sem að fjölmiðlafræðingurinn Mars- hall McLuhan setti fram fyrir um 50 árum. Hann hélt því fram að útvarp- ið staðlaði og sameinaði – það sæi til dæmis til þess að fólk hætti að tala í mállýskum – aftur á móti sagði hann að sjónvarpið dreifði – það dreifði hug- anum og í skjóli sjónvarpsins þrifust mállýskur. Honum tókst reyndar aldrei að sanna þetta, enda fannst honum skemmtilegra að slá fram kenning- um en að eltast við að staðfesta þær. En ég held að útvarpið hafi lagt sitt af mörkum til að viðhalda sæmileg- um orðaforða í tungunni og auðgi ís- lenskrar tungu sæki mjög mikið til ljósvakamiðlanna. Vegna þess hvað sjónvarpið er fjölbreytilegt, og hversu hátt hlutfall á Íslandi er af erlendu efni, þá held ég að sjónvarpið hafi ekki haft sömu áhrif.“ Til að byrja með sýndi RÚV þrjá daga í viku, en stuttu síðar var það orðið sex daga vikunnar. Sá siður að halda fimmtudögum (og júlí) sjón- varpslausum hélst svo allt til 1987. Þessar staðreyndir höfðu mikil áhrif á það hvernig hversdagslegt líf fólks var skipulagt: „Einu dagarnir sem var nokkur lifandi leið að draga fólk á fund var á fimmtudögum. Allt félagslíf safn- aðist á fimmtudaga. Svo drógu menn aðeins andann í júlí,“ segir Þorbjörn. Sjónvarpið sem sameinandi afl „Sjónvarpið verður til að sameina fólk því það er bara ein rás og þetta er náttúrlega nýnæmi og óskaplega spennandi,“ segir Þorbjörn. „Alveg fram á síðustu ár var sjón- varpið að vissu leyti sameinandi afl og ég held að það sé alveg óhætt að segja að það sé það enn í dag. Áhorf á alla skapaða hluti er vissulega að minnka, því það er svo mikið í boði. Það breytir því þó ekki að vissir þættir í sjónvarpi – kannski umfram allt fréttirnar – ná til nógu stórs hluta þjóðarinnar til að þeir síist inn í samvitundina. Jafnvel þótt ég hafi ekki horft á fréttirnar sjálf- ur í gærkvöldi þá hefur þú kannski gert það og þar með skapast umræðu- grundvöllur. Ég fæ fréttirnar í gegnum þig. Þótt það dragi úr áhorfi og verður töluverð sundrun þá eru þessar stóru stöðvar áfram sameinandi afl. En þær eru samt ljósár frá því sem var þegar það var bara ein stöð og miklu minna um aðra hluti sem dreifðu huganum.“ Árið 1986 lauk einokun á mark- aði sjónvarps og útvarps með stofnun Stöðvar 2. Þar með lauk þeim 20 ára kafla í sögu þjóðarinnar þar sem allir horfðu á sömu dagskrána og mótuð- ust af sömu sjónvarpsþáttunum frá degi til dags. „Með tilkomu stöðvar 2 missir þjóðin þetta sameiningarafl sitt. Jafn- framt eykst enn og margfaldast er- lenda efnið því Stöð 2 hafði náttúrlega enn síður en Ríkissjónvarpið efni á því að framleiða íslenskt efni. Jafnvel þó að þeir séu á seinni árum með mjög virðingarverðar tilraunir til þess og vissulega heilmikið að gerast.“ Tölvan að breytast í dagblað Möguleikinn til að njóta fjölmiðla utan hinnar línulegu útvarps- og sjónvarpsdagskrár hefur verið til frá því að segulbandið og VHS-spólan komu fram. En það var fyrst með internetinu sem það varð að raun- hæfum valkosti. Niðurhal og streymi komu fram og var síðan svarað af sjónvarpsstöðvum með æskimynda- kerfum (e. VOD) og tækni til hliðraðs áhorfs. Þorbjörn segist telja óhjákvæmi- legt að fjölmiðla- og sjónvarpsneysla muni breytast í grundvallaratriðum með þessari tækni. Þótt það verði ef- laust áfram einhver línuleg dagskrá verði fjölmiðlafyrirtækið frekar að aðila sem útvegar efni og notandinn getur svo raðað því upp og notið þess þegar honum dettur í hug hverju sinni. Þannig verður sjónvarpsstöð að einhverju leyti eins og dagblað sem hægt er að taka upp hvenær sem er, leggja frá sér og taka upp aftur seinna. Rýrnandi samkennd En ef útvarpið og sjónvarpið hafa spil- að svo stórt hlutverk í mótun sameigin- legs reynsluheims þjóðarinnar, hvaða áhrif mun endalok slíkrar neyslustýr- ingar hafa á samfélagið? Munu sam- eiginleg gildi hverfa og samkennd minnka? „Ég held að samkenndin muni ekki rýrna mikið meira en orðið er – en hún hefur vissulega rýrnað. Þú getur ekki lengur treyst því að allir hafi séð sama sjónvarpsefnið, en það hversu auðvelt er orðið að afla upplýsinganna bætir upp fyrir það. Ef maður hefur misst af einhverju og það berst í tal á kaffistof- unni getur maður leitað að því í snjall- símanum. Samkenndin skilar sér með öðrum hætti. Kenningin er því að að- gengileikinn bæti fyrir þessa hliðrun, að við horfum á sömu fréttir en ekki á sama tíma eða stað,“ segir Þorbjörn. „Maður lendir auðvitað í því að það sé einhver hávaðadeila eða stór- kostlegir hlutir að gerast í hóp á Face- book eða vefsíðu sem maður veit ekki af, nennir ekki eða hefur ekki tíma til að fylgjast með. Þetta verður fjölbreyti- legra, en mér sýnist að þessi rosalega öfluga tækni setji undir þennan leka sem að ég hélt að ég sæi fyrir og óttað- ist, að samvitundin glataðist.