Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2016, Blaðsíða 15
Helgarblað 19.–22. febrúar 2016 Fréttir Erlent 15
Símtalið sem breytti öllu
vita sex árum síðar að hann ætti 90 ár eftir
vopnin voru ekki einu sinni hlað-
in. Þetta var ekkert frábrugðið rán-
um sem menn fá fimm til tíu ára
dóm fyrir. Ég er ekki að segja að ég
hafi gert rétt. Ég tek fulla ábyrgð á
gjörðum mínum. Það var heimsku-
legt og fáránlegt að fremja þessa
glæpi, mistök sem ég gerði þegar
ég var 18 ára gamall.“
Maðurinn spyr hver tilgangur-
inn með fangelsisvist sé. Hvort
markmiðið sé ekki líka að stuðla að
betrun. „Það er nákvæmlega það
sem kom fyrir mig. Ég er allt ann-
ar maður í dag en fyrir 18 árum.
Allt það sem þeir vilja að mað-
ur læri með fangelsisdómi hef ég
lært.“ Hann var í öngum sínum yfir
því að þurfa að fara aftur í fang-
elsi en stendur í þeirri trú að allt
sem gerist í lífinu hafi tilgang. „Ég
átti miklu auðveldara með afplán-
unina í fyrra skiptið. Það sem er
breytt núna er að ég hef stofnað til
fjölskyldu. Mér hefur verið kippt
frá henni.“
Spyrja á hverjum degi
Konan hans, Jasmine, sagði í við-
tali við Guardian árið 2014 að fjöl-
skyldan væri sundurtætt eftir það
sem á hefði gengið. „Ég vakna á
hverjum degi og bið til guðs að
strákarnir okkar spyrji mig ekki
hvenær pabbi komi heim. Ég sakna
sálufélaga míns og besta vinar. Ég
finn til á hverjum degi en get ekki
ímyndað mér þær þjáningar sem
hann þarf að þola.“
284 þúsund undirskriftir söfn-
uðust á vefsíðunni change.org, til
stuðnings Lima-Martin auk þess
sem veik von kviknaði í desember
þegar yfirréttur í Colorado sam-
þykkti að hlýða á rökstuðning fyr-
ir lausn hans. En málinu var vísað
frá og undirskriftirnar höfðu engin
áhrif. Heima situr Jasmine og svar-
ar daglega spurningum um pabba.
„Þegar við förum og heimsækj-
um hann hefst þetta allt á ný. Þeir
spyrja hvort hann komi ekki með
okkur heim og hvers vegna hann
megi það ekki.“ Fjölskyldan bindur
enn vonir við að hann verði látinn
laus og biður fyrir því dag hvern. n
„Ég finn til á hverj-
um degi en get
ekki ímyndað mér þær
þjáningar sem hann þarf
að þola.
Hefur þig
dreymt um
KitchenAid
hrærivél?
Kláraðu dæmið á kitchenaid.dv.is
Stökktu þá á nýjasta
áskriftartilboð DV!
Með því að gerast áskrifandi
að DV núna færðu þessa
fallegu KitchenAid hrærivél.*
Á meðan
birgðir
endast
*Um er að ræða prent- og vefáskrift að DV á 3.190 kr/mán. Skuldbinding til 36 mánaða, greitt með kredikorti.