Fréttablaðið - 06.04.2017, Side 8
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Mitsubishi Outlander PHEV hefur heldur betur slegið í gegn. Þessi fjórhjóladrifni gæðingur gengur bæði
fyrir rafmagni og bensíni, svo þú kemst allra þinna leiða með góðri samvisku. Komdu og prófaðu!
Mitsubishi Outlander PHEV
Sjálfskiptur, fjórhjóladrinn frá:
4.990.000 kr.
FYRIR HUGSANDI FÓLK
MITSUBISHI OUTLANDER PHEV
5 ára ábyrgð
RAFMAGN EÐA BENSÍN?
ÞÚ VELUR.
DANMÖRK Meirihluti danskra þing-
manna vill uppgjör við kvótakónga.
Óska þeir eftir samráði við Esben
Lunde Larsen, umhverfis- og mat-
vælaráðherra, í því skyni.
Deilan um kvóta og kvótakónga
á rætur sínar að rekja til ásakana af
hálfu Danska þjóðarflokksins og
Jafnaðarmannaflokksins gegn Esben
Lunde Larsen. Flokkarnir saka ráð-
herrann um að hafa leynt tillögu
um hvernig skipta mætti kvótunum
jafnar.
Samkvæmt frétt í Kristilega Dag-
blaðinu í Danmörku hefur þurft að
loka mörgum litlum höfnum á und-
anförnum árum þegar kvótar hafa
safnast á hendur fjársterkra aðila. – ibs
Deila um
kvótakónga
SVÍÞJÓÐ Stefan Löfven, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, segir það forkastan-
legt að til skuli vera kynjaskiptir
skólabílar í Stokkhólmi eins og sjón-
varpsstöðin TV4 hefur afhjúpað.
Starfsmenn sjálfstæðs skóla mús-
líma í hverfinu Vällingby láta stelpur
í leikskóla og neðsta stigi grunnskóla
setjast aftast í skólabílinn á hverjum
degi. Strákunum er vísað til sætis
fremst í vagninum.
Devin Rexvid, sérfræðingur í
félagsvísindum við Umeå-háskólann,
ber þetta saman við aðskilnað hvítra
og svartra í strætisvögnum í Banda-
ríkjunum á sjötta áratugnum. Rexvid
segir skólabíl múslíma aðskilnaðar-
strætó. – ibs
Stelpur settar
aftast í strætó
AKuReyRi Hjónin Stefán Þórarins-
son og Aðalheiður Gunnarsdóttir fá
ekki sameiginlega vistun á öldrunar-
heimilinu Hlíð á Akureyri sökum
þess hve Aðalheiður er heilsuhraust
samkvæmt færni- og heilsumats-
nefnd landlæknis. Hjónin hafa verið
gift í rúm 65 ár.
Stefán, sem er á 91. aldursári, hefur
fengið inni á dvalarheimili aldraðra
á Hlíð. Þau vilja hins vegar vilja verja
síðustu æviárunum saman og Aðal-
heiður, sem er ári yngri, er talin of
hraust. Eins og staðan er núna er afar
erfitt fyrir þau að vera bæði heima
sökum aldurs. Hjónin hafa alla sína
tíð haldið gott heimili án utanað-
komandi aðstoðar svo heitið geti.
„Mér líður eins og þetta sé skilnað-
ur að vissu leyti. Þegar ég fékk þessar
fréttir fannst mér þetta mikið högg
og mér finnst þetta sárt,“ segir Aðal-
heiður. „En vonandi venst þetta ein-
hvern veginn og við finnum lausn.“
Aðalheiður er að mati heilsumats-
nefndar of heilsuhraust en hins vegar
sé það svo að daglegar annir eru erf-
iðar fyrir hana, svo sem að halda
heimili, elda mat og ganga frá eftir
eldamennsku, að ótöldum erfiðari
heimilisverkum. „Bara að taka úr
uppþvottavélinni og raða í skápa
gerir það að verkum að ég er búin í
bakinu á eftir,“ bætir Aðalheiður við.
Aðalheiður segir lækna hafa sagt
henni þegar matið fór fram að lík-
lega myndi hún ekki fá vistunarmat
en maðurinn hennar væri líklegri.
„Ég hugsaði ekkert um það á þeim
tíma. Ég hélt að við myndum ekki
komast að fyrr en eftir mörg ár. Því
kom það mjög flatt upp á okkur
þegar við heyrðum að annað okkar
gæti komist inn,“ segir Aðalheiður.
„Mér finnst þetta svo ósanngjarnt
að við þurfum eftir öll þessi ár að fara
sitt á hvorn staðinn. Eins og staðan
er núna má ég vera allan daginn með
honum á Hlíð en síðan skilja leiðir
að kvöldi.“
„Ég hef haft afspurn af þessu máli
og mun skoða það og finna leiðir til
aðstoðar. Það er engum greiði gerður
með að hafa stöðuna eins og hún er
í dag,“ segir Halldór Guðmundsson,
forstöðumaður öldrunarheimilisins
Hlíðar.
„Við leggjum ríka áherslu á tengsl
íbúa og höfum sýnt það á síðustu
árum að við hliðrum til svo að hjón
geti eytt síðustu árum ævi sinnar
saman. Ég get talið upp mýmörg
dæmi þar sem við vinnum að því
að leysa nákvæmlega svona mál
sem upp koma.“ Halldór segir það
mikilvægt að yfirvöld setji aldraða
ekki í þá stöðu að fólk þurfi að skilja
að borði og sæng síðustu æviárin.
Öldrun sé ekki sjúkdómur heldur
hluti af þroskaferli mannsins.
Færni- og heilsumat er faglegt,
einstaklingsbundið mat á þörfum
einstaklinga fyrir varanlega búsetu
á hjúkrunar- og dvalarheimilum.
Um er að ræða staðlað mat ásamt
skilgreindum upplýsingum frá heil-
brigðis- og félagsþjónustu og svæðis-
skrifstofu málefna fatlaðra auk
læknabréfa frá læknum viðkomandi
eftir því sem við á.
Aðstandendur hjónanna vilja
koma því skýrt á framfæri að ekki sé
við öldrunarheimilið að sakast. Allt
starfsfólk stofnunarinnar hafi komið
mjög vel fram við þau hjónin en þau
hafa notið þjónustu dagvistunar á
Hlíð um nokkurt skeið.
sveinn@frettabladid.is
Stíað í sundur eftir 65 ár
Þau Aðalheiður og Stefán hafa verið gift í 65 ár en fá ekki saman inni á öldrunarheimili. Framkvæmdastjóri
öldrunarheimila Akureyrar segir mikilvægt að aldraðir þurfi ekki að skilja að borði og sæng sökum heilsu.
Stefán hefur fengið
inni á dvalarheimili
fyrir aldraða. Eigin-
kona hans er hins
vegar talin of hraust
til að fá að dvelja þar.
Fréttablaðið/auðunn
akurEyri
Mér
líður
eins og þetta sé
skilnaður að
vissu leyti. Þegar
ég fékk þessar
fréttir fannst mér
þetta mikið högg
og mér finnst
þetta sárt.
Aðalheiður
Gunnarsdóttir
6 . A p R Í l 2 0 1 7 F i M M T u D A G u R8 F R é T T i R ∙ F R é T T A B l A Ð i Ð
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
E
-4
1
B
8
1
C
9
E
-4
0
7
C
1
C
9
E
-3
F
4
0
1
C
9
E
-3
E
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K