“ Fjölmiðlahátíðir og menningarviðburðir Þorbjörn segir þó líklegt að ýmsir stórviðburðir, athafnir og kappleikir í beinni útsendingu muni áfram sam- eina samfélagið í sameiginlegri upplif- un, bæði hér og erlendis. Þetta er það sem félagsfræðingarnir Daniel Dayan og Elihu Katz hafa kallað „fjölmiðlahá- tíðir“ og sagt virka eins og helgiathafnir nútímasamfélaga. Þá segir Þorbjörn einnig líklegt að einstaka menningarviðburðir muni áfram geta sameinað ólíka hópa sam- félagsins. Hann nefnir til að mynda sjónvarpsþáttaröðina Ófærð sem stór hluti íslensku þjóðarinnar fylgist með. Samkvæmt mælingum sá helmingur íbúa landsins fyrsta þáttinn, eða um 90 prósent af þeim sem horfðu á sjónvarp á þeim tíma. Sigurjón Kjartansson, sjónvarps- maður og handritshöfundur Ófærð- ar, tekur í svipaðan streng. „Línuleg dagskrá blífur svo fremi sé boðið upp á atburði í sjónvarpi, bæði íþrótta- kappleiki í beinni útsendingu, Eurovision-úrslit þar sem fólk getur kosið og annað slíkt,“ segir hann. „En það sem öll þessi digital-væð- ing hefur gert að verkum er að frum- sýningin verður miklu verðmætari og dýrmætari. Við sjáum það mjög skýrt með Ófærð að allir vilja vera með í frumsýningunni. Það er ekki það sama að streyma þætti seinna og að horfa á sama tíma og all- ir aðrir,“ segir Sigurjón og bendir á að í internettengdum samtímanum séum við í raun ekki að horfa á þátt- inn ein heldur með allri þjóðinni. „Það er ánægjulegt hvernig sam- félagsmiðlar styðja við línulegu dag- skrána. Twitter er einhver besti vinur línulegrar dagskrár sem hugsast get- ur. Þú vilt vera með, fyrir framan sjón- varpið að horfa á beina útsendingu, frumsýningu á lokaþætti eða eitt- hvað, og vera með í samkeppninni um hver er fyndnastur eða skemmti- legastur. Þetta er bara gamla, góða fjölskyldan sem safnast saman. Mað- ur er manns gaman og það mun ekk- ert breytast,“ segir Sigurjón. „Það er mjög gaman að sjá hvernig fólk er að fylkja sér saman um reynsl- una. Ég held reyndar að glæpaþættir séu sérstaklega góðir varðandi þetta, því það eru allir saman að reyna að leysa úr gátu. Þannig að það er ekki alveg það sama að horfa á lokaþátt af gamanþætti.“ Fjölbreytnin eykst Sigurjón bendir einnig á að línu- lega dagskráin gæti haldi velli, ein- faldlega vegna þess að efnið er orðið svo mikið og fjölbreytt, og notendur þurfa einhvern til að segja sér hvað gæti verið gott að horfa á. „Við mun- um áfram vilja hafa dagskrá, að láta mata okkur við og við, láta koma okk- ur á óvart.“ Þorbjörn segir eitt það athyglis- verðasta við fjölmiðlun nútímans sé að miðlar og boðskiptaleiðir hverfi ekki þegar nýir eru þróaðir, heldur fái þeir einfaldlega ný hlutverk. Bók- lestur lagðist þannig ekki af með út- varpinu og útvarpið fékk einfaldlega nýtt hlutverk með sjónvarpinu. Jafn- vel skeytasendingar hafi snúið aft- ur sem SMS-skilaboð og faxið komið aftur sem tölvupóstur. Rafbókin hef- ur ekki eytt prentuðu bókinni og efn- isveitur munu líklega ekki gera út af við línulega dagskrá. n Hver heldur þú að sé morðinginn? Mikil stemning hefur skapast í kringum glæpa- þættina Ófærð og ómögulegt að mæta til vinnu á mánudegi nema geta rætt um þátt gærkvöldsins. „Þú getur ekki lengur treyst því að allir hafi séð sama sjónvarpsefnið, en það hversu auðvelt er orðið að afla upplýsinganna bætir upp fyrir það. Miðlarnir breytast Þorbjörn Broddason, prófessor í félagsfræði, segir óhjákvæmi- legt að fjölmiðla- og sjónvarpsneysla muni breytast á næstu árum. Mynd ©KRiSTinn ingvaRSSon Blæs á spár um endalok línulegrar dagskrár Sigurjón Kjartansson segir að fólk muni áfram vilja deila sjónvarpsupp- lifuninni með því að horfa á sama tíma og aðrir. Mynd SigTRygguR aRi Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is VIÐ KYNNUM: LÍMBORÐAR FYRIR 6 mm 1.290 kr. 12 mm 1.490 kr. 9 mm 1.390 kr. 18 mm 1.790 kr. Öll verð eru með vsk. Eigum á lager ýmsar Brother merkivélar á ótrúlegu verði. merkivélar 6,29 0Kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.