Fréttablaðið - 06.04.2017, Page 40
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Félagarnir Barnaby og Ben Jones. Ör skipti hafa verið á aðstoðarmönnum hjá Barnaby en Ben entist lengst, eða í sex ár.
Barnaby yngri er leikinn af Neil Dudgeon. Hann tók við starfinu 2011. Nýjasti
aðstoðarmaðurinn er hinn ungi Nick Hendrix.
Það má segja að danska ríkis-sjónvarpið dr.dk standi sig ein-staklega vel þegar kemur að
Barnaby-þáttum. Aðdáendur sem
eru með þá stöð geta yfirleitt fundið
Midsomer Murders þar í hverri viku.
Englendingar eru sömuleiðis öflugir
í sýningum á þáttunum. Hér á landi
hefur þessum aðdáendahópi ekki
verið sinnt sem skyldi því Barnaby
birtist afar slitrótt á skjánum. Fyrsti
Midsomer Murders þátturinn fór í
loftið hjá ITV-sjónvarpsstöðinni í
Bretlandi 23. mars 1997. Þátturinn
var byggður á bók Caroline Graham
um Chief Inspector Barnaby.
Leikarinn John Nettles fór með hlut-
verk Barnaby til ársins 2011 en þá tók
Neil Dudgeon við hlutverkinu. Þegar
nýjustu þættirnir voru frumsýndir
í janúar á þessu ári enduðu þeir á
númer 114. Framhald er væntanlegt.
Bæir með sjarma
Litlu ensku bæirnir sem koma við
sögu í þáttunum spila stóru rullu.
Fagurt umhverfi sem að mestu er í
Oxfordshire dregur að sér mikinn
fjölda ferðamanna ár hvert. Sömu-
leiðis eru skipulagðar Barnaby-ferðir
afar vinsælar. Sumir bæir, líkt og
Dorchester on Thames, hafa yfir sér
mikinn sjarma. Alls eru 50 staðir í
Oxfordshire og Buckinghamshire
sem hafa verið notaðir við tökur á
Midsomer Murders, jafnt pöbbar,
söfn, kirkjur, verslanir og íbúðarhús.
Midsomer er vitaskuld skáldað nafn
og bærinn Causton heitir í raun Wall-
ingford og er ákaflega skemmtilegur
bær. Það er þess vegna ekkert hættu-
legt að heimsækja þessa fallegu staði.
222 morð
Barnaby hefur haldið vinsældum
sínum í hverri þáttaröð sem sýnd er. Í
síðustu seríu voru áhorfendur í Bret-
landi 4,9 milljónir. Frá því þættirnir
hófust og til ársins 2016 höfðu 222
morð verið framin í Midsomer auk
ellefu dauðsfalla vegna slysa, ellefu
sjálfsmorða og sjö eðlilegra dauðs-
falla. Morðvopnin eru mismunandi,
krikketkylfa, eldglóandi járn, pottar
og pönnur, gallaður hljóðnemi, raf-
magnsleiðsla, spjót, fljótandi nikótín,
eitraðir sveppir, rakvél, hamar og
eitraðir drykkir svo eitthvað sé nefnt.
Í þáttunum hafa komið fram 942
leikarar og 22 þúsund aukaleikarar.
Það tekur fimm vikur að taka upp
hvern þátt. Þættirnir eru seldir til
meira en 200 landa.
Áður en John Nettles tók að sér
að leika Barnaby hafði hann verið í
aðalhlutverki sem Bergerac. Hann
hætti að leika Barnaby 67 ára að aldri
en sést núna í þáttunum Poldark sem
hafa náð miklum vinsældum.
Margir aðstoðarmenn
Eins og aðdáendur vita skiptir
Barnaby nokkuð oft um aðstoðar-
menn. Það er þó ekki vegna þess
hversu hættulegt er að búa í Mid-
somer. Sá fyrsti var Gavin Troy
(Daniel Casey). Síðan kom Dan
Scott (John Hopkins), þá kom Ben
Jones (Jason Hughes) sem starfaði
með Barnaby í sex ár eða lengst allra
aðstoðarmanna. Margir söknuðu
Bens þegar hann ákvað að hætta í
þáttunum stuttu eftir að Barnaby
eldri eða John Nettles ákvað að
yfirgefa þá. Jason Hughes hefur sagt
frá því í viðtali að það hafi verið
of mikið álag fyrir sig að leika í
þáttunum. Hann býr í Brighton og
fór á milli til Oxfordshire daglega á
meðan á tökum stóð.
Næsti aðstoðarmaður er Charlie
Nelson (Gwilym Lee). Hann var
aðeins í tveimur seríum og lauk
sínum Barnaby-ferli í lok átjándu
seríu.
Nýjasti aðstoðarmaður Barnaby
þykir ákaflega glæsilegur ungur
maður, Nick Hendrix, 32 ára. Hann
leikur með Neil Dudgeon í nýjustu
seríunni undir nafninu DS Jamie
Winter. Nick hefur aðallega leikið í
leikhúsum í London og hann segir
það mikinn heiður að fá að leika
aðstoðarmann Barnaby í þessum
vinsælu þáttum. Svo er bara að
bíða og sjá hverjir verða fyrstir á
Norðurlöndum til að sýna nýjustu
þáttaröðina.
Barnaby
í tuttugu ár
Rannsóknarlögreglumaðurinn Barnaby á
mikinn fjölda aðdáenda. Þættirnir fagna nú
tuttugu árum og eru alltaf jafnvinsælir.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Str. 36-52
Robell - stretch buxur
kr. 7.900.-
7
LITIR
#akraborgin
AKRABORGIN
SPORT OG ROKK
HJÖRTUR HJARTAR
ALLA VIRKA DAGA 16:00 - 18:00
12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . a p R í l 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
E
-3
7
D
8
1
C
9
E
-3
6
9
C
1
C
9
E
-3
5
6
0
1
C
9
E
-3
4
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K