Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Blaðsíða 22
Helgarblað 19.–22. febrúar 201622 Fólk Viðtal
V
ið mælum okkur mót í
mötuneyti Kennarahá-
skólans við Stakkahlíð þar
sem Björk stundar nám.
Hún byrjar á því að sækja
sér soðið vatn út í teið sem hún tók
með sér að heiman. Það er hag-
kvæmara en að kaupa það tilbúið í
skólanum og þar fyrir utan er teið
að heiman miklu betra. „Ég er búin
að læra að lifa ódýrara og það gefur
mér ótal tækifæri. Ég finn að ég þarf
ekki þessar tekjur sem ég hafði og
það er ótrúleg frelsun. Að vera ekki
í kapphlaupi eftir einhverju meira,“
segir Björk sem lækkaði eðlilega
töluvert í tekjum þegar hún fór úr
borgarstjórn og settist á skólabekk.
Hún er að ljúka síðustu ein-
ingunum í meistaranámi í félags-
ráðgjöf og sér svo fyrir sér að starfa
við fagið, líkt og hún gerði áður en
hún hellti sér út í pólitíkina. Björk
taldi að hún yrði eftirsóttur starfs-
kraftur þegar hún sagði skilið við
pólitíkina, enda með mikla reynslu
á ýmsum sviðum. En það er smám
saman að renna upp fyrir henni að
kannski verði það ekki raunin. Ekki
af því reynslan er ekki nógu mikil,
heldur frekar af því hún er of mik-
il og kannski aldurinn of hár. Það
er þægilegra fyrir atvinnurekend-
ur að fá yngra fólk í vinnu – með-
færilegri starfskrafta sem hægt er
að greiða lægri laun. Hún vonast þó
til að reynslan verði metin að verð-
leikum einhvers staðar og hún fái
að gera gagn.
Þurfti smá „break“
Björk var borgarfulltrúi í þrett-
án ár. Kunni vel við starfið og leið
vel þennan tíma. Hún ákvað hins
vegar síðastliðið sumar að nú væri
kominn tími til að draga sig út úr
pólitíkinni. Í september sat hún
sinn síðasta borgarstjórnarfund
og skömmu síðar var hún flogin til
Palestínu þar sem hún sinnti sjálf-
boðastarfi í fjóra mánuði. „Ég fann
að tíminn minn var kominn. Mér
fannst ég ekki hafa neitt nýtt að
gefa. Þótt ég hafi kannski áhuga
á málunum sem eru til umfjöll-
unar þá fannst mér ég ekki vera
nógu fersk. Ég held að maður þurfi
stundum smá „break“ í lífinu, eins
og ég tók í Palestínu. Ég lærði svo-
lítið að lifa upp á nýtt þar. Það er
svo ótrúlega hollt að fara og læra að
lifa,“ segir hún einlæg.
Er ekki búin að fá nóg
Björk hafði farið nokkrum sinnum
áður til Palestínu, en þá alltaf með
eiginmanni sínum, Sveini Rúnari
Haukssyni, lækni og formanni fé-
lagsins Ísland-Palestína. Hún vildi
prófa að fara á sínum eigin forsend-
um og upplifa Palestínu á annan
hátt en áður. Sem varð raunin.
„Mig langaði að tengjast fólki á
dýpri hátt. Ná lengri, betri og dýpri
tengslum en Sveinn hefur get-
að náð. Hann hefur alltaf þurft að
hafa svo mikla yfirferð. Hann hefur
heimsótt marga og viðhaldið marg-
víslegum tengslum, meðal annars
til þess að undirbúa komu sjálf-
boðaliða, sem hafa verið hátt í 40
síðastliðin tuttugu ár. Þannig hef-
ur hann líka náð að skilja ótal vídd-
ir hernáms Ísraels og skilað því til
þjóðarinnar. Mig langaði líka frekar
að vinna með fólki á landsbyggð-
inni,“ segir Björk sem stefnir á að
fara aftur til Palestínu næsta haust.
„Ég er ekki búin að fá nóg. Mér
finnst svo stórkostlegt frelsi að fara
frá íslenska samfélaginu þar sem
fólk þekkir mig. Í Palestínu vissu
fæstir að ég væri pólitíkus. Ég var
bara félagsráðgjafi. Mér fannst svo
frábært að geta kynnt mig á mín-
um eigin forsendum, eins og ég vil
vera, án þess að fólk væri búið að
ákveða fyrirfram hvernig ég væri,
af því ég hefði verið í borgarstjórn.“
Gott fyrir ástina
Fjórða mánuðinum í Palestínu
vörðu Björk og Sveinn þó saman.
Björk Vilhelmsdóttir, félagsráðgjafi og fyrrverandi borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar, er nýkomin heim frá Palestínu þar sem hún gegndi sjálf-
boðastarfi í fjóra mánuði. Hún komst í hann krappan, lét gott af sér leiða og
lærði að lifa upp á nýtt. Þrátt fyrir að Björk hafi sagt skilið við pólitíkina þá hef-
ur hún enn sterkar skoðanir og liggur ekki á þeim. Hún vill til að mynda sjá nýtt
afl í pólitíkinni og þykir merkilegt hvernig fólk virðist í óánægju sinni tilbúið að
gefa valdinu lausan tauminn með því að setja traust sitt á Pírata. Blaðamaður
settist niður með Björk og ræddi um stöðuna í pólitíkinni í dag, óþolandi mýtur
í samfélagsumræðunni og Palestínuförina sem breytti lífi hennar.
„Ég lærði að
lifa upp á nýtt“
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Nýkomin frá Palestínu
Björk þurfti smá „break“ í lífinu
og hafði mjög gott af því að fara
til Palestínu og prófa að búa við
önnur lífskjör en hún er vön.
MyNd ÞoRMaR ViGNiR GuNNaRSSoN
„Ég fann það
eftir þriggja
mánaða aðskilnað hvað
við urðum hræðilega
ástfangin og það stendur
enn – að mestu